Bjarmi - 01.10.2003, Side 21
varðveitir og verndar dharma,
sem er eins konar alheimslögmál
er allir hlutir byggja á. Lakshima
heitir kona Visnu, gyðja fegurðar
og hamingju. Shiva er aftur á
móti tortímandinn, sá sem dansar
hrunadans heimsins. Hann er svo
hátt upp hafinn að oftast er hann
tilbeðinn gegnum shakti, sem er
samheiti á konum hans en um
leið á einhvern dularfullan hátt
líka hluti af honum. Guðirnir eiga
sér mörg birtingarform, eiginkon-
ur og börn. Öll eru þau tilbeðin.
Segja má aö eiginkonur og birt-
ingarform Visnu og Shiva séu
mikilvægari en þeir sjálfir í til-
beiðslunni. Birtingar Visnu á jörð-
unni kallast avatar en avatar þýö-
ir í raun „sá sem stígur niður". Á
Visnu sér 10 fræg birtingarform,
avatara og tengjast þeim öllum
fjölmargar sögur er rekja afrek
þeirra á jörðinni. Hver birting
Visnu er gjarnan tilbeðin sem
sjálfstæður guð ef þvi er að skip-
ta. Áttundi avatar Visnu er hinn
elskaði Krishna, sem var minnst á
fyrr í tengslum viö Bhagavat-
ghita. Konur Shiva eru margar og
kallaðar einu nafni Shakti eins og
fyrr segir. Þegar Shiva og Shakti
eru sýnd i samförum eru þau í
raun tákn fyrir þá reglu sem ríkir í
heiminum. Frægustu konur Shiva
eru þær Kali og Durga. Þær eru
báðar miklar fýrir sér. Kali þýðir
„hin svarta" og er birtingarform
Durgu, þannig að í raun eru þær
ein og hin sama. Kali er sérstak-
lega tilbeðin í Austur-lndlandi á
Bengalsvæöinu. Mikill átrúnaður
var á henni til forna og eitt af
höfuðmusterum hennar er aö
finna i borginni sem er kölluð
eftir henni og heitir Kaligath, eða
Kalkútta samkvæmt okkar mál-
skilningi. Upphaflega hefur Kalí
verið perónugervingur tigursins
og þá rennur okkur í grun skap
hennar og ofsi þegar illa liggur á
henni. Kali er talin vernda gegn
hvers konar hættum sem á leið
mannanna geta orðið og fórna
áhengendur hennar geitum og
blómum henni til heiðurs. En hún
á sér sínar svörtu hliðar. Margir
sértrúarhópar tengjast Kalí dýrk-
uninni, sumir allóhuggulegir.
Durga sjálf er hin eina sanna
móðurgyöja hindúa. Stundum er
hún grimm og ógnarleg. Henni
var fórnað bæði dýrum og mönn-
um á fyrri öldum rétt eins og Kali.
Árlega er haldin mikil hátið
Durgu til heiðurs er heitir Dur-
gapuja og fer hún fram í október
og nóvember, sérstaklega i Bengal
héraðinu þar sem Kalí dýrkunin er
hvað mest. Dúrga á sér mörg
birtingarform. Hún er t.d. dýrkuð
sem gyðjan Shitala, sú erverndar
gegn mislingum, og Manasa
verndar gegn snákabiti.
IV. Brahman/Atman
Upanisjadas þýðir í raun „hin
leynda þekking" og telja hindúar
Upanisjada ritin fela í sér leyndar
upplýsingar um heiminn og tilvist
hans. Þar greinir frá Brahman
sem er eins konar alheimsafl sem
býr að baki öllum hlutum og er
allt í öllu. Það mætti kalla þetta
afl guö, en ekki er um persónu-
legan guö aö ræða, þ.e. Brahman
er ekki persóna eða einstaklingur
sem mennirnir geta leitaö til eða
tjáð sig viö. Smátt og smátt þró-
ast sú hugmynd í Upanisjadarit-
unum að Brahman sé hinn raun-
verulegi guð á bak við alla guð-
ina, að þeir séu aðeins birting
hans. Og alveg eins og Brahman
er innsti kjarni tilverunnar, þá er
innsti kjarni einstaklinganna í
heiminum atman. Viö getum kall-
að það guösneistann. Guösneist-
inn, eða atman, lifir af líkams-
dauðann. Og það sem meira er að
Atman er það sama og Brahman,
sem aftur þýöir að kjarni al-
heimsins, Brahman, og kjarni ein-
staklingsins, atman, er einn og
sami hluturinn. Það segir sig
sjálft, því Brahman streymir i
gegnum alla hluti og þar með að
sjálfsögðu líka okkur mennina.
Yfir veröldinni hvílir blekkingar-
hula sem kallast maya. Blekkingin
felst í því að sá sem lifir i maya
horfir á heiminn í kringum sig og
heldur að heimurinn sé raunveru-
legur, að allt hiö efnislega sé
raunverulegt. En svo er ekki. Lífið
og tilveran öll eru ekkert annaö
en blekking og ímyndun. Aðeins
Brahman er raunverulegt og sam-
stæða þess, atman. Sá sem lifir i
blekkingunni ástundar bahkti, þaö
er hann þjónar guðunum og sýnir
þeim lotningu og ást sína. Það er
auðvitað gott og blessað en er
samt aðeins þátttaka i blekking-
unni. Sá sem skilur að heimurinn
er blekking, leitar út fyrir blekk-
inguna að hinu raunverulega og
reynir að sameinast því. Um leið
hafnar hann heiminum og öllu
hinu veraldlega, allri sköpuninni.
Hún er einskis virði og það sem í
henni gerist sömuleiðis. En hvaö
veldur þessari blekkingu sem við
köllum heiminn? Jú, það er fyrir-
bæri sem hindúar kalla Samsara.
Samsara er hverfuleiki alls lifsins.
Ekkert stendur í stað. Við fæð-
umst, eldumst og deyjum og okk-
Götumynd og hof-
turnar í Kamchee-
puran.
Æðstur guða Upanisjadaritanna er
Brahma. Brahma er eins konar sköp-
unarguð. Hann er upphaf alls sem við
sjáum, þeirrar blekkingar sem heimur-
inn er samkvæmt hindúismanum, en
svo fjarlægur að enginn leitar í raun
til hans í tilbeiðslu og fá hof eru hel-
guð honum.
ur tekst aldrei að halda i hina
hverfulu stund. Hverfulleikinn er
aftur rót alls ills. Hinn efnislegi
heimur er því heimur blekkinga
og breytinga, þjáninga og óguö-
leika. Hann er óæðri hinum and-
21