Samtíðin - 01.04.1955, Blaðsíða 11

Samtíðin - 01.04.1955, Blaðsíða 11
SAMTÍÐIN 7 vilja halda ljósa litarhættinum, og nefnist hann: „Antibrunissante“. Sumarandlitssnyrting á að vera mjög lítil. Bera skal örlítinn lit á kinnarnar og breiða hann út að gagnaugunum. Augnabrúnirnar séu bogadregnar með dálitlum hlykk. Fremst og til endanna eiga þær að vera mjóar, en breiðar um miðjuna, þar sem hlykkurinn er. Varaliturinn á að vera gljáandi. Til þess að koma í veg fyrir, að varaliturinn bráðni, þegar heitt er í veðri, og renni út fyrir varalínuna, er gott að púðra varirnar, áður en liturinn er borinn á þær. Gott ráð við of heitum kinnum er að kæla þær með baðmull vættri í „Skin Freshener“, þótt þær séu púðraðar. Bezta púðui', sem nú fæst og hefur alla kosti til að bera, nefnist Voile Invisible“ (Ósýnilega slæð- an) og er frá Elizabeth Arden. Stúlkan er hætt við þig JÓHANN skrifar: Freyja mín. Ég hef verið ástfanginn í ungri og fallegri stúlku í þrjú ár og ætlaði mér auðvitað að kvænast henni. En hvað skeður? Allt í einu hættir hún alveg við mig og tekur saman við samvizkulausan kvennabósa, sem ég er handviss um, að yfirgefur hana eftir nokkra mánuði. Það er nú hans aðferð, þegar hann hefur leikið sér að stúlkunum eins og honum gott þykir! Og þá gæti ég trúað, að stúlk- Vel klædd kona kaupir hattana hjá okkur. HATTAVERZLUN ÍSAFOLDAR H.F. Bára Sigurjónsdóttif, Austurstrætj 14. Sími 5222. an mín kæmi aftur til mín og vildi endurnýja kunningsskapinn. En á ég þá að taka hana í sátt eða ekki? Finnst þér, að ég ætti ef til vill að reyna að telja henni hughvarf nú þegar eða vara hana að minnsta kosti við flagaranum?“ Svar: Blessaður, láttu þér ekki til hugar koma að reyna að telja stúlkunni hughvarf, Jóhann minn. Það er alveg tilgangslaust. Ungar stúlkur eru ekki vanar að láta segja sér fyrir verkum í ástamálum. Það er auðvitað ósköp fallegt af þér að hugsa þér að taka stúlkuna í sátt, ef hún skyldi leita á náðir þínar seinna. En það gerir hún bara ekki. Hún er hætt við þig fyrir fullt og allt. Þess vegna er ekkert annað að gera en reyna að gleyma henni sem allra fyrst og fara svo í rólegheitum að hugsa þér fyrir konuefni í staðinn. Það er, sem hetur fer, nóg til í landinu af ágætum stúlkum, sem margar hverj- ar eru alls ekki frábitnar þvi að ganga í heilagt hjónaband. ic Það, sem hentar þér ♦ Perlur (ekta eða gervi), dem- antar (ekta, ef þú átt þá), glitrandi steinar. ♦ Sundholur í einu lagi. ♦ Stuttklippt hár (samt ekki of stutt), en ávallt vel snyrt og gljáandi. Mjúkur litblær á hárinu. ♦ Glæsileg og kvenleg sportföt. ♦ Síðbuxur (slacks), ef þú ert grönn, annars ekki. ♦ Púður og krem í mjúkum, björtum litum (pastel),

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.