Samtíðin - 01.04.1943, Síða 19
SAMTÍÐIN
15
í stigvélunum hans, þegar hann
hreyfði sig.
En það dugar ekki fyrir menn
eins og okkur að vera hjátrúarfull-
ir, sagði ég'. — Ekki veit ég, hvernig
færi fyrir okkur, ef við tryðum á
drauga, eins og við erum nú oft al-
einir úti á vegunum á koldimmum
óveðursnóttum.
— Nei, sagði hann, -— nei, það
dygði ekki. Aldrei trúði ég á drauga.
Ég fór að hlæja.
— Ekki ég heldur, sagði ég. —
Aldrei verð ég var við þá, hvort sem
þeir eru til eða ekki.
Hann leit aftur á mig með jafn-
undarlegum mæðusvip og áður.
— Nei, sagði liann. — Þér trúið
ekki á drauga. Sumt fólk heldur,
að þeir séu ekki til. En það er öm-
urlegt fyrir ykkur, þessa vesalinga,
að eiga ekki aura fyrir næturgist-
ingu, svo að þið getið verið þar,
sem ekki er reimt.
— Það eru ekki draugarnir, held-
ur l)annsett peningaleysið, sem
heldur fvrir mér vöku, sagði ég. —
Ef ekki væri þetta árans auraleysi
og svo afskiptasemi mannfólksins,
þá væri nú ekki vandi að fá næt-
urgistingu nú á dögum.
Enn þá streymdi vatnið úr föt-
unum lians úl um allt gólfið.
— En góði maður, kallaði ég, —
gelið þér alls ekki þornað?
— Þornað? anzaði hann og rak
upp ldátur, sem liktist lióstahviðu.
— Þornað? Ég þorna aldrei ....
Ég og mínir líkar þornum aldrei,
livort sem það er þurrkur eða rign-
ing, vetur eða sumar. Sjáðu!
Hann stakk leirugum höndunum
upp að úlfliðum inn i eldinn, og
augu lians urðu tryllingsleg og skutu
gneistum.
Þá var mér nú nóg hoðið, og ég
þreif stígvélin mín og hljóp æpandi
út i náttmyrkrið.
OLDUM SAMAN litu menn þann-
ig á, að kaffijurtin væri illgresi.
En einn góðan veðurdag tók Tyrki
einn eftir þvi, að geitur hans, sem
átu kaffihaunir, urðu gáskafullar og
sér í lagi kátar hver við aðra. Hann
þurrkaði nú baunirnar og bjó til úr
þeim drykk. Flestir Tyrkir eru Mú-
hamedstrúarmenn og neyta þar af
leiðandi ekki áfengis í neinni mynd,
samkvæmt fyrirmælum Kóransins.
En þessi Tyrki og vinir hans upp-
götvuðu, að hinn nýi drykkur hressti
þá, dró mjög úr þreytutilfinningu
þeirra og hafði engar slæmar afleið-
ingar. Síðan hreiddist kaffidrykkja
smám saman út.
(Úr timaritinu Pharmacal Advance).
TF-\ EIR áskrifendur úti um land, sem enn
eiga ógreitt árgjald sitt fyrir 1943
(10 krónur) eru beðnir að senda það sem
allra fyrst í peningum eða póstávísun
til þess að spara póstkröfukostnað. Reyk-
víkingar. Greiðið Samtíðina í Bókabúð
Austurbæjar á Laugaveg 34, hjá Finni Ein-
arssyni, Austurstræti 1 eða hjá Jafet á
Bræðraborgarstíg 29 og sparið yður þar
með innheimtukostnað (2 kr.) og oss fyr-
irhöfn.
Sögu nýja segir fólk,
sem að þjálfar andann.
Bezt er að hafa blý í hólk
og borga fyrir handan.