Samtíðin - 01.04.1955, Qupperneq 12

Samtíðin - 01.04.1955, Qupperneq 12
8 SAMTÍÐIN ■jr Það, sem forðast ber ♦ Stuttar belgerniar. ♦ Taglgreiðsla á hári. ♦ Ofstuttar neglur. ♦ Stuttsokkar (hosur). ♦ Stuttbuxur. ♦ Slaufur í hárinu. Ulreittar JJ. (jeirdat; Heitum a Skálholtskirkju SKÁLHOLT í Biskupstungum er nú á ný að ná tökum á hugum al- mennings hér á landi, einkum síðan rannsóknir fóru fram á staðnum síðastliðið sumar og j'msir fornir gripir fundust. Mun flestum finnast, að steinkista Páls biskups beri af þeim öllum. Nú eru allir sammála um, að end- urreisa beri hið forna biskupssetur, en hvar á að taka fé til þess? Þegar blöðin birta langa dálka af áheitum á Strandarkirkju, hefur mér dottið í hug, hvort það væri ekki í samræmi við hinn margprédikaða bróðurhug, að Strandarkirkja léði hinni fátæku, sunnlenzku systur sinni í Skálholti nokkra fjárhæð. Með því gæti hún hjálpað henni til að varpa af sér tötrunum. El' þessi hjálp fæst ekki, vil ég slinga upp á því, að landsmenn geri tilraun að heita á Skálholts- kirkju. Mætti vel fara svo, að lnin reyndist happasæl. Uc /ecjna ffo liér textann tía áilorana lirtum dœyurlatf mánaöarins PABBI KÝS MAMBÓ Texti: Guðmundur Sigurðsson. Sungið á TÓNIKA-hljómplötu af öskubuskum. Pabbi kýs Mambó, mamma kýs Mambó, bæði þau beygja sig, brosa og sveigja sig, hlæja og hneigja sig. Hæ! Pabbi kýs Mambó, mamma kýs Mambó, létt þeirra lundin er, leika þau stundum sér, fjör þeirra undur er. Æ! Alltáf má á þeim sjá ást og þrá ljómi af brá, dansinn þótt duni ótt. Pabbi mænir á mömmu, og mamma þá kyssir hann hljótt. Pabbi kýs Mambó, mamma kýs Mambó, kátt er í kringum þau, klappa og syngja þau, ánægjan yngir þau. Æ! Pabbi kýs Mambó, mamma kýs Mambó, dönsum ei rúmba og dönsum ei samba, því pabbi kýs Mambó í nótt. (Eftirprentun bönnuð). Hann: „Mér finnst endilega, að ég kannist við andlitið á yður síðan í gamla daga.“ Hún: „Óhugsandi, því þetta and- lit hef ég ekki liaft nema í tvo daga.“ ÍSLENZKAR KONUR. Lesið kvennaþætti Samtíðarinnar. Gerizt áskrifendur. Mun- ið: 10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr. Send- ið okkur áskriftarbeiðnina neðst á bls. 2. Kraftur hins sunnlenzka gróðurs býr í smjörinu og ostunum fró okkur. Mjólkurbú Flóamanna.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.