Dvöl - 01.07.1941, Side 54
212
D VÖL
um. Það dugði, því að Rory þótti
orðið gaman að leika strákinn og
vildi ógjarna láta af því. Hann
rakaði sig á hverjum morgni, áð-
ur en verkamennirnir komu á
fætur, og Tim gat ekki varizt því,
að hann kunni ávallt hálf illa við
þetta.
Tíminn leið, og Tim O’Hara tók
að safna fé. Nú var hann hættur
að taka þátt í drykkjuskap félaga
sinna, óttaðist að verða þá ófær
að fást við Rory. Önnur óregla fór
sömu leið og drykkjuskapurinn, og
innan skamms var Tim O’Hara
orðinn kunnur að stöðuglyndi og
áreiðanleik.
Svo var það einn morgun, að
hann vaknaði snemma. Dvergur-
inn var búinn að raka sig og sat
með krosslagða fætur, og hlátur-
inn krymti í honum.
„Hvað er það, sem kætir þig
svona snemma morguns?" spurði
Tim.
„Ohó,“ sagði dvergurinn. „Ég er
nú aðeins að hugsa um, hvað
vinna okkar verði ógurlega erfið,
þegar brautin er orðin tíu mílum
lengri.“
„Hvers vegna ætti vinnan að
verða erfiðari þá en hún er nú?“
spurði Tim.
„Það er nú svo sem ekkert. En
verkfræðingafíflin hafa ákveðið að
leggja brautina einmitt þar, sem
miklar vatnsæðar eru fólgnar rétt
undir yfirborðinu. Þegar við för-
um að grafa þar, verður skrattinn
laus.“
„Veiztu þetta með vissu?“
„Hví skyldi ég ekki vita það? Ég,
sem heyri til vatnsins niðri í jörð-
inni.“
„Hvað eigum við þá að gera?“
spurði Tim.
„Færa brautina svo sem hálfa
mílu til vesturs; þar er ágætt
brautarstæði," sagði dvergurinn.
„En þeir eru alltof heimskir til
þess að detta það í hug,“ bætti
hann við og skellihló.
Tim lézt ekki gefa þessu neinn
gaum að sinni. En í hádegishlé-
inu gekk hann á fund aðstoðar-
verkfræðingsins, sem þarna var.
Tim hefði ekki áður fyrr fengið
áheyrn hjá honum, en nú var
hann þekktur að gætni og reglu-
semi. Hann sagði ekki hvaðan
hann hefði fengið þessa vitneskju
um vatnið, en þóttist hafa séð
sams konar jarðlag heima á ír-
landi og draga dæmið af því.
Verkfræðingurinn hlýddi á
hann, lét framkvæma athuganir,
og hinar huldu vatnsæðar fund-
ust.
„Þetta var vel af sér vikið,
0’Hara,“ sagði verkfræðingurinn.
„Þú hefir sparað okkur bæði fé og
fyrirhöfn. Hvað segðir þú um að
verða verkstjóri yfir dálitlum
flokki?“
„Ég hefði ekki nema gott eitt
um það að segja,“ sagði Tim.
„Þú ert þá hér með skipaður
verkstjóri yfir fimmta flokknum,“
sagði verkfræðingurinn. ,JÉg skal
hafa auga með þér. Fyrst eftir að