Búnaðarrit - 01.01.1962, Síða 146
142
BÚl'iAÐAR ItlT
hreppi, og til að geta það, þurfa þeir að vera vel valdir.
Munið það, sveitarstjórnarmenn, þegar þið farið að kjósa
forðagæzlumenn að afloknum sveitarstjórnarkosningum
í vor.
FóSurbirgSafélögin teljast nú 38. Þótt nú sé komið árið
1962, hafa einstaka formenn þeirra, eða eftirlitsmenn,
ekki sent skýrslur um árið 1959—1960, og eru því enn
eyður í þær upplýsingar, er skýrslurnar eiga að gefa.
Fyrsti dálkurinn sýnir tölu fjár á fóöri. Víðast hvar
hefur fénu fjölgað nokkuð, en á stöku stað hefur því
fækkað, og þá aðallega af því að félagsbundnum bænd-
um hefur fækkað.
Annar dálkur sýnir hve margir dilkar voru til að hausti
lijá mönnunum, sem áttu þá fjártölu, sem tilgreind er
í fyrsta dálki. Það kemur í 1 jós, þegar þessir tveir dálkar
eru athugaðir, að í sumum félögunum eru dilkarnir að
haustinu fleiri en allt féS, sem á fóSrum var. Fengu t. d.
Mývetningar 127, 134 og 132 dilka að liausti eftir liverjar
100 kindur, sem þeir liöfðu á fóðri. 1 26 af félögunum
eru dilkarnir að haustinu fleiri en féð, sem á fóðri var,
og í nokkrum þeirra ýmist aðeins fleiri eða færri eftir
áram, en í 10 félögum má lieita að þeir séu ávallt færri.
Hver álirif þetta liefur á arðsemi fjárins, má öllum ljóst
vera, því þó tvílembingar séu venjulega 2—3 kg léttari
en einlembingar. fæst ávallt meiri kjötþungi eftir tví-
lembu. Rétt er þó að benda á, að ærin, sem gengur með
tvö lömb, þarf nokkru meira fóður en hin, og hún þarf
að þyngjast meira síðustu vikurnar fyrir burðinn. Hún
þarf líka mikið meiri natni og nákvæmari hirðingu urn
burðinn, ef veðráttufar er ekki gott, en liinar, sem ein-
lembdar eru. Bóndi, sem ekki liefur nóg heyjaráS og ekki
treystir sér til aS liaja hirSinguna á ánum um burSinn
í lagi, á ekki aS leggja sig eftir aS fá margt tvílembt.
í 6. og 7. dálki er sýnt hvað þeir tveir bændur, sem
eiga flesta dilka og fæsta í hreppnum ár livert, eiga
marga dilka fyrir 100 fjár, sem þeir höfðu á fóðri. Árin