Bjarmi - 01.12.2004, Blaðsíða 8
Lilja Sólveig Kristjánsdóttir
Myndirnar eru
frá 100 ára
afmælishátíð
félagsins í
Breiðholtskirkju
6. nóvember sl.
Aldarafmæli
Kristniboðsfélags kvenna
í Reykjavík
Við skulum hverfa eina öid aftur
í tímann, til dagsins 9. nóvember
1904. Kiukkan erfimm síðdegis.
Prúðbúnar konur safnast saman í
húsinu Þingholtsstræti 11, heimili
ungu hjónanna Guðrúnar Lárus-
dóttur og Sigurbjörns Á. Glslasonar,
guðfræðings.
Eftirvænting liggur í loftinu. Það
á að stofna nýtt félag fyrir konur,
Trúboðsfélag kvenna. Hugmyndin er
sú, að það geti orðið til að kynna
kristniboðsstarf víðs vegar í heimin-
um og styrkja það á einhvern hátt.
Hvatinn
Llklega hafa flestar konurnar,
sem þarna komu saman, lítið vitað
um kristniboð, þó að nokkrir áhuga-
menn hefðu áður reynt að kynna
það bæði í ræðu og riti. Ein konan
vissi þó meira en hinar. Hún hafði
dvalið um tima í Danmörku. Fyrir
hvatningu tengdasonar síns, Sigur-
björns, kynntist hún þar samtökum
kristniboðsfélaga kvenna, sem
safnaði fé til að styrkja kristniboð á
Indlandi og víðar. Kona þessi hét
Kirstín Pétursdóttir. Hún var eigin-
kona sr. Lárusar Halldórssonar
fyrrverandi fríkirkjuprests og dóttir
Péturs Guðjohnsen organleikara, en
ólst upp hjá Pétri Péturssyni,
biskupi. Ásamt nánustu fjölskyldu
sinni stofnaði hún til þessa fundar
9. nóvember 1904. Þrjár systur
hennar og tvær dætur voru á meðal
stofnenda félagsins, systurnar Anna
Thoroddsen, Kristjana og Guðrún
Pétursdætur og dæturnar Guðrún
Lárusdóttir og Valgerður, sem þá
var enn I föðurhúsum. Hún giftist
síðar sr. Þorsteini Briem, en varð
því miður skammlif.
Allar þessar konur mótuðu starf
hins nýja félags árum saman.
Kirstín var lengi formaður þess,
síðan Anna Thoroddsen og loks
Guðrún Lárusdóttir til dánardægurs.
Þær sáu stundum sjálfar um fund-
arefni, en oftast voru þó karlmenn
fengnir til þess fyrstu árin. Voru það
sr. Lárus Halldórsson, á meðan
honum entist líf og heilsa, en
einkum sr. Friðrik Friðriksson, Bjami
Jónsson, kennari, sr. Jóhann
Þorkelsson, dómkirkjuprestur og sr.
Bjarni Jónsson. Langoftast var það
þó Sigurbjörn Á. Glslason, sem
lagði konunum lið.
Starfsemi félagsins
Auk funda félagsins hvatti Kirstín
Pétursdóttir félagskonur til að mæta
á samverustundum bæði í Mel-
stedshúsi og Þingholtsstræti 11, þar
8