Samtíðin - 01.07.1943, Síða 12

Samtíðin - 01.07.1943, Síða 12
8 SAMTÍÐIN 1922. En áður en því verki væri lokið, andaðist höfundur. Lýsing Thorodd- sens er og allmiklu minni en hann mun liafa liugsað sér i upphafi. Sakn- ar lesandinn margs, er liann blaðar í henni. Hún er einnig sýnilega mun minni en Jónas Hallgrímsson og fé- lagar lians höfðu hugsað sér á sínum tíma. í hana vantar t. d. allar staða- og héraðalýsingar og mestan hluta þjóðarlýsingarinnar. Þá er og hin almenna lýsing landsins orðin all- mjög úrelt, því að ekki verður því neitað, að þekkingunni á landinu og náttúru þess liefir þokað verulega á- leiðis á þeirri liálfu öld, sem brátt er liðin, siðan Thoroddsen lauk rann- sóknum sínum. Breytingar þær og byltingar, sem orðið liafa á þjóðlífi voru, eru og svo stói-felldar, að kalla má, að allar lýsingar i þeim efnum, sem orðnar eru 20—30 ára gamlar, séu nú úreltar nema sem sögulegar heimildir. Málunum er þvi svo kom- ið, að vér eigum ekkcrt fullkomið heimildarrit um lýsingu landsins eins og það er nú og svo langt sem þekking vor á því nær, lieldur er sá fróðleikur ýmist hvergi skráður eða hans er að leita víðsvegar i ritum og ritgerðum, sem oft eru torfengin. í öllu því flóði bóka, sem nú veltur yfir landið, má það furðu gegna, að menn skuli ekki hafa jafnan stórhug og meðlimir Bókmenntafélagsins úti í Raupmannahöfn höfðu árið 1838. Flestum, sem um þetta mál hugsa, er það þó fyllilega Ijóst, að aldrei hef- ir verið meiri þörf á slíku riti um land og þjóð en einmitt nú, og marg- ir viðurkenna, að það sé eigi vanza- laust, að ekkert skuli vera gert í þessu efni. Það stendur og svo á, að nú er að ýmsu leyti hentugur tími lil að hefjast handa um samningu l'ullkominnar íslandslýsingar. Mæl- ingu landsins er nýlega lokið, og mestur hluti uppdráttanna prentaður. Margt merkra rannsókna hefir verið gerl á ýmsum sviðum náttúrufræði landsins og langt er komið eða nær lokið útgáfu tveggja merkra rita um islenzka náttúrufræði, „The Botanyof Iceland“ og „Tlie Zoology of Iceland“. Veðurstofa hefir nú starfað hér all- lengi, og þannig mætti margt telja, sem stutt gæti verk þetta, en ekki var til, þegar Þorvaldur Thoroddsen samdi sin ágætu rit. íslandslýsing sú, er ég liugsa mér, að semja ætti og gefa út, ætti að vera þannig, að þar væri gefið yfirlit á ein- um stað um alla þá þekkingu, er vér höfum á náltúru landsins og lands- lagi i líkri umgerð og er í íslandslýs- ingu Þorvalds Thoroddsens. Þá vrði þar einnig' nákvæm lýsing einstakra héraða og merkisstaða. Það má furðu gegna, að hin eina lýsing, sem til er af sögustöðum landsins, skuli vera á dönsku og nú harla vandfengin. Þá yrði einnig lýsing á þjóðháttum, at- vinnulífi og öðru því, er þjóðina snertir eins og nú er og þó reist á sögulegum grundvelli. Mér er eigi unnt að gera þess ljósa grein, hversu stórt rit þetta mundi verða. Varla geri ég ráð fyrir, að það yrði minna en 15—20 bindi, hvert um 20 arkir. Því er ekki að neita, að hér er um stórfellt fyrirtæki að ræða, en svo virðist, að það ætti elcki að vera of- vaxið landsmönnum, ef miðað er bókaútgáfu siðustu ára.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.