Melkorka - 01.11.1955, Blaðsíða 21
l’OTTALEPI’AR
KARLMANNSTREFILL
Uni 150 gr. meðalgróft ullargarn (13 lykkjur í munstri
mælist 5 sm), prjónar nr. 3.
Munstur: 1 pr.: 2 r, 1 br, endurtakið frá“, endið á
5r. 2. pr.: 1 r, „3 br, 3 r, endurtakið frá“, endið á 3 br,
1 r. 3. pr.: 2 br, „1 r, 5 br, endurtakið frá“, endið á 1 r,
2 br.
Fitjið upp 89 lykkjur og prjónið munstrið um 110 sm,
endið á 3. prjón munstursins. Fellið af. í kögur eru
notaðir 15 sm spottar, en tveir eru hnýttir í aðra hverja
lykkju á báðum endum trefilsins.
Sama munstur má nota á fingravettlinga. Athugið að
lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 6, og munstrið
verður:
1. pr.: „5 r, 1 br.“ 2. pr.: 1 br, „3 r, 3br“, endið á 3 r,
2 br. 3. pr.: 2 br, „1 r, 5 br,“ endið á 1 r, 3 br. 4. pr„
„5 br, 1 r." 5. pr.: 1 r, „3 br, 3 r," endið á 3 br, 2 r.
6. pr.: 2 r, „1 br, 5 r," endið á 1 br, 3 r.
í tuskupokanum er vafalaust eitthvert efni sem nota
má í þessa pottaleppa. Það þarf að nota tvennskonar
efni, t. d. rósótt og einlitt, senr fer vel með hinu rósótta,
og auk þess dálítið flónel eða því unr líkt í fóður.
Fyrst verður að teikna sniðið í eðlilegri stærð, en það
er gert með því að nota rúðaðan pappír, þar senr rúðan
er 1 snr á hverja hlið, og teikna sniðið þar í sanra hlut-
falli og á myndinni. Kringlan er t. d. sniðin úr einlitu
efni, tvisvar fyrir hvern lepp. Geirarnir eiga að vera
tvisvar sinnunr sex úr rósótta efninu. Sex og sex geirar
eru nú saumaðir saman hverjir um sína kringlu, eins og
krónublöðin í blónri. Úr flóneli eða öðru þykku efni er
sniðið fóður í heilu lagi. Seinast eru þessi þrjú stykki
(„rósastykki", fóður og „rósastykki") sett saman með því
að brydda þau með skábandi úr einlita efninu og hanki
saunraður í.
í JÓLATRÉSPOKANN
DÖÐLU-KONFEKT
11/2 bolli púðursykur 125—150 gr. döðlur
t/2 bolli mjólk Möndlur
Púðursykri og mjólk blandað saman og soðið við
frekar hægan hita, þar til það er orðið svo þykkt, að það
megi móta úr því, setji maður svolítið ofan f kalt vatn.
Þá er döðlunum, sem eru smátt skornar, blandað saman
við og soðið i 3—4 mín. og hrært í viðstöðulaust á með-
an. Deigið sett á blautan bakka eða bretti, flatt svolítið
út og möndlunum stráð yfir. — Þegar það er byrjað að
storkna er það mótað í sívalar lengjur með deigum
höndum. Lengjunum er svo velt upp úr kókósmjöli eða
söxuðum möndlum og skorið í ræmur eða sneiðar.
ÁJÓLABORÐIÐ
KONFEKTKAKA
2 heil egg eru þeytt vel með 3]/2 kúptri matskeið af
sykri, 50 gr kakó og 1 teskeið af kaffidufti. 250 gr. jurta-
feiti er brædd og kæld, og gætilega hrærð út í eggin. Nú
lætur maður alls konar góðgæti í deigið, hakkaðar rús-
ínur, gráfíkjur, döðlur, súkkat, sultaðan appelsínubörk,
hnetur o. s. frv. Seinast cr deiginu hellt í smámót eða
grunnt kökumót, sem búið er að setja í smjörpappir.
Áður en kakan er alveg stíf má skreyta hana með hálf-
um möndlum.
G. B.
MFLKORKA
85