Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 115
BÚNAÐARRIT
111
2. Smjörsamlögin.
Smjörsamlögin sem einu sinni voru 9 talsins eru nú
smált og smátt að týna tölunni. Á þessu tímabili hafa
starfað 6 smjörsamlög. Tvö á íelagssvæði Kaupfélags
Stykkishólms, tvö í Dalasvslu, eitt í Barðastrandar-
sýslu og eilt í S.-Þingeyjarsýslu. Smjörmagn það, sem
þau hafa móttekið, hefur farið minnkandi nú hin
síðustu ár. Stafar það af því, að árlega bæta mjólkur-
samlögin við sig' nýjum félagsmönnum, færa út við-
skiptasvæði sín og bitnar þetta auðvitað á smjörsam-
lögunum. Þannig er nú t. d. hafnir mjólkurflutningar
til Borgarness af öllu Snæfellsnesi sunnanverðu og úr
Dalasýslu.
Þess ber að gela, að mörg kaupfélög, er kaupa
heimatilbúið smjör af bændum, hafa reynt að inn-
leiða verkun á smjörinu, hvert á sínu svæði. Þannig
eru nú bændur víðast farnir að selja smjör sitt mótað
i ákveðnum þyngdum, t. d. % eða 1 kg pökkum.
Nokkur félög, hafa einnig tekið upp þann hátt, að
allt smjör sem þeim berst, er mótað og endurverkað
á kostnað kaupfélagsins. Eru hér ótviræð áhrif frá
smjörsamlagsstarfseminni, þótt ekki sé um skipu-
lagða starfsemi að ræða, svo sem ákveðinn móttöku-
dag, mat við móttöku o. 11.
Starfsemi smjörsamlaganna hel' ég ekki getað sinnt
sem skyldi. Hef t. d. aldrei heimsótt þau á árunum
3947 og 1948. Samt hef ég ofl haft samband við yfir-
menn þeirra, kaupfélagsstjórana, sem oft leita til mín,
ef þess gerist þörf. Störf mín hafa verið svo tímafrek
og bindandi, að ég hef ekki getað lagt jafn mikla rækt
við starfsemi smjörsamlaganna á þessum tveim ár-
um, eins og ég gat gert fyrslu starfsár mín lijá Bún-
aðarfélaginu. Slíkt er þó bagalegt, því enn þá vantar
mikið á, að heimasmjörið sé eins gott og það gæti
verið, og mikið starf er enn þá óunnið í þeim efnum.
L