Fréttablaðið - 30.12.2009, Qupperneq 8
30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
AFGANISTAN, AP Opinber nefnd
skipuð af Hamid Karzai, forseta
Afganistan, rannsakar fregnir
af því að tíu óbreyttir borgarar
hafi verið drepnir í skærum þar
sem þátt tóku erlendir hermenn á
sunnudaginn var. Í hópnum eiga
að hafa verið átta námsmenn.
Karzai hefur fordæmt dráp-
ið, en atburðurinn átti sér stað á
átakasvæði í austurhluta landsins,
þorpi í Narang-umdæmi í Kunar-
héraði.
Dráp á almenningi er með erf-
iðustu málum fyrir erlenda setu-
liðið í Afganistan. Þótt fleiri borg-
arar falli fyrir hendi Talíbana
þá ýtir dráp herafla Bandaríkj-
anna og Atlantshafsbandalagsins
(NATO) á borgurum undir andúð
á veru hermannanna í landinu og
grefur undan tilraunum þeirra til
að veikja uppreisnarliða.
Ásökunin er sögð alvarlegasta
dæmið um dráp vestrænna her-
manna á óbreyttum borgurum
í Afganistan frá því snemma í
desember, þegar embættismenn
stjórnvalda greindu frá því að tólf
borgarar hefðu verið drepnir í
loftárás í Laghman-héraði. NATO
neitaði þeim ásökunum.
„Forsetinn varð mjög hryggur
og reiður þegar hann heyrði frétt-
irnar,“ sagði Waheed Omar, tals-
maður Karzais forseta í gær,
þriðjudag. Hann gagnrýndi stjórn
herafla Bandaríkjanna og NATO
í Afganistan og sagði að hernað-
araðgerðirnar á sunnudag hefðu
átt að hafa verið í samstarfi við
þjóðarher Afganistans.
„Þjóðarher okkar annast nú um
60 prósent af aðgerðum,“ sagði
Omar og bætti við að mannfall
óbreyttra borgara væri minna
þegar afganskir hermenn ættu
hlut að máli.
Fulltrúi NATO sagði að hern-
aðaraðgerðirnar í Kunar á sunnu-
dag hefðu verið í samstarfi banda-
rískra og afganskra hermanna og
að herflugvélum hafi ekki verið
beitt. Fulltrúinn baðst undan því
að vera nafngreindur til þess að
trufla ekki aðkomu erlenda her-
liðsins að rannsókn stjórnar
Afganistans á atburðinum.
Hann segir að í aðgerðinni á
sunnudag hafi verið fylgt eftir
rannsókn á uppreisnarhópi sem
fylgst hafði verið með í nokk-
urn tíma og talinn bera ábyrgð
á árásum á afganska og erlenda
hermenn með heimagerðum
sprengjum. Vopn og sprengju-
búnaður á staðnum hafi verið
staðfesting þess að hinir föllnu,
allt ungir karlmenn, hafi verið
uppreisnarmenn.
Zaman Mamozai, yfirmaður
landamæralögreglunnar á svæð-
inu, sagði jafnframt í gær að þeir
sem voru drepnir hafi allir verið
uppreisnarmenn. olikr@frettabladid.is
GÖTULÍF Í AFGANISTAN Afgönsk kona bakar brauð í þorpi nærri Kabúl. Erlendir hermenn eru nú sakaðir um að hafa drepið
óbreytta borgara á átakasvæði i Kunar-héraði í austurhluta landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sendinefnd kannar
dráp á ungmennum
Grunur leikur á að hermenn hafi drepið tíu óbreytta borgara, þar af átta náms-
menn, í austurhluta Afganistans á sunnudag. Fulltrúi NATO segir fyrstu fregnir
herma að níu uppreisnarmenn hafi verið drepnir. Stjórnarnefnd rannsakar málið.
ALÞINGI Gylfi Magnússon, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, vísar
frá sér spurningum um meðferð
skulda sjávarútvegsfyrirtækja.
Þótt ríkið eigi hluti í bönkunum
gildi um þá reglur um meðferð
trúnaðarupplýsinga í fjármála-
fyrirtækjum. Fjármálaeftirlitið
hafi eftirlit með bönkunum.
Í svari Gylfa við fyrirspurn
frá Ólínu Þorvarðardóttur,
þingmanni Samfylkingarinnar,
kemur fram að hann geti ekki
svarað því hve
mikið af skuld-
um útgerðar-
fyrirtækja varð
eftir í þrotabú-
um gömlu bank-
anna þriggja,
hve stór hluti
skulda f lutt-
ist yfir til nýju
bankanna og
hvaða reglum
var beitt við mat á skuldunum og
afskriftir skulda sjávarútvegs-
fyrirtækja, ef einhverjar voru.
„Efnahags- og viðskiptaráðu-
neytið hefur ekki undir höndum
neinar upplýsingar um starfsemi
einstakra fyrirtækja á fjármála-
markaði. Né hefur það undir
höndum upplýsingar um skuldir
einstakra viðskiptamanna bank-
anna. Eftirlit með starfsemi á
fjármálamarkaði er í höndum
Fjármálaeftirlitsins,“ segir í
svari Gylfa til Ólínu. - pg
Ráðherra segist engu geta svarað um meðferð skulda sjávarútvegsfyrirtækja:
Trúnaður um meðferð skulda
GYLFI MAGNÚSSON
KÍNA, AP Sendingar ganga á milli
kínverskra og breskra yfirvalda
eftir að Kínverjar virtu að vettugi
beiðnir alþjóðasamfélagsins og tóku
í gær af lífi breskan mann sem fund-
inn hafði verið sekur um að smygla
eiturlyfjum. Maðurinn hét Akmal
Shaikh og var 53 ára gamall.
Ættingjar mannsins sögðu hann
andlega vanheilan og að hann hefði
verið plataður til að flytja efnin.
Gordon Brown, forsætisráðherra
Breta, sagði í tilkynningu sem hann
sendi frá sér í gær vegna málsins
að hann væri „hneykslaður“ á fram-
ferði Kínverja. Aftakan á Shaikh er
fyrsta líflát Kínverja á Evrópubúa
í sextíu ár.
Stjórnvöld í Kína hafa hins vegar
varið ákvörðun sína og segja að
engin skjöl hafi verið lögð fram sem
sýnt hafi fram á andlega vanheilsu
Shaikhs. Þá gagnrýna Kínverjar
ummæli forsætisráðherra Breta,
en sögðust vona að málið skaðaði
ekki tvíhliða samband landanna.
Utanríkisráðuneyti Kína bað bresk
stjórnvöld að búa ekki til „hindr-
anir“ að bættum samskiptum
ríkjanna.
Breska ríkisútvarpið BBC og
fleiri fjölmiðlar höfðu eftir Laillu
Horsnell, dóttur Shaikhs, að henni
væri brugðið. „Ég varð einnig fyrir
vonbrigðum með að aftakan skyldi
hafa verið látin ná fram að ganga án
tillits til geðheilbrigðisvandamála
föður míns,“ sagði hún. „Ég á erfitt
með að sjá hvaða réttlæti er í þessu
fólgið.“ - óká
TEKINN AF LÍFI Akmal Shaikh, Bretinn
sem handtekinn var í Kína fyrir fíkni-
efnasmygl og líflátinn í gær með
eitursprautu. Ættingjar mannsins sögðu
hann veikan á geði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Aftaka bresks manns í Kína vegna fíkniefnasmygls vekur reiði á alþjóðavísu:
Kínverjar verja ákvörðun sína
Gláp í bíó
fyrir Ringjara.
Við sendum
tilboð beint
í símann.
Tilboð dagsins:
Gláp
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
Gildir í dag,
miðvikudag
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
3
4
7
50%
afsláttur
í bíó hjá
Senu fyrir 1
Ringjarar fara inn á ring.is
og óska eftir að fá MMS með
tilboðum send í símann.
Ath. Gildir ekki í lúxussal, á íslenskar
myndir og myndir sýndar í digital þrívídd.
Tilboðið gildir í tilteknum bíóum Senu:
Ekkert vesen með afsláttarmiða,
þú sýnir bara GSM símann í afgreiðslunni.
Bíó á hálfvirði í dag á ring.is