Samtíðin - 01.03.1943, Qupperneq 32

Samtíðin - 01.03.1943, Qupperneq 32
28 SAMTÍÐIN sögu og fjórar viðamiklar ljóðabæk- ur og skipað sér fyrir löngu við lilið liinna snjöllustu skálda þjóðarinnar. En Jóhannes úr Kötlum lætur sér ekki nægja að vera mikið Ijóðskáld. Hann sendir nú á markaðinn stærð- ar sögu, sem hann liefur valið nafn- ið Verndarenglarnir. Með hinni nýju hók brýtur Jóhannes ónumið land. Hann hefur ekki gengið inn í lauf- fallinn skóg liðinna alda að leila sér efniviðar. Hann skrifar ekki lieldur nútímasögu í venjulegri merkingu þess orðs. Hann gengur feti framar og hyggir hið nýja skáldverk sitt á atburðum líðandi stundar, ritar það mitt í hringiðu dagsins, grípur tíð- indin jafnótt og þau gerast í kring- uin liann, sníður þau dálitið í hendi sér og fellir þau síðan inn í verkið. Sagan hefst um 10. maí 1940, þegar landið er hernumið, en lýkur þrem missirum síðar eða haustið 1941. Svið hennar er ýmist höfuðborgin eða sveitabær fyrir vestan, en á iþessum tveimur stöðum til skiptis gerast allir viðhurðirnir lengi fram bftir sögunni, unz hún hinzt ein- göngu við sveitina í sjö seinustu köflunum. Höfuðviðfangsefni hólc- arinnar er afstaða íslenzku þjóðar- innar til hernámsins og sarnbúð hennar við Iiið erlenda setulið, þar sem höfundurinn styðst mestmegn- is við raunverulega viðburði. Iiver verða afdrif hinna menningarlegu verðmæta þjóðarinnar og á hvern liátt geta þau bezt staðizt þessa ó- væntu prófraun? Hefur íslenz^ka þjóðin sýnt, að hún sé vandanum vaxin? Hefur liún kunnað að skilja, meta og vernda arf liðinna kynslóða? Ctvegum margskonar vörur frá Bandaríkjunum og Bretlandi, svo sem: Vélar Verkfæri Vefnaðarvörur . Pappírsvörur o. m. fl. Skrifstofa í New York 7 Water Street. Urnboðs- og heildverzlun Hamarshúsinu Tryggvagötu Reykjavík Sími 5012 Pósthólf 043 Borðið Fisk og sparið FISKJiÖLLIft Jón & Steingrímur Stmi 1240 (3 línur).)

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.