Fréttablaðið - 30.12.2009, Page 6

Fréttablaðið - 30.12.2009, Page 6
6 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR IÐNAÐUR Orkuþörf fyrirhugaðs gagnavers Verne Holdings gæti orðið meiri en 140 MW, miðað við athugasemdir við fjárfesting- arsamning ríkisins og fjögurra fyrirtækja, sem að framkvæmd- inni standa. Gagnaverið hefur verið til umræðu síðan á síðustu mánuðum ársins 2007. Þá var það kynnt sem 25 MW ver, sem gæti stækkað í 50 MW. Síðan hefur af og til verið rætt um 25 til 80 MW, en oftast um lægri töluna, 25 megavött. Heimildarmaður blaðsins, sem kom að gerð fjárfestingarsamn- ingsins, segir 140 megavatta orku- þörf þó í samræmi við fyrstu áætl- anir. 25 megavöttin hafi verið nefnd sem orkuþörf fyrsta áfanga. En áfangarnir verði hugsanlega fjór- ir, gangi vel. Óvíst sé nákvæmlega hversu mikla orku þurfi fyrir hina áfangana. Það fari eftir pöntunum viðskiptavina og tækniframförum. Verne hefur ekki tryggt sér orku umfram þessi títtnefndu 25 mega- vött. Þau skuldbatt Landsvirkj- un sig til að selja fyrirtækinu með þeim fyrirvara að virkjað yrði í Þjórsá, eins og blaðið greindi frá í mars 2008. Það var skýrt með því að Landsvirkjun ætti ekki aðra virkjunarkosti en í Þjórsá. Þrátt fyrir þetta segir heimild- armaður blaðsins að Verne hafi ekki áhyggjur af því að erfitt reyn- ist að ná í meiri orku, jafnvel þótt álver í Helguvík verði að veruleika. Fyrirtækið telji sig vera framarlega í röðinni að orku, og slík stækkun gagnaversins verði ekki fyrr en árið 2016. Spurður um verðið, segir hann að Landsvirkjun hafi haft frum- kvæði að því að trúnaður ríki um það. Ísland sé ódýrari kostur fyrir slíka stóriðju en nágrannalöndin, en ekki ódýrasti kostur í heimi. Til að mynda sé hægt að fá betra orkuverð í norðvesturhluta Bandaríkjanna. klemens@frettabladid.is HÁTÍÐAHLJÓMAR VIÐ ÁRAMÓT MIÐASALA í Hallgrímskirkju, í síma 510 1000 LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU 28. STARFSÁR listvinafelag.is T U Forðast þú að dýpka hjólförin í umferðinni? Já 77,7% Nei 22,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Kaupir þú flugelda fyrir ára- mótin? Segðu þína skoðun á Vísir.is. ÍRAN „Bretar fá kjaftshögg ef þeir hætta ekki þess- ari vitleysu,“ sagði Manouchehr Mottaki, utanríkis- ráðherra Írans í gær. Mottaki var með þessu að bregðast við orðum Davids Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, sem á mánudaginn lofaði hugrekki mótmælenda og gagn- rýndi framferði öryggissveita íranskra stjórnvalda. Í fyrradag sagði Barack Obama, forseti Bandaríkj- anna, að írönsk stjórnvöld hefðu beitt járnhnefa og óréttlátri kúgun gegn friðsömum mótmælendum. Ali Larijani, forseti íranska þingsins, tók undir með Mottaki í gær. Hann gagnrýndi Breta og Banda- ríkjamenn harkalega fyrir að hafa fordæmt aðgerðir íranskra stjórnvalda. Larijani sagði að breski sendi- herrann í Teheran yrði kallaður á fund til að skýra málflutning breskra stjórnvalda. Í tíu daga hafa íranskir umbótasinnar staðið fyrir mótmælum gegn írönsku stjórninni en þó kannski helst Mahmouds Ahmadinejad forseta sem vann umdeildan sigur í forsetakosningunum í landinu í júní. Larijani segir að þeim mótmælendum sem virði ekki Ashura-hátíðina verði mætt af fullri hörku. Ashura er ein helsta trúarhátíð sjía-múslíma. Á mánudaginn voru fjölmargir umbótasinnar handteknir, þar á meðal samstarfsmenn Mirs Hoss- eins Mousavi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Þá var frændi Mousavi myrtur á sunnudaginn. Í gær bár- ust síðan fregnir af því að systir Shirin Ebadi hefði verð handtekin. Ebadi hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2003 fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum í Íran. - th Öryggissveitir íranskra stjórnvalda handtaka systur Nóbelsverðlaunahafa: Hóta Bretum kjaftshöggi SHIRIN EBADI Öryggissveitir íranskra stjórnvalda handtóku systur Nóbelsverðlaunahafans á mánudagskvöldið. NORDICPHOTOS/AFP HESTAMENNSKA „Markmiðið er að við fáum að njóta hestsins við sem besta umgjörð,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssam- bands hestamannafélaga, um þá samþykkt stjórnar sambandsins að ganga til viðræðna við hesta- mannafélagið Fák um að halda Landsmót 2012 á svæði félagsins í Víðidal. Haraldur bendir á að ekki sé endan lega afráðið hvar Lands- mót 2012 verði haldið. Samkvæmt reglugerð þurfi að byrja á að ræða við þau félög sem til greina komi, til þess að ná samningum. „Það er ljóst að við höfum verið með mjög gott mótahald úti á landi, á Vindheimamelum og Hellu, sem gengið hefur mjög vel,“ segir Haraldur. „Við viljum athuga hvort hugsanlega séu meiri sóknarfæri til að mynda í markaðssetningu íslenska hestsins með því að fara inn í þéttbýlið. Spurningin er hvort við getum gert eitthvað nýtt á þessu svæði sem við getum ekki gert úti á landi. Það eru ýmsar hugmyndir á lofti varðandi nýjungar.“ Haraldur segir ljóst að ekki verði haldið landsmót, eins og ger- ist í sveit, í Víðidal. Enda sé ekki verið að reyna það. Hins vegar séu ýmis atriði, sem liggi betur við þar, svo sem aðgengi knapa og varsla fjölmargra, verðmætra hrossa. - jss Landssamband hestamannafélaga ræðir við Fák um landsmótshald 2012: Landsmótið kannski í borginni HARALDUR ÞÓRARINSSSON Vill athuga sóknarfæri mótshalds í þéttbýli. VIÐSKIPTI Menn ársins í viðskipta- lífinu er feðgarnir í Fjarðarkaup- um, samkvæmt vali tímaritsins Frjálsrar verslunar. Mennirn- ir eru Sigurbergur Sveinsson og synir hans Sveinn og Gísli Þór. „Í mati sínu lagði dómnefndin til grundvallar frumkvöðlastarf á sviði lágvöruverðsverslunar á Íslandi, langan og farsælan feril, hófsemi, dugnað og útsjónar- semi sem gert hefur Fjarðarkaup að stöndugu og framúrskarandi fyrirtæki,“ segir í tilkynningu tímaritsins. Þar kemur jafnframt fram að verslunin hafi verið stofnuð fyrir 37 árum sem fyrsta lágvöruverðsverslun á Íslandi, hagnaði hafi ævinlega verið hald- ið inni í fyrirtækinu og langtíma- skuldir þess séu engar. - óká Feðgarnir í Fjarðarkaupum: Menn ársins í viðskiptalífinu VIÐURKENNING AFHENT Katrín Júlíus- dóttir iðnaðarráðherra afhenti viður- kenningu Frjálsrar verslunar til manna ársins 2009 í viðskiptalífinu í hófi sem haldið var á Hótel Sögu síðdegis í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Lönduðu fyrir fimm milljarða Skip Þorbjarnar hf. í Grindavík lönd- uðu samtals 22.846 tonnum af afla á árinu sem er að líða. Verðmæti aflans er 5.191 milljón króna. Frystitogarar lönduðu 13.610 tonnum og línubátar 9.236 tonnum. Botnvörpungurinn Gnúpur GK 11 var aflahæstur sjö skipa félagsins, með rúm fimm þúsund tonn. SJÁVARÚTVEGUR ÞJÓNUSTA Borgarbúar í Reykja- vík munu ekki geta losað sig við jólatré út á næsta götuhorn eftir hátíðarnar. Reykjavíkur- borg ætlar ekki að hirða trén eins og verið hefur um árabil. Þeim sem eiga erfitt með að koma frá sér jólatrjánum mun hins vegar bjóðast sá valkostur að fá útsendara íþróttafélagsins í sínu hverfi til að koma og hirða trén gegn eitt þúsund króna þóknun. Trjánum verður síðan komið í förgun á við- eigandi hátt í samvinnu við gámafélög. - gar Íþróttafélögin sækja jólatré: Ná í trén fyrir þúsund krónur ÞORSKELDI Skipulagsstofnun telur að fyrirhugað 900 tonna þorsk- eldi í Skutulsfirði við Ísafjarð- arbæ kunni að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli háð mati á umhverfis- áhrifum. Fyrirtækið Álfsfell, sem nú elur 200 tonn á ári af þorski í Skutulsfirði, hefur áform um að meira en fjórfalda framleiðslu sína. Í áliti Skipulagsstofnunar segir að niðurstaða um mat á umhverfisáhrifum byggist meðal annars á vísbendingum um að eldisstarfsemi í Skutulsfirði hafi nú þegar haft neikvæð áhrif á botndýralíf. - pg Ísafjörður: Þorskeldi fari í umhverfismat ÞORSKELDI Meta þarf umhverfisáhrifin af fyrirhuguðu þorskeldi í Skutulsfirði. BORGARMÁL Ríflega 1.500 hug- myndir bárust um það sem betur má fara í skipulagi borgarinnar á fundum skipulags- og bygginga- sviðs Reykjavíkurborgar sem fram fóru í tíu hverfum borgar- innar í október og nóvember. Á fundunum gafst íbúum tæki- færi til að koma sínum hug- myndum á framfæri í vinnu- og umræðuhópum vegna mótunar aðalskipulags Reykjavíkur 2010 -2030 með framtíðarsýn allt til ársins 2050. Markmiðið með fund- unum var að færa aðalskipulagið nær íbúum hverfanna. Nú stendur yfir úrvinnsla á hugmyndunum og tillögugerð. - shá Aðalskipulag Reykjavíkur: Ríflega 1.500 tillögur bárust Verne gæti þurft sex sinnum meiri orku Verne Holdings býst við að þurfa jafnvel meira en 140 megavött af orku fyrir gagnaver sitt, en hefur einungis tryggt sér 25. Þetta er þó sagt í samræmi við allar áætlanir. Íslensk orka mun ekki vera sú ódýrasta í heimi. SKEMMUR VERÐA AÐ GAGNAVERI Verne Holdings hefur komið sér fyrir á gamla hersvæðinu á Reykjanesi. MYND/VÍKURFRÉTTIR Iðnaðarráðherra hefur verið spurður af greinarhöfundum í Fréttablaðinu um hvaðan orkan fyrir álver í Helgu- vík og gagnaverið eigi að koma, en hefur ekki svarað því opinberlega. Miðað við forsendurnar gætu þessar framkvæmdir á suðvesturhorninu kostað 630 MW fyrir Helguvík og 140 fyrir gagnaver. Samtals 770 megavött. Katrín Júlísdóttir ráðherra segir þetta ekki rétt. Heim- ild hafi ekki verið veitt fyrir 360.000 tonna álveri, heldur fyrir 250.000 tonnum. Ástæða þess að fjárfestingarsamn- ingur vegna álvers hafi verið upp á 360.000 tonn sé sú að um gamaldags fjárfestingarsamning hafi verið að ræða. „Það var ákveðið að hafa þetta rýmra, ef þetta þyrfti að fara fyrir þingið aftur,“ segir hún. Ríkið komi ekki að orkusölu til álversins heldur Orkuveitan og Hitaveita Suðurnesja. Þessi fyrirtæki og forystumenn suður með sjó eigi því að svara fyrir um uppsprettu orkunnar. Um orku fyrir gagnaver, sem er á hendi Landsvirkjunar, segir hún að sér skiljist að á milli þrjátíu og fimmtíu megavött liggi á lausu í kerfinu. Hún gefur lítið fyrir umræðu um virkjun Þjórsár að svo stöddu og segist vinna að því að gera orkuverð til stóriðju gagnsærra. HVAÐAN Á ORKAN AÐ KOMA? KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.