Samtíðin - 01.03.1943, Blaðsíða 13

Samtíðin - 01.03.1943, Blaðsíða 13
SAMTlÐIN 9 stæða sé til að segja frá leikstarfi hennar i þessu sainþandi. Hún hefiu að undánförnu leildð lilutverk Unu i „Dansinum í Hruna“ hér i Reykja- vík, og mun það vera (53. lilutverkið, sein liún liefur farið nieð. Frk. Arn- dís er skynsöm og prýðilega menntuð kona, sem jafnan leikur hlutverk sín með næmleik og fágaðri hófsemi. Oss er hún enn i fersku minni sem frú Tahret i „Loganum lielga'4 eftir Somerset Maugham. Sýndi hún i þeim leilc það innsæi og þann mynd- ugleik, er minnti á það bezta, er vé- höfuð notið í leikhúsum erlendis. Annars hafa menn jafnan vænzt mikils af frk. Arndísi siðan veturinn 1925—’2(5, er hún valdi mikla athygli með leik sínum í „Gluggum" eftir Galsworthy. En eitt af þeim lilut- verkum, sem margir lelja, að hún hafi leikið af mikilli snilld, er frú Midget i „Á útleið“ eftir Sutton Vane. Vér hirtum hér nokkrar myndir af frk. Arndísi, en því næst gefum vér henni sjálfri orðið og tökum upp frásögn liennar um það, hvernig henni var innanbrjósts, er hún lék hlutverk sitt í „Sex verur leita höf- undar“ eftir Luigi Pirandello. Frásögn frk. Arndísar Björnsdóttur: „ðlér varð ekki svefnsamt næturn- ar á undan fyrstu sýningu á „Sex ver- ur leita höfundar“. Á síðustu æfing- unum spurði ég Indriða Waage livað eftir annað, hvort nokkurt vit væri fyi-ir mig að halda áfram. Hann sagði fátt, en þó skildi ég, að honum fannst ekki alveg vonlaust með mig. Það, sem píndi mig einna mest, var. að ég átti að hlæja „hlátri hinna for- Arndis Björnsdóttir. dæmdu'1 — ég hafði ekki hugmynd um, hvernig þeir lilæja. Ég reyndi að æfa mig, þegar ég hélt ég væri ein í liúsinu, en það endaði með þvi, að ein svstir mín, sem hafði leynzt einhvers staðar lieima, kom í hend- ingskasti upp stigann og spurði, livort ég liefði meitt mig mikið! Ég tók það ráð að sleppa lilátrinum og hað Pir- andello að afsaka allt saman. Tók í fvrsta sinn svefnlyf nóttina á undan sýningunni og vaknaði von- góð og róleg um morguninn. Þetta sálarástand liélzt svo, þangað til ég kom inn á leiksviðið. Þá þyrmdi yfir mig. Eg stóð þarna frammi fyrir öllu Jiessu fólki, sem heið eftir að skemmta sér, og á mér hvíldi sú skvlda, að koma því til að skilja þenn- an vesgling, sem. ég átti að sýna. Hjartað klifraði upp í liáls og liefur liklega ýtt á tunguna, því að hún varð alll í einu svo stór og þurr, að það var ekki hægt að nota hana til neins. Loks tóksl mér að koma henni í gang, og svo smábatnaði þetta, en ég' skalí

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.