Samtíðin - 01.07.1943, Qupperneq 18
14
SAMTÍÐIN
um' aftökur og aðrar ofbeldisráð-
stafanir, sem beitt hefir verið. Og
fréttirnar um hreysti og hugprýði
manna, sem heldur viklu deyja en
vægja fyrir rangsleitninni, vildn
„framar hlýða Guði en mönnum“.
Og aðrar slíkar helgar hetjusögur.
Ailt Iiefir þetta vakið fögnuð og
jnetnað í hugum þeirra, er kunna
að meta hetjulund og drengskap.
IJað Iiefir gengið skrugga um Nor-
eg, hver skruggan af annarri þessi
þrjú ár. Og með hverri nýrri
skruggu, sem yfir Noreg gekk, hafa
hjarlastrengir íslenzkra manna
hrærzt á ný.
En tilfinningar einar og samúð-
arorð nægja ekki. Noregssamskotin
frá íslandi verða að komast upp í
miljón króna að minnsta kosti. Þótt
það sé ekki mikið fé, munar þó
nokkuð um það, þegar þessi frænd-
þjóð fer að græða sár styrjaldar-
innar og hernámsins. Og henni er
með því vottað bróðurþel í verki
og framkvæmd og um leið treyst
þau bróðurbönd, sem aldrei mega
bresta. Rækjum nú í verki forna
frændsemi, svo sem góðum drengj-
um sæmir.
VI.
Eg vil engum getum um það leiða,
hvernig vér íslendingar liefðum þol-
að þá eldraun, sem norska þjóðin
hefir slaðizt svo glæsilega. Hver veit,
nema vér hefðum staðizl prófið það,
enda þótt vér virðumst ekki hafa
nógu sterk bein til að þola góða
daga. En eitt er víst: Dæmi norsku
þjóðarinnar, þetta skínandi for-
dæmi hugprýði ög manndóms, verð-
ur eitt hinna dýrustu verðmæta, sem
varðveitast munu í sögu þessarar
styrjaldar. En dýrmætast verður
það norsku þjóðinni sjálfri, þegar
hún hefir ekið vagni sínum heilum
heim, endurheimt land sitt til eign-
ar og umráða. Hún mun þá skilja
betur en nokkru sinni fyrr orð
Bj örnsons:
„Av bedrift sem ej fornyes,
föres rust pá folkeviljen;
evig ung má æren være,
og i kampe kun den födes.“
Nú stælist enn og skírist stálvilji
Norðmanna. Og heiður Noregs yng-
ist og endurfæðist í harðri baráttu,
bverri smáþjóð, sem frelsi sínu ann,
lil fyrirmyndar og hvatningar.
Hetjusaga Norðmanna þessi ár
mætti efla og styrkja i brjósti hverr-
ar smáþjóðar þá trú, sem nú er trú
norsku þjóðarinnar og styrkir liana
í baráttunni, þá trú, sem eitt skáld
hennar hefir orðað þannig, nú i eld-
rauninni:
„V/ overlever alt.“
RitaS 17. maí 1943.
Lagfæring.
Á bls. 3 í síðasta hefti hefur misprent-
azt 4. hefti, en á auðvitaS að vera 5. liefti,
enda stendur það framan á kápunni.
LEITIÐ UPPLÝSINGA UM VÁTRYGG-
INGAR HJÁ:
Nordisk Brandforsikring A/S
Aðalumboð á íslandi Vesturgötu 7. Reykja-
vík. Sími 3569. — Pósthólf 1013.