Dvöl - 01.07.1941, Side 80

Dvöl - 01.07.1941, Side 80
238 DVÖL Höfundariifr Honoré de Balzac fæddist í Tours á Frakklandi árið 1799. Hann átti lengi erfitt uppdráttar og eft- ir að hafa reynt fyrir sér með bókaút- gáfu, sem ekki blessaðist, tók hann að semja skáldsögur. Þar var Balzac á réttri hillu. Hann samdi fjöldi skáldsagna og unni sér sjaldan hvíldar frá þeirri iðju, enda var hann skuldugur mjög frá fyrri tíð, en skáldsagnaritunin hins vegar arð- bær svo frábærum höfundi. Balzac var að ýmsu leyti brautryðjandi í skáldsagnalist. Sögur hans eru þrungnar sálfræðilegri gagnrýni og persónulýsingar hans ná- kvæmar og náttúrulegar. Eitt af merk- ustu ritverkum Balzacs er sagnaflokkur mikill og langur, er nefnist Comédie Humaine, fjölbreyttur og litauðugur að efni. — Balzac lézt árið 1850, nýkominn úr brúðkaupsferð. Hann er einn af frægustu skáldsagnahöfundum, sem uppi hafa verið. Johannes V. Jensen fæddist í Farsö á Jótlandi, árið 1873. Faðir hans var dýralæknir, og setti hann soninn til mennta. Johannes átti að læra læknisfræði, en festi ekki yndi við þá mennt og hvarf frá námi. Tök hann þá að rita skáldsögur og kom skjótt i Ijós frábær frásagnargáfa og myndauðgi. Fyrsta bók hans kom út árið 1896 og fjallaöi um líf danskra skólapilta og hin erfiðu kjör þeirra. Hún þótti strax gefa góðar vonir. Næsta bók hans kom út tveimur árum síðar, og eftir það rak hver bókin aðra. Margar skáld- sögur J. V. Jensen gerast til forna, jafnvel á steinöld. Gerast þær mest á danskri grund. Annar sagnaflokkur gerist á vélaöld vorra daga og er al- þjóðlegs efnis. Hefir ýmsum þótt gæta þar meir hrifningar höfundarins en smekkvísi og raunsæi. J. V. Jensen hefir ferðazt víða uin lönd. A

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.