Samtíðin - 01.05.1951, Qupperneq 12

Samtíðin - 01.05.1951, Qupperneq 12
8 SAMTÍÐlN hinar myndarlegu fleytur, sem lágu þarna „í sköpun“. Þaðan fór norska hvalveiðaskipið „Thorshövdi“, heil risavaxin verksmiðja, enda stærsta skip, sem smíðað hefur verið hjá B & W, reynsluför sina 19. okt. 1948, og var þess atburðar víða minnzt. „Hafa ekki ýmsir athafnamestu menn dönsku þjóðarinnar komið við sögu B & W ?“ spurði ég C. A. Möller. „Þar til vil ég fyrst nefna stofn- anda firmans, Hans Heinrich Baum- garten vélsmið“, svaraði hann; „Carl Christian Burmeister, er átti fyrir- tækið á árunum 1846—72, var forseti þess 1872—90 og loks einn af for- stjórunum 1890—98; William Wain, eiganda firmans 1865-72 og forseta þess 1872—82. Fjöldi frægra manna úr fjármála- og athafnalífi dönsku þjóðarinnar hefur setið i stjórn fyrirtækisins á liðnum ánun, og læt ég i þvi sambandi nægja að nefna af handahófi nöfn þeirra C. F. Tietgens, G. A. Hagemanns, C. F. Jarls, M. Levys, L. P. Holmhlads, C. A. Olesens, Suensons, S. Gjersþes og Dessaus.“ „Hvernig vegnaði fyrirtækinu í heimsstyrjöldinni, eftir að Þjóðverjar höfðu hernumið Danmörku?“ Gleðisvipurmn á andliti Mþllers forstjóra hverfur skyndilega, og hann segir: „Ég vil i þvi sambandi aðeins svara þessu: Okkur tókst að varð- veita umráðarétt okkar yfir fyrir- tækinu í stríðinu, enda þótt oft og einatt væri mjög örðugt að verjast áleitni Þjóðverja i þeim efnum. Til þess að við yrðum ekki algerlega ofurliði bornir af þýzku hernáms- stjórninni, urðum við að draga mjög úr starfseminni. Þetta skýrist nokk- uð, þegar ég segi yður, að fyrir stríð unnu 7000 menn hjá B & W, en i striðslok ekki nema 3500. Núna vantar okkur starfsfólk í stórum stíl, því að nóg er að gera. Pantanir um ný skip streyma að utan úr heimi. 1 ársbyrjun 1950 lágu hér fyrir pant- anir um 22 skip, er öll áttu að vera með dieselmótorum af okkar gerð.“ „Iiefur ykkur líkað vel að vinna fyrir Eimskipafélag lslands?“ spurði ég forstjórann að lokum. Hann svaraði: „Á þá samvinnu hefur aldreil boríð neinn skugga^ Hún hefur ávallt vei’ið jafn ánægju- leg. Og ég vona, að Fossarnii*, sem hér hafa verið smíðaðir, verði Eim- sldp og alli’i íslenzku þjóðinni til hlessunar í nútíð og framtíð.“ LEIÐINNI utan af Ki’istjánshöfn inn í miðbæinn, var ég að liugsa um jxetta í’isavaxna fyi’irtæki hinnar dönsku smáþjóðar. —- 1 listasafni danska rikisins hafði ég fyrir skömmu veitt athygli geysistói’U málverki af starfinu í smiðju fyrir- tækisins einhvern tíma á 19 öld. Hvar sem B & W hafði borið á góma í lxópi Dana, höfðu menn orðið hátið- legir á svipinn og sagt eitthvað á þessa leið: „Burmeister & Wain er ekki einungis mesta iðnaðarfyrirtæki Danmerkui’, heldur einnig eitt hið fi-ægasta fyrirtæki veraldai’innar í sínum greinum“. En mér varð jxá alltaf hugsað heim til Islands, til alh’ar ónytjuðu orkunnar í fallvötn- um landsins okkar, sem við eigum fram yfir Danmörku, er verður að kaupa í’aforku frá öðrum löndunx.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.