Búnaðarrit - 01.01.1962, Blaðsíða 368
364
BÚNAÐARRIT
voru hníflóttar, en liinar 12 alkollóttar. Þessar systur
eru stórar, þroskamiklar, hraustlegar kýr, ágætar í fóðr-
un. Þær hafa þykka húð, ágæta yfirlínu, útlögur og hol-
dýpt, vel lagaðar malir, fremur sterklega fótstöðu (þó út-
skeifar), og júgur eru vel upp borin og falla vel saman
eftir mjaltir. Þrjár þeirra liöfðu allt of stutt bil milli
fram- og afturspena. Ein Iiafði dvergspena framan á aft-
urspena, og önnur var með millispena. Mjöltun var góð.
Fyrir byggingu hlutu þessar kvígur að mcðaltali 75.2 stig,
og meðalbrjóstummál var 175 cm.
Afkvæmarannsókn var ekki lokið, þegar sýningin var
haldin, en fyrir lágu gögn um afköst kvígnanna fyrstu
250 dagana eftir burð að 1. kálfi. Höfðu þær að meðaltali
komizt í 10.8 kg liæsta dagnyt og mjólkað 2011 kg með
4.01% feitri rnjólk, þ. e. 8034 fe. Ákvörðun um I. verð-
launa viðurkenningu var frestað, unz 1. mjólkurskeiði
lyki, en eindregið var mælt með því, að nautið, sem orðið
er stórfallegt, yrði látið lifa áfram. Nautið hefur breytzt
frá lýsingu á nautgripasýningu 1960 að því leyti, að út-
lögur eru nú miklar og malir bafa þroskazt svo, að þær
mega teljast vel lagaðar, og fótstaða hefur batnað.
3. Randi N125, sonur Brands N51 og Skratttu 15 í
Ilreiðarsstaðakoti í Svarfaðardal, var sýndur ásamt 16
dætrum sínum Jtar í sveit. Af þeim voru 8 rauðar og rauð-
skjöldóttar, 4 brandskjöldóttar, 3 kolóttar og kolskjöld-
óttar og 1 svartskjöldótt. Tvær voru hníflóttar, en hinar
14 alkollóttar. Þessar systur hafa geðslegan svip, frem-
ur mjúka húð, góða yfirlínu, mikið bolrými og dýpt.
Flestar hafa vel lagaðar malir og góða fótstöðu. Júgur-
stærð er misjöfn, sumar með rýmismikil júgur, en þau eru
yfirleitt vel löguð og spenasetning sæmileg. Ein kvígnanna
var með 2 aukagöt á spena. Mjöltun er góð, nema livað
tvær kvígur voru seigmjólkar. Þetta eru vel vaxnar,
hnelhiar kýr, sem svipar að Jrví leyti til föðursystra
sinna, Brandsdætra. Fyrir byggingu hlutu Jiær að tneðal-
tali 76.0 stig. Meðalbrjóstummál var 171 cm.