Samtíðin - 01.03.1948, Síða 28
24
SAMTÍÐIN
XVjjar norskar
bækur
Frá Gýldendal í Oslo hafa Sam-
tíðinni borizt eftirfarandi bækur:
FRANCIS BULL: HENRIK IB-
SENS PEER GYNT. DIKTNINGENS
TILBLIVELSE OG GRUNNTAN-
KER. Prófessor Bull skrifaði þessa
bók við hin örðugustu og ömurleg-
ustu skilyrði í fangabúðunum á Grini,
og er þetta þriðja Grini-bókin, sem
bann sendir frá sér. 1 ítarlegum inn-
gangi segir höf. sköpunarsögu bók-
arinnar, sem er til orðin sem fyrir-
lestrar lil þess að veita samföngum
bans langþráða fræðslu og andlega
hressing í þrengingum fangavistar-
innar, Bókin er bið ágætasta verk,
enda er höfundurinn einn hinn
fremsti Ibsenskönnuður Norðmanna.
Pétur Gautur kom fyrst út í Khöfn
5. nóv. 1867, og var þvi 80 ára, s. 1.
ár, er rit Bulls kom út. Leikritið er
öndvegisverk norskra bókmennta,
sambærilegt við það, sem Hamlet
Shakespeares er enskum bókmennt-
um og Faust Goethes þýzkum.
SYNN0VE CHRISTENSEN: MOR
MARIA. Með þessari hjartnæmu
skáldsögu um Maríu guðsmóður vann
hin unga norska skáldkona „hin
miklu norrænu bókmenntaverðlaun
1947“, er námu 25,000 sænskum
krónum. Synnove Christensen er
gift norska skáldinu Waldemar
Brögger. Hún er aðeins 28 ára göm-
ul. Þetta er þriðja bókin, sem hún
sendir frá sér. Frásögn sína byggir
hún að verulegu leyti á guðspjöll-
unum, en tengdafaðir hennar, próf.
Efnaluug
Reykjavíkur
Kemisk fatahreinsun
og- litun.
*
Laugaveg 34.
Reykjavík.
Sími 1300.
Símnefni: Efnalaug.
iituK kteiWÁuH,
cfutfupnAAuh.
Elzta og- stæi-sta efna-
laug landsins. — Sent
um allt land gegn
póstkröfu.
og nýlagnir
í verksmiðjur,
hús og skip.
*
H.F. SEGULL
Nýlendugötu 26.
Reykjavík. Sími 3309.