Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 170
166
BÚNAÐARRIT
en við töldum það algerlega óframkvæmanlegt, og féllu
þeir síðan frá þessu.
Þau íslenzku hross, sem við sáum í umhverfi War-
szawa, voru öll mjög ung, 4—5 vetra, og öll undir
meðalstærð þeirra hrossa, sem flutt voru út í fyrra
(1946). Þau voru einnig öll hjá bændum, sem bjuggu
á 4—6 ha. landi. Það hefur sýnt sig, að þau duga til
allrar vinnu á þessum hýlum, en þó þykir betra að
hafa annan hest með þeim til plæginga, en jarðvegur
á þessum slóðum er leirblönduð sandjörð. Allir
hestarnir höfðu verið mikið notaðir, flestir voru sæmi-
Iega fóðraðir, en nokkrir heldur illa. Þeir, sem fluttir
voru út þrevetrir i fyrra höfðu strax verið teknir til
brúkunar, og það, jafnhliða fremur slakri fóðrun, hef-
ur hindrað að þeir næðu æskilegum þroska.
Hestarnir þóttu allir auðtamdir, skapgóðir og vilj-
ugir, sterkir miðað við stærð, afar léttir á fóðrum, —
sem er mikið atriði í Póllandi nú, ■—■ vel hraustir og
höfðu áberandi betri fætur og hófa en flestir innfluttir
hestar, sem við sáum. Þessu síðasta atriði veittu sam-
ferðamenn okkar sérstaka athygli. Eina gagnrýnin,
sem þá kom fram á hestum okkar og ávallt síðar var
vegna stærðarinnar. Pólverjar eru tregir til að kaupa
hesta undir 52 t. (eða ca. 130 cm stgm.), að minnsta
kosti ekki við sama verði og þá stærri. Sú stærð hesta,
sem Pólverjar sækjast mest eftir, er um og yfir 140
cm (57—60 t.).
Eftir þessar athuganir vorum við kallaðir á fund
hr. Wytkowski og hr. Pisula í landbúnaðarráðuneyt-
inu, og báðu þeir okkur að leggja fram tillögur um
viðskiptin, og voru þær eins og hér segir:
„íslendingar selji Pólverjum 10—15 þúsund hross,
3—8 vetra, á næstu 5 árum. Stærð hrossanna verði
123—140 cm stgm., — meðalstærð ca. 130 cm. Hrossin
verði seld cif. (samkv. áður framkoinnu skilyrði Pól-
verja). Hrossin verði greidd í kolum. eða „equivalent“