Fréttablaðið - 24.12.2009, Side 49
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Íþróttamað-
ur ársins fyrir árið 2009 verður
útnefndur þriðjudaginn 5. janúar
næstkomandi en atkvæði í kjöri
Samtaka íþróttafréttamanna hafa
nú verið talin og fyrir liggur hvaða
tíu íþróttamenn urðu efstir.
Atkvæðagreiðsla félagsmanna í
Samtökum íþróttafréttamanna er
leynileg og setur hver félagsmað-
ur SÍ saman lista með nöfnum tíu
íþróttamanna sem honum þykja
hafa skarað fram úr á árinu.
Íþróttamaður ársins 2008, Ólaf-
ur Stefánsson (handbolti), kemst
nú á listann í ellefta sinn og setur
með því met því enginn hópíþrótta-
maður hefur komist oftar á list-
ann. Ólafur hefur þrisvar sinnum
verið kosinn íþróttamaður ársins
því hann var einnig valinn 2002
og 2003. Eiður Smári Guðjohnsen
(knattspyrna, 2004 og 2005) og
Guðjón Valur Sigurðsson (hand-
bolti, 2007) eru þeir einu á listan-
um auk Ólafs sem hafa verið kosn-
ir Íþróttamenn ársins.
Eiður Smári er á topp tíu listan-
um tíunda árið í röð og kemst þar
með í hóp þriggja kunnra kappa en
þeir Guðmundur Gíslason (sund,
fimmtán ár í röð frá 1957-1971),
Bjarni Friðriksson (júdó, ellefu
ár í röð frá 1982-1992) og Valbjörn
Þorláksson (frjálsar, tíu ár í röð
frá 1956-1965) náðu allir að vera á
topp tíu listanum í heilan áratug.
Jón Arnór Stefánsson (körfu-
bolti) getur einnig talist vera
reynslubolti á listanum en hann er
nú að komast á topp tíu listann í
sjöunda skiptið, þar af í þriðja árið
í röð. Guðjón Valur er á listanum
fimmta árið í röð, eða síðan hann
komst þangað fyrst árið 2005.
Fjórir nýliðar eru nú á topp tíu
listanum, þar af þrjár konur. Þetta
eru þau Björgvin Páll Gústavsson
(handbolti), Helena Sverrisdóttir
(körfubolti), Helga Margrét Þor-
steinsdóttir (frjálsar) og Hólmfríð-
ur Magnúsdóttir (knattspyrna).
Helena kemst nú á listann eftir að
hafa verið í ellefta sæti undanfarin
þrjú ár og Helga Margrét er fyrsti
frjálsíþróttamaðurinn í fimm ár til
þess að komast í hóp tíu bestu.
Þau Jakob Jóhann Sveinsson
(sund) og Þóra Björg Helgadóttir
(knattspyrna) komast nú bæði á
topp tíu listann eftir fjögurra ára
fjarveru en þau voru bæði síðast á
listanum fyrir árið 2005.
Þetta verður í 54. skiptið sem
Samtök íþróttafréttamanna velja
Íþróttamann ársins en jafnframt í
fjórða sinn sem sigurvegarinn fær
að lyfta styttunni frægu sem var
gefin til kjörsins árið 2006.
ooj@frettabladid.is ÞÓRA BJÖRG HELGADÓTTIR
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON
JAKOB JÓHANN
SVEINSSON
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON
HÓLMFRÍÐUR
MAGNÚSDÓTTIR
Ólafur á topp tíu í 11. sinn
Fjórir íþróttamenn eru í fyrsta sinn á topp tíu listanum í kjöri Samtaka íþrótta-
fréttamanna á Íþróttamanni ársins en kjörið verður gert opinbert 5. janúar.
HELGA MARGRÉT
ÞORSTEINSDÓTTIR
HELENA SVERRIS-
DÓTTIR
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2008 Ólafur
Stefánsson. FRÉTTABLAÐIÐ/XXXXXXX
ÓLAFUR STEFÁNSSON
ENGLAND Rafa Benitez, stjóri Liver-
pool, viðurkenndi í gær að liðið
yrði einfaldlega að vinna sigur
þegar það mætir Wolves á öðrum
degi jóla. Þá fara átta leikir fram í
ensku úrvalsdeildinni og svo tveir
á sunnudaginn.
Reyndar er veislunni ekki lokið
þar með. Strax á mánudaginn fara
svo fram sex leikir og haldið verð-
ur svo áfram á þriðju- og miðviku-
daginn. Það verður því leikið í
ensku úrvalsdeildinni fimm daga
í röð.
Liverpool tapaði fyrir Port-
smouth um síðustu helgi og er
nú í áttunda sæti deildarinnar.
Wolves er í tólfta sæti en Benit-
ez sagði ekkert annað en sigur
koma til greina hjá sínum mönn-
um. Hann sagðist einnig vongóð-
ur fyrir átökin fram undan í deild-
inni, þrátt fyrir allt sem á undan
hefur gengið.
„Síðustu 2-3 ár hefur okkur geng-
ið vel á síðari hluta tímabilsins og
því erum við fullir sjálfstrausts,“
sagði Benitez á blaðamannafundi í
gær. „Við höfum unnið marga leiki
í röð og höfum trú á að við getum
endurtekið þann leik nú ef leik-
menn sleppa við meiðsli.“
Chelsea tekur á móti Birm-
ingham á laugardaginn en þeir
Michael Essien, Nicolas Anelka
og Deco verða allir frá vegna
meiðsla. Daniel Sturridge verður
því í byrjunarliði Chelsea í fyrsta
sinn í deildarleik.
„Við höfum ekki spilað vel í síð-
ustu leikjum en ef við leggjum
okkur 100 prósent fram getum
við unnið,“ sagði Carlo Ancelotti,
stjóri Chelsea. - esá
Heil umferð á Englandi um jólahelgina:
Verðum að vinna
LEIKIR HELGARINNAR
Laugardagur, annar í jólum
Birmingham - Chelsea 12.45
Fulham - Tottenham 13.00
West Ham - Portsmouth 13.00
Burnley - Bolton 14.00
Manchester City - Stoke 15.00
Sunderland - Everton 15.00
Wigan - Blackburn 15.00
Liverpool - Wolves 17.30
Sunnudagur 27. desember
Arsenal - Aston Villa 13.30
Hull - Manchester United 16.00
RAFA BENITEZ Stjóri Liverpool hefur
mátt þola mikla gagnrýni á leiktíðinni.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FIMMTUDAGUR 24. desember 2009 25
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2010
Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á
íslensku, til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til
úthlutunar á síðari hluta árs 2010.
Verðlaun að upphæð 600 þúsund krónur verða veitt fyrir eitt handrit.
Þriggja manna dómnefnd metur verkin; Kolbrún Bergþórsdóttir formaður og Jón Óttar
Ragnarsson tilnefnd af menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og Ingibjörg
Haraldsdóttir tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands.
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann
ákveður. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi
þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhend-
ingu niður það ár. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum
dul nefni, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi.
Handrit berist í síðasta lagi 1. júní 2010
Utanáskrift:
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra
menningarmála, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Vesturgötu 1, 2.hæð,
101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs
s. 590 1520 og 590 1521.
Um leið og við þökkum fyrir samstarfi ð á árinu
sem er að líða óskum við landsmönnum öllum
gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári.
Ármúla 30 | 108 Reykjavík
Sími 560 1600 | www.borgun.is
Gleðilega hátíð
og farsælt nýtt ár