Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 94
90
BÚNAÐARRIT
Nautgriparæktarráðunauturinn.
Þar sem starfsskýrsla mín þykir svo löng, að ekki
þykir gerlegt að hafa lokið prentun hennar fyrir Bún-
aðarþing, er ég beðinn að gefa stutta skýrslu, sem
komi í hennar stað í bili. Þetta verður ekki gert
nema að litlu leyti, og þá frá þvi skýrt, að sýn-
ingar voru haldnar á Suðvesturlandi og Norður-
landi. Sókn til þeirra var misjöfn, eins og geng-
ur. Hvaða gripir voru sýndir, sem fengu það há
verðlaun, að menn geti vænst þess að undan þeim
komi kynbótaskepnur, er sagt í skýrslunni, sem vænt-
anlega vinnst tími til að prenta í næsta Búnaðarriti,
og verða menn að biða eftir útkomu þess, með að fá
að vita, hvert beri helzt að leita til að fá vel ætt-
aða lífkálfa. Auk þess sem þar eru taldar þær kýr,
sem fengu fyrstu verðlaun, eru þær ættl'ærðar noklcuð,
og sagt frá hvernig þær hafa reynst hin síðari ár.
Öll naut, sem fengu önnur verðlaun, eru ættfærð og
talin upp í skýrslunni, og ættir þeirra raktar nokkuð,
svo og sögð reynsla á mæðrum þeirra og ömmum. En
þetta eru margar tölur, og þær er seinlegt að setja.
Þá er í skýrslunni sagt frá vexti og viðgangi naut-
griparæktarfélaganna árin 1946 og 1947. Gefnar upp-
lýsingar um, hvernig meðalfullmjólkakýrin í hverju
félagi hefur reynst, og hvernig sú bezta hefur verið
og hver hún sé. Oft eru það sömu kýrnar og taldar
voru í bókinni „beztu kýr“, eða einhver þeirra, sem
hlotið hefur fyrstu verðlaun og því áður talin, ýmist
í skýrslunni sjálfri, eða þá í skýrslum mínum áður.
Á árinu 1947 var stofnað samband meðal nautgripa-
ræktarfél. í Borgarfj,- og Mýrasýslu, og um leið. voru
stofnuð félög í nokkrum hreppum, sem félög voru ekki
í áður. Starfsemi þessi er þó ekki komin í fast form,
og ekki er þátttaka í henni orðin almenn enn. Naut-
J