Búnaðarrit - 01.01.1962, Blaðsíða 37
HAFSTEINN PÉTURSSON
33
verið slegnar brýnnr um. Hvað sem um það var, er hitt
víst, að þessi tilraun til að sameina íslenzka bætidur rann
út í sandinn, og lifíííja sjálfsagt margir þræðir til þess.
Verða þeir ekki raktir liér. Hafsteinn var með í þessum
saintökum frá öndverðu, er t. d. einn af aðalræðumönn-
um við fyrstu fundarsetninguna. Sá steinninn, sem þessi
sigling strandaði fyrst og fremst á, var að lians dómi auka-
atriði. Mun bann liafa þar lagt sig mjög fram um
að bera klæði á vopn, enda sá báttur lians löngum, þegar
í odda skarst. En þessi deila varð’ að sjálfsögðu ekki ein
um það, að á skerjum varð steytt. En þó svo tækist til þar,
er trúlegt, að þessi breyfing liafi orðið til þess að auð-
velda stofnun Stéttarsambands bænda, 10 árum eftir að
landssambandið var stofnað. En svo vel liefur tekizt sigl-
ing Stéttarsambandsins til þessa, að það liefur flotið fram
hjá skerjunum, sem landssambandið steytli á.
Hafsteinn tók líka þátt í stofnun Stéttarsambands
bænda, og átti sæti á fundum þess frá öndverðu til ævi-
loka. Þar sá liann rætast þær vonir, sem brugðust þegar
landssambandið losnaði úr reipunum, ef það er þá rétt
að telja, að reipin bafi nokkru sinni á það komizt. Stétt-
arsambandið er orðin traust stofnun, sem gagnmerku lilut-
verki hefur gegnt og gegnir. Hafsteinn vann þar beils-
liugar að lausn þess vanda, er við því borfði bvert sinn,
]>ó þess verði ekki vart, að hann Iiafi gerzt þar liöfði
bærri en samferðamennirnir, svo sem liann reyndist víða
annars staðar, enda við stofnun þess kominn drjúgum af
léttasta skeiði, og því teknir að slævast þeir eldarnir, er
bezt loguðu undir hugsjónum bans áður.
Á jóladaginn 1933 gekk Hafsteinn að eiga frændkonu
sína Guðrúnu Ingibjörgu Björnsdóttur, Stefánssonar síð-
ast bónda á Móbergi. Móðir Guðrúnar og kona Björns
var Sigurbjörg Pétursdóttur, liálfsystir Péturs á Gunn-
8teinsstöðum. Hlutverk lnismæðra er oft torrakið til róta,
enda kemur margt til. Staða kvenna, er sæti bafa tekið
IIÚNAnAllltlT 3