Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 167
B Ú N A Ð A 11 R I T
163
næsta sumri, sem viðbót við þann heildarsamning,
sem gerður var s. 1. sumar.
Um starf okkar í Póllandi vísa ég til þeirrar skýrslu,
sem við sendum atvinnumálaráðherra eftir heimkom-
una í fyrra, og er hvin á þessa leið:
„Við undirritaðir höfum nú dvalið á yðar vegum i
Póllandi, herra ráðherra, í rúma þrjá mánuði, til að
vinna að sölu íslenzkra hesta þar.
Með bréfi þessu viljum við gefa yður stutta skýrslu
um starf okkar og árangur þess.
Við komum til Varsjá þ. 24. júni og fóruxn þegar
á næsta degi í viðskiptamálaráðuneytið, og fengum
þar viðtal við hr. Nowicki, undirdeildarstjóra inn-
flutningsdeildar ráðuneytisins, sem var þá í stað dr.
Gall, aðaldeildarstjórans, sem var fjarverandi. Nowicki
tók okkur mjög vel, og vorum við á nokkrum fundum
ineð honum og aðstoðarmönnum lians.
A þessum fundum kom skýrt í ljós, að Pólverjar
hafa mikinn áhuga fyrir viðskiptum við ísland al-
mennt. Við vorum mikið spurðir um íslenzkar útflutn-
ingsvörur og hvaða framleiðsluvörur Pólverja íslend-
ingar myndu helzt geta keypt, þvi Nowicki sagði okk-
ur, að viðskipti milli landanna yrðu aðallega að byggj-
ast á vöruskiptagrundvelli. Hann sagði okkur einnig,
að vegna þess, hve framleiðslutæki Pólverja væru enn
þá lömuð eftir styrjöldina, og vegria þegar gerðra við-
skiptasamninga og skuldbindinga Pólverja, sérstak-
lega um sölu kola, í framtíðinni, þá mundu samningar
ganga greiðlegar, ef liægt yrði að veita Pólverjum
gjaldfrest með greiðslu sumra vörutegunda, og af
„princip“-ástæðum væru hross eixx þeirra. Þjóðir þær,
sem hafa selt Pólverjum hross (Danmörk, Svíþjóð,
Noregur og Belgía), hafa yfirleitt veitt þeim þriggja
til fjögurra ára gjaldfrest.
Nowicki sagði okkur, að Pólverjar hefðu mikinn á-
huga fyrir síldarlýsi frá íslandi og' fleiri lýsistegund-
L