Melkorka - 01.05.1946, Side 21
ennþá 400 þúsund andfasistar og sýndi það
meðal annars, að fasisminn væri ekki upp-
rættur, þó að styrjöldinni væri lokið.
Fjöldi mála var tekinn fyrir á þinginu,
en aðalmálin voru baráttan gegn fasisman-
um og fyrir heimsfriðnum, aðstaða kvenna
í fjárhags- og atvinnumálum og ákveðin
krafa um sömu laun fyrir sömu vinnu.
Þriðja aðalumræðuefni fundarins var börn-
in og barnauppeldi. Fulltrúinn frá Júgó-
slavíu, frú Milochevitch, sagði frá því, að í
lendi hennar hefðu 1 milljón 685 þúsund
konur og börn farizt í styrjöldinni, og af
þeim börnum, sem eftir lifðu, væru nærri
100% berklasmituð. Fundurinn lagði einn-
ig mikla áherzlu á að treysta vináttusam-
bönd milli kvenna um allan heim og glæða
skilning þeirra á því, hvílíkt afl alþjóðasam-
tök kvenna eru í baráttunni fyrir nýjum og
betri heimi, og hve djúptæk áhrif þau geta
haft á stjórnmálin á alþjóðlegum vettvangi.
Einn fulltrúanna komst svo að orði, að kon-
urnar væru byrjaðar að mynda sterkan
hring kringum jörðina og liver og ein kona
gæti hjálpað til, að þessi hringur yrði stærri
og sterkari og órjúfanlegur.
Þ. V.
KATHE KOLLWITZ
Fregnir haí'a borizt um það, að hin fræga
þýzka listakona Káthe Kolhvitz hafi dáið úr
hungri í grennd við Dresden 72 ára gömul.
Nafn þessarar listakonu er þekkt um all-
an hinn menntaða lieim. Myndir hennar og
teikningar voru þung ádeila á’hið óréttláta
og miskunnarlausa auð-
valdsskipulag, og með list
sinni reyndi hún að opna
augu samtíðar sinnar fyrir
böli fátæktar, atvinnuleysis
og styrjaldar. Hún var því
þyrnir í augum alls aftur-
halds, og þegar nazisminn
komst á í Þýzkalandi, voru
öll verk hennar, þau sem
náðist í, brennd, og hún
sjálf varð að fara huldu
höfði. Öll stríðsárin hefur
lítið sem ekkert frétzt af
lienni, en nú hefur ekki
alls fyrir löngu þessi fregn
borizt um liinn sorglega
dauðdaga hennar. En verk
Franskar konur ganga fylktu li&i undir sigurbogann i París
MELKORKA
17