Dvöl - 01.07.1941, Side 82
240
DVÖL
Kímnisögar
í þrælastríðinu voru ýmsir hershöfð-
ingjar Lincolns leiðir yfir því, að þurfa
að senda honum nákvæmar skýrslur um
allt, sem gerðist. Einn þeirra sendi honum
þá þetta skeyti:
„Hefi hertekið sex kýr. Hvað á að gera?“
Lincoln svaraði um hæl:
„Vér ráðleggjum yður að mjólka kýrn-
ar“.
Konan byrjar með því að tefja fram-
sókn mannsefnisins og endar með því að
stöðva flóttann. Oscar Wilde.
Stjórnmálamaður nokkur hafði keypt
íbúðarhús, sem kostaði 75 þúsund krónur.
Daginn eftir fann hann miða, sem nældur
var á útidyrahurðina. Á miðanum stóð:
„Hvemig fékkstu þessi 75 þúsund."
Stjórnmálamaðurinn brást reiður við og
hét eitt þúsund króna verðlaunum þeim,
sem gæti haft uppi á þrjótnum. Daginn
eftir var aftur kominn miði á dyrnar.
Það stóð: „Hvernig fékkstu þessi 76 þús-
und?“
Strákurinn: Ég átti að greiða víxil fyrir
Jón Jónsson.
BankastarfsmaSurinn: Hvenær féll
hann?
Strákurinn: Ha, féll? Hann datt nú
víst í gær, en hann meiddi sig ekkert.
BankastarfsmaSurinn: Nú, jæja — jæja.
En geturðu þá sagt mér, hvað hann er
hár?
Strtákurinn: Hár? — ja, hann er svona
sem næst meðalmaður.
Gamall, sjóndapur maður: Hvað heitir
hann litli bróðir þinn?
Lítill strákur: Ef það væri hann bróðir
minn, þá héti hann Jón, en það er ekki
bróðir minn og hann heitir Sigga.
Drengurinn: Að ofan eða frá hlið?
Kennarinn (undrandi): Hvað eigið þér
við?
Drengurinn: Jú, ef það er ofan frá, þá
er það núll, en ef það er frá hlið, þá er
það þrír.
„Ó, hamingjan góða“, sagði nýgift kona,
sem var heldur klaufsk við matreiðsluna,
„sjáðu hvernig pönnukakan fór“.
„Það er ekki víst, að hús sé alveg ónýt“,
sagði eiginmaðurinn með hægð, „við get-
um reynt hana á grammófóninn”.
A. : Nú er ég búinn að fá mér bifreið
af nýjustu gerð. Hún hefir fimm hjól.
B. : Fimm hjól! Til hvers er fimmta
hjólið?
A.: Til þess að stýra með.
Vinnukonan hefir beðið mig um með-
mælabréf, hvað get ég sagt gott um hana?
Að hún hafi ágæta matarlyst og sofi
með afbrigðum vel.
— Annaðhvort verðurðu að greiða húsa-
leiguna eða fara.
— Það kalla ég höfðinglega mælt. Þar
sem ég var síðast, varð ég að gera hvort-
tveggja.
Félag „göngumanna" hefir verið leyst
upp. Ástæðan kvað vera sú, hve bifreiðar-
stjórar eru tregir til að stanza, þótt þeim
sé gefið merki.
— Hver er þessi langi og luralegi
maður?
— Já, þannig var nú tekið til orða áður
en hann fékk arfinn, en nú segjum við:
hái og þreklegi.
Aldrei hefi ég getað skilið, hvernig
stjörnufræðingarnir komust að því, hvað
stjörnurnar hétu, sagði karlinn.
Kennarinn: Hvað er helmingurinn af Útgefandi S. U. F.
Átta? Ritstjóri: Þórir Baldvinsson.