Melkorka - 01.05.1946, Blaðsíða 12
NÝTT STARF FYRIR KONUR
Eftir Rannveigu Kristjánsdóttur
Fyrir nokkrn baist mér til eyrna, að á
hausti komanda ætti að hefjast námskeið
hér í bæ til þess að sérmennta konur er taka
œtla að sér stjórn og umsjá leikskóla, barna-
heimila, vöggustofa og leikvalla.
Mér var kunnugt um að frk. Þórhildur
Ólafsdóttir, forstöðukona við léikskóla Sum-
argjafar í Tjarnarborg, hafði á síðastliðnum
vetri ritað stórn Sumargjafar bréf, Jrar sem
hún benti á nauðsyn Jress að slíkri stofnun
yrði komið á fót. Ég sneri mér til hennar og
fékk eftirfarandi upplýsingar.
Eftir að stjórn Sumargjafar hafði fengið
bréf Þórhildar í hendur leitaði stjórnin fyrir
sér hjá bæ og ríki urn möguleika á fjárstyrk
til áðurnefndra námskeiða. Undirtektir
urðu góðar og skipaði Jrá stjórnin þau Helga
Elíasson, fræðslumálastjóra, ísak Jónsson
kennara og Þórliildi Ólafsdóttur, forstöðu-
konu, í nefnd til þess að gera tillögur um
tilhögun slíkra námskeiða. Samkvæmt upp-
lýsingunt Þórltildar mun nefndin hugsa sér
tilhögun námskeiða og inntökuskilyrði eitt-
hvað á þessa leið:
Inntökuskilyrði:
a) bóklegur undirbúningur: gagnfræðapróf
eða hliðstæð menntun.
b) verklegur undirbúningur: æskilegt að
sækjandi hafi unnið á leikskóla eða
barnaheimili, meðal annars til þess að
sjá, hvernig lienni líkar starfið. Enn-
fremur að sækjandi sé nokkuð vön heim-
ilisstörfum.
Sjálft námið:
Námstími yrði tvö ár, 9 mánuði á ári.
Námið væri bæði bóklegt og verklegt, t. d.
41/j) mánuð á ári bóklegt nám og 4l/£ verk-
legt. Verklega námið yrði innifalið í vinnu
á leikskóla, vöggustofu, barnaheimili og
leikvelli.
Bóklegar námsgreinar yrðu:
1) barnasálarfræði og uppeldisfræði.
2) lieilsufræði og lieilsuvernd barna.
3) Idjóðkennsla, framsögn og upplestur.
4) söngur og hljóðfærasláttur.
5) handavinna (teikning, leirmótun og
föndur).
6) leikfimi (plastik).
7) stjórn heimilis og innanhússumgengni.
8) bókfærsla og búreikningar.
9) næringarefnafræði og matreiðsla.
10) hjálp í viðjögum.
Bóklega námið yrði miðað við 5 stunda
kennslu á dag. Þann tíma er stúlkurnar
væru í bóklegu námi yrðu Jrær látnar fylgj-
ast með börnum á leikskólum og barna-
heimilum á Jrann liátt, að þær færu t. d.
tvisvar í viku, tvo tíma á dag, á eitthvert
heimilið, horfðu J)ar á börnin og skrifuðu
hjá sér sínar athugasemdir. Tilgangurinn
með J)essu er að hjálpa nemendunum til að
tengja liin bóklegu iræði starfinu, sem verið
er að búa þær undir. Þennan tíma eiga
stúlkurnar ekkert að vinna á heimilunum.
í sumarleyfunum væri hins vegar æskilegt,
að þær ynnu á einhverjum leikskóla eða
dagheimili, og gætu Jrær þá unnið fyrir
kaupi.
Nefndin liugsar sér kennslu á námskeið-
unum eitthvað svipað Jrví, sem að ofan
greinir, en tilhögun mun þó ekki að fullu
ákveðin fyrr en frk. Valborg Sigurðardóttir
kemur heim frá Ameríku núna í vor. Hún
hefur stundað nám í uppeldis- og sálarfræði
8
MELKORKA