Búnaðarrit - 01.01.1962, Blaðsíða 365
IVAUTCRIPASYNINGAU
361
þörf á því að bæta byggingu kúastofnsins, sem var orSin
veik. Ekki virðist Ingjaldur þó ætla að’ verða megnúgur
þess að rétta malabyggingu eða bæta júgur- og spenalög-
un að ráði. Eru sumar dætur hans rangspenar, og full-
stutt er milli frarn- og afturspena. Mjöltun er þó yfir-
leitt góð, en sumar eldri kýrnar eru fastmjólkar.
Nf. HrútfirSinga, sem nær yfir innsta bluta Bæjar-
hrepps og Staðarhrepps, lióf nýlega starfsemi sína, en
erfiðlega liefur gengið að fá nógu marga bændur til að
halda afurðaskýrslur. Félagið sýndi ekki kýr að þessu
sinni, en naut þess, Surtur V75, lilaut II. verðlaun.
Yfirlit
Enn er nautgriparækt misjafnlega á vegi stödd á sýn-
ingarsvæðinu. Stærsta félagslega átakið befur átt sér stað
á starfssvæði Bsb. Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, þar
sem 6 nautgriparæktarfélög eru starfandi, og búfjárrækt-
arsamþykkt hefur verið sett. Þá hafa tengsl við kynbóta-
starf á vegum Bsb. Borgarfjarðar verið aukin með stofn-
un dreifingarstöðvar á Snæfellsnesi fyrir nautasæði frá
sæðingarstöðinni á Hvanneyri, svo sem áður er að vikið.
Er ekki ólíklegt, að Dalamenn muni, áður en langt urn
líður, fara inn á þá braut, að vinna að kynbótum naut-
gripastofns síns á svipaðan hátt. I Dalasýslu voru að vísu
engar nautgripasýningar haldnar, þar sem engin félags-
starfsemi liefur verið þar um nautgriparækt, en nokkru
eftir að sýningum lauk, barst Búnaðarfélagi Islands ósk
þess efnis, að staðfest yrðu lög nokkurra nautgriparæktar-
félaga, sem stofnuð höfðu verið í sýslunni á árinu.
Það, sem ýtir undir vaxandi félagsstarfsemi í nautgripa-
ræktarmálum á Vesturlandi, er aukin mjólkursala á
svæðinu, sem sýnt er, að muni enu vaxa að marki á næstu
árum með stofmin mjólkurbúa víðs vegar um það. Nú
þegar er ýmist byrjað á byggingarframkvæmdum eða þær
ákveðnar í Grafarnesi, Búðardal, Reykliólum, Patreks-