Samtíðin - 01.04.1944, Síða 17

Samtíðin - 01.04.1944, Síða 17
SAMTfÐIN 13 Stúlkan stokkroðnaði. Hún dró samanbögglaðan vasaklút upp úr töskunni sinni, snéri sér hálfvegis fiá mér og snýtti sér vandlega. Það undarlega var, að mér fundust orð stúlkunnai' alls elcki bera volt um neina léttúð. Hún liafði ekki talað um annað en að bún væri ef til vill reiðubúin til þess að verða sér úti um „vin“, sem „kærði sig um bana“, rétt eins og hér væri aðeins um hverja aðra atvinnu að ræða. Þetta var að vísu lakara en að vera sauma- stúlka, en samt sem áður nokkurs konar starf — eins konar þrautalend- ing. En nú var ekki laust við, að ég vrði hálfvandræðalegur. — Þér eigið þó ekki við mig? mælti ég í önugum ertnistón. Stúlkan roðnaði enn meira en áður. Hún kreisti vasaklútinn sinn milli fingranna og horfði niður á fæturna á sér. — Nei, nei!......Ekki átti ég nú eiginlega \áð það ....... Ég hélt kannske, að þér kynnuð að þekkja einhvern,.......að þér vilduð ef til vill vera svo góður og færa þetta í tal við einhvern af vinum yðar.“....... Þetta táknaði livorki meira né minna en það, að ég átti að gerast hér milligöngumaður og selja stúlku- tetrið einhverjum, sem kærði sig um hana. Það var augljóst, að hún gerði sér ekki fyllilega Ijóst, livað hér var um að ræða. Hún átti sér einskis úr- kosta, og í bili var þetta eina færa leiðin, sem hún eygði út úr ógöng- unum. Ég gat alls ekki hneyklazt á þessu, eins og allt var hér í garðinn búið, og það mundi hafa verið býsna hjá- kátlegt að fara að predika siðgæði fyrir þessum vesalings stúlkufáráðl- ingi. í þess stað snéri ég mér að fjár- málahlið málsins og sagði: — Gerið þér þetta ekki, stúlka mín. Það horgar sig ekki. Allir karlmenn eru staurblankir nú á dögum. Þeir hafa ekki einu sinni ráð á því að eiga sér „vinkonur“. Þessu svaraði stúlkan ofur hæ- versklega og án þess að líta upp: — En sex krónur á viku mundu nægja mér alveg fyrir öllum brýn- ustu lifsnauðsynjum. —- Hvað sögðuð þér? mælti ég undrandi, rétt eins og ég hefði alls ekki heyrt, hvað hún var að segja. — Sex krónur, sagði hún hærra, en þó ákaflega feimnislega. -— Hald- ið þér, að það væri ofmikið? — Nei, það veit hamingjan, en ætl- ið þér virkilega að koma mér til að trúa því, að nokkur maður geti lifað af sex krónum á viku! ? Þá sundurliðaði hún skýrt og skor- inort fyrir mér, hvernig hún treysti sér til að lifa sæmilegu lífi fyrir þessa fjárhæð og meira segja leggja viku- lega upp sem svaraði hálfri annarri krónu. Með hálfgerðri blvgðun varð mér hugsað til þess, að kvöldið áður hafði ég tapað í spilunum fjárliæð, sem samkvæmt þessu mundi liafa nægt þessari stúlku i sex mánuði. Ég skreiddist fram úr rúminu og fór að leita i öllum vösum minum. Þar fann ég samtals 15 krónur. Ég bauð stúlkunni 6 af þeim. 1 fyrstu neitaði hún að þiggja féð. Þá stakk ég krónunum í töskuna

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.