Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 185
BÚNAÐARRIT
181
Ráðningarstofa landbúnaðarins
árin 1947 og 1948.
Búnaðarfélag íslands hefur 2 s. I. ár, eins og áður,
haft opna ráðningarstofu fyrir landbúnaðinn, og hefur
hún bæði árin starfað frá síðustu helgi í aprílmánuði
og aðeins fram yfir lok júlímánaðar. Má því telja að
starfstími hennar sé mánuðirnir maí, júní og júlí.
Bæði árin hefur liún verið í sambandi við Vinnu-
miðlunarskrifstofuna í Reykjavík, í Alþýðuhúsinu á
Hverfisgötu 8—10, og notið þar góðrar sambúðar eins
og áður.
Fyrra árið var Metúsalem Stefánsson einn starfs-
maður ráðningarstofunnar, en síðara árið var með
honurn — eins og áður hafði verið — Magnús Guð-
mundsson, fyrrum bóndi á Skörðum. — Fyrra árið
var hann bundinn störfum við landbúnaðarsýninguna
í Reykjavík. Eftir fráfall Páls G. Þormar, forstjóra
skinnasölu L. R. í., varð M. S. meira en áður bundinn
störfum þar, og vann þá litið á ráðningarstofunni eftir
hádegi árin 1947 og 1948.
Þegar ráðningarstofan lióf starfsemi sína, var það
l»æði árin tilkynnt í útvarpi og blöðum. Voru þá bænd-
ur áminntir um að gefa sem gleggstar upplýsingar um
óskir sínar og þari'ir, svo og að benda á umboðsmenn,
búsetta í Reykjavík, er tækju að sér að liafa milli-
göngu, fyrir þeirra hönd, við verkafólkið.
Þykir ástæða til að árétta þetta hér, til athugunar
fyrir bændur eftirleiðis, því að reynslan hefur sýnt,
að meslu máli skiptir, um úrlausnir fyrir milligöngu
ráðningarstofunnar, að upplýsingar, af hálfu bænda,
séu sem gleggstar um ástæður heimilisins og þarfir,
svo sem um tölu heimilisfólks, húsakynni, heimilis-
þægindi, búvélakost, hvernig engjum er háttað, hver
verk kaupafólki eru lielzt ætluð, hvort kaupakonur
L