Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 304
300
BÚNAÐARRIT
af pelsskinnum. Fyrir styrjöldina voru þó notuð 35—
50% af gærum sem pelsskinn, og þar af leiðandi sést
að hægt er að nota misjafnlega góðar gærur sem pels-
skinn. Pelsskinn eru líka notuð í svo mismunandi
framleiðslu, t. d. í fóðurpelsa, eru ekki gerðar háar
kröfur lil vörugæðanna. En í öllu falli er þýðingar-
mikið að skinnið sé fjaðurmagnað, teygjanlegt og
mjúkt. En aftur á móti þurfa þau skinn, sem nota
á í dömupelsa og kraga á kápur einnig að hafa liina
sérstöku lirokkinhærðu pelsull.
Með þessu lief ég viljað draga það fram, að finnska
féð, sem þó er kallað að framleiði pelsskinn, er ekki
neitt loðskinnakyn í líkingu við karakul, með sitt ull-
arlag eða önnur sérstök loðskinnafjárkyn, en mikill
hluti af l'innska fénu uppl'yllir þær kröfur, sem gerð-
ar eru lil loðskinna, þ. e. hrokkinhærð ull, mikill gljái
ullarinnar, lniðin þunn, og gefur fé þetta því oft fyrsta
ílokks loðskinn. Það er kunnara en frá þurfi að segja,
að það er hráefnið, sem hefur mesta þýðingu þegar
framleiða á pelsskinn, en mikla þýðingu hafa einnig
vinnuaðl'erðir og umhirða á skinnunum í verksmiðj-
unum. Vera má að ástæðan sé sú, að notlcun skinna-
vöru er mikil i Finnlandi, en einnig er sú ástæða, að
við höfum tiltölulega gott hráefni, og staðreynd er
það, að við liöfum umfangsmikinn loðskinnaiðnað.
í landinu eru stórar og góðar skinnaverksmiðjur, sem
framleiða verulega góð loðskinn. Þegar meðferðin á
liverri gæru, litur og klipping er í góðu lagi, sýnir
sig að verksmiðjurnar geta framleitt mjög góðar vör-
ur þegar liráefnið er gott.' En það eru ekki einungis
erlðaeiginleikar fjárins heldur einnig öll meðferð
skinnanna heima hjá framleiðendum, sem hefur xnikil
áhrif á gæði skinnanna. í fyrsta lagi er það, að klipp-
ingin hefur rnjög mikla þýðingu. Þegar við erum að
leiðbeina bændum um meðferð skinnanna, tökum við
fram að ullin eigi að vera 2.5—3.5 cm. Styttri má hún