Melkorka - 01.05.1946, Page 22
Blaðsöluhonan (teikning eftir Kathe Kolíwitz)
Kathe Kollwitz munu halda áfram að lifa
sem þungur áfellisdómur á þjóðfélagsskipu-
lag, er hrindir þjóðunum út í styrjaldir,
liungur og fasisma.
Þ. V.
FULLTRÚAFUNDUR
KVENNA FRÁ NORÐURLÖNDUM
Dagana 22.-25. febrúar 1946 var lialdið
norrænt kvennamót í Kaupmannahöfn, með
fulltrúum frá öllum Norðurlöndum. Fund-
urinn var haldinn þessa daga í tilefni af því,
að Danska kvenfélagasambandið var um það
leyti 75 ára gamalt.
Á fundinum mætti, sem fulltrúi frá Kven-
félagi íslands, frú Sigríður Magnússon. —
Alls konar mál, sem varða réttindi konunn-
ar í þjóðfélaginu, voru rædd á þinginu, m.
a. hvernig aljrjóðleg samvinna yrði sem bezt
sköpuð milli allra kvenna í heiminum.
Butrt með hjónabandssektir
Eflir Rannveigu Kristjánsdóttur
Fljónabandið er talið eitt af mikilvæg-
ustu stofnunum þjóðfélagsins og stundum
jafnvel heilög stofnun, og þó liggur við því
drjúg sekt að gifta sig, ef bæði maðurinn og
konan hafa launaða atvinnu. Það er ekki
heldur látið nægja að sekta þessi fáráðu lijri
í eitt skipti, heldur verða þau að greiða
sömu sektina ár eftir ár, eða svo lengi sem
konan heldur atvinnu sinni.
Lesandi góður, þú lieldur líklega að ég
sé að gera að garnni mínu, en það er langt
frá því. Það er svo einkennilegt, að um leið
og konan er komin í það heilaga, hættir hún
að vera sjálfstæður skattþegn og tekjum
hennar er slett ofan á það sem eiginmann-
inum hefur tekizt að erja saman. En við
þessa aðferð yfirvaldanna komast hjónin í
miklu hærri skattstiga og útsvarsstiga. Gjöld
þeirra verða því mun hærri en þau mundu
verða, ef lagt væri á tekjurnar sitt í hvoru
lagi.
Dæmi: Karlmaður, sem liefur 18000 kr.
í árstekjur greiðir skatt og útsvar samanlagt
kr. 2992. Kona, sem hel'ur 15000 kr. árs-
tekjur greiðir samanlagt kr. 2012. Saman-
lögð útgjöld þessara einstaklinga verða þá
kr. 5004. En gangi þau í hjónaband verða
gjöld þeirra 7203 krónur. Hin árlega sekt
fyrir að hafa álpast i heilagt hjónaband verð-
ur því 2199 krónur
Nú er mjög erlitt að sjá, hvaða fjárhags-
legan hagnað þessir tveir einstaklingar hafa
af Jrví að rugla sarnan reitunum. Þau þurfa
jafn mikið að borða eftir sem áður, því
fæstir geta til lengdar lifað á ástinni ein-
tómri. Þau þurfa oftast að leggja í töluverð-
an kostnað til Jress að koma á fót heimili,
Jtví ekki Jjykir sæma annað en þau eigi eitt-
18
MELKORKA