Búnaðarrit - 01.01.1962, Page 46
42
BÚNAÐARRIT
14. Erna Erlendsdóttir, skrifstofumær, hefur unnið á
skrifstofu Vélasjóðs síðastliðið ár.
15. Gísli Kristjánsson, mag. art., er ritstjóri Freys, en
gegnir auk þess ýmsum fleiri störfum. Utgáfunefnd Freys
er skipuð þremur mönnum, er ritstjórinn getur leitað ráða
hjá um vandasöm atriði, er útgáfu blaðsins varða. Út-
gáfunefndina skipa: Einar Ólafsson, bóndi, Lækjar-
livammi, Pálmi Einarsson, landnámsstjóri, og Steingrím-
ur Steinþórsson. Gísli Kristjánsson annast útgáfu smá-
ritasafns félagsins. Eru komin út 37 slík rit. Sú útgáfa er
að miklu leyti stöðvuð vegna þess, að svo mjög liefur
verið dregið úr fjárveitingum til þeirrar útgáfu. Þessi
smárit liafa verið vinsæl og án efa gert mikið gagn. Verð-
ur því að vænta, að von bráðar takist að auka útgáfu
þessa aftur. Þá má og geta þess, að að því leyti sem Bf.
Isl. getur annazt leiðbeiningar um hæsnarækt, þá gerir
Gísli Kristjánsson það.
16. Ingólfur Þorsteinsson frá Langholti liefur starfað
á ráðningastofu landbúnaðarins og stjórnað lienni. Sú
skrifstofa starfar nú allt árið. En auk starfa þar, hefur
Ingólfur annazt prófarkalestur og fleiri störf, er til falla
á skrifstofum félagsins.
17. Eyvindur Jónsson, búreikningaráðunautur. Hann
stjórnar búreikningaskrifstofu ríkisins. Lagt er sérstakt
fé til hennar, samkvæmt ákvörðun Alþingis, en Búnað-
arfélag Islands annast stjórn hennar og eftirlit með störf-
um skrifstofunnar. Starfsemi þessi hefur því mjög verið
í sama liorfi og áður.
18. Sveinn Einarsson, veiðistjóri. Að því leyti er hér
um svipaða starfsemi að ræða og varðandi búreikninga-
skrifstofuna, að ríkið leggur fram fé til þess að reka og
stjórna skrifstofunni, en Búnaðarfélag Islands hefur
stjórn og eftirlit á hendi. Veiðistjóri vinnur að útrým-
ingu vargdýra í samvinnu við sveitastjórnir. Virðist all-
mikill árangur liafa náðst af því starfi, enda er Sveinn
áhugasamur og röskur við þetta. Má góðs af lionum