Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 24
24 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja
lesendur til að senda línu og
leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar
og bréf skulu vera stutt og
gagnorð. Tekið er á móti
efni á netfanginu greinar@
frettabladid.is eða á vefsíðu
Vísis, þar sem finna má nánari
leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður
hvort efni birtist í Fréttablaðinu
eða Vísi eða í báðum
miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga
og til að stytta efni.
Samstaða gegn loftslagsvánni
UMRÆÐAN
Svandís Svavarsdóttir skrifar
um loftslagsmál
Niðurstaða loftslagsráðstefn-unnar í Kaupmannahöfn
fyrr í mánuðinum hefði mátt
vera afdráttarlausari, en þó voru
stigin mikilvæg skref í átt til
lausnar og eitt gerðist þar sem
engan hefði órað fyrir. Í Kaup-
mannahöfn náðu fulltrúar smárra ríkja
að stilla saman strengi sína og setja
fram kröfur sem stærstu ríki heims
gátu ekki komist hjá að heyra. Fátæk-
ustu ríki heims – sem jafnframt eru þau
sem einna verst verða úti ef gróðurhúsa-
lofttegundum verður hleypt óheft út
í andrúmsloftið – náðu eyrum ríkari
þjóða.
Þetta er mikilvægur áfangi í samn-
ingaferli sem allar þjóðir vinna nú að
um leiðir til þess að heimurinn geti sam-
einast um lausn á loftslagsvandanum
og nokkuð sem mér þótti afar ánægju-
legt að verða vitni að. Ég er stolt af því
að vera umhverfisráðherra í landi sem
hefur einsett sér að standa þétt að baki
þeirra þjóða sem fátækastar eru og
minnst völd hafa í heiminum – og tel að
Íslendingar megi vera ánægðir með þá
skýru og jákvæðu afstöðu sem stjórn-
völd hafa tekið í loftslagsmálum.
Mega Maldíveyjar missa sín?
Eina rödd bar hæst á loftslags-
ráðstefnunni í Kaupmanna-
höfn, rödd forseta smáríkis
sem á ekkert í vændum annað
en algjöra eyðileggingu ef ríki
heims aðhafast ekkert. Þetta
var Mohamed Nasheed, forseti
Maldíveyja, sem þekkir af eigin
raun hversu grafalvarlegt mál
loftslagsbreytingar eru. Hann
stendur frammi fyrir því að
landið sem hann er í forsvari fyrir geti
horfið – hverfi bókstaflega út af landa-
kortum í nánustu framtíð. Eyjarnar ná
að meðaltali aðeins einn og hálfan metra
yfir sjávarborð – og „hátindur“ þeirra
teygir sig rétt röska 2 metra yfir sjó –
þannig að lítið má út af bera til að hafið
gleypi þær.
Það er Íslendingum umhugsunarefni
ef heimurinn hunsar hjálparbeiðni
Maldíveyinga. Þótt langt sé á milli þjóð-
anna er sitthvað sem tengir þær. Þótt
miklu muni á auðlegð Íslands og Maldív-
eyja byggir efnahagur ríkjanna á sömu
meginstoðum. Öldum saman hafa íbúar
Maldíveyja sótt allt sitt í hafið, en á und-
anförnum áratugum hefur ferðaþjónusta
vaxið stórum skrefum. Þá eru þjóðirnar
nánast jafnstórar. Á Maldíveyjum búa
nærri 400 þúsund manns og þar af rúm
100 þúsund í höfuðborginni Malé.
Ef heimurinn skellir skollaeyrum við
bón Maldíveyja, hvaða skilaboð sendir
það þá öðrum smáríkjum?
Litla gula hænan í loftslagsmálum
Undanfarin ár hefur hópur ríkja vaknað
upp við þann veruleika að loftslags-
breytingar muni ekki bara hafa óþæg-
indi í för með sér, heldur stafi tilvist
þeirra raunveruleg ógn af völdum hækk-
andi sjávarborðs, breytinga á veður-
kerfum og öðrum afleiðingum loftslags-
breytinga. Þessar þjóðir hafa farið um
heiminn eins og litla gula hænan og leit-
að aðstoðar til að stöðva þessa þróun og
afstýra stórslysi. „Ekki ég“ hefur við-
kvæðið lengst af verið hjá ríkari löndum
– ríkjum sem ekki búast við að finna
afleiðingar loftslagsbreytinga á eigin
skinni.
Eins og fram kemur í lok sögunnar
gat litla gula hænan sest niður og notið
afraksturs erfiðis síns – borðað brauðið
sem hún bakaði. Íbúar Maldíveyja og
annarra ríkja í sömu stöðu búa ekki við
þann munað. Ef þjóðir heimsins standa
ekki með þeim í baráttunni við loftslags-
vána, þá verður ekkert brauð bakað, þá
verður hvergi hægt að setjast. Eyjarnar
munu hverfa í sæ ef sjávarborð hækk-
ar. Heimili heilu þjóðanna munu hverfa.
Við getum ekki skellt skollaeyrum við
beiðni Maldíveyinga um aðstoð og sagt
„ekki ég“.
Niðurstaða loftslagsráðstefnunnar í
Kaupmannahöfn gefur okkur von um að
„ekki ég“ sé á undanhaldi þegar þjóð-
arleiðtogar ræða loftslagsmál. Í Kaup-
mannahöfn var samhljómur meðal allra
viðstaddra um að loftslagsváin væri
staðreynd, aðgerða væri þörf og að allir
þyrftu að leggja sitt af mörkum til að
snúa við þeirri þróun sem orðið hefur í
loftslagsmálum. Í fyrsta sinn í sögunni
komu ríki eins og Bandaríkin og Kína
að umræðunni og viðurkenndu skyldu
sína til að bregðast við með ábyrgum
hætti. Ágreiningurinn snerist því ekki
um hvort þyrfti að bregðast við, heldur
um hver viðbrögðin ættu að vera og hve
skjótt þyrfti að hrinda þeim í fram-
kvæmd. Um það megum við ekki deila of
lengi, því tíminn er á þrotum.
Loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn
markaði ekki þau þáttaskil sem hún
hefði þurft að gera en þar voru þó stigin
mikilvæg skref í rétta átt. Ísland ætlar
að leggja sitt af mörkum í samfélagi
þjóðanna til þess að þessi skil verði
mörkuð á nýju ári.
Höfundur er umhverfisráðherra.
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
Í fyrsta sinn í sögunni komu ríki eins og
Bandaríkin og Kína að umræðunni og
viðurkenndu skyldu sína til að bregðast
við með ábyrgum hætti.
UMRÆÐAN
Helgi Gunnarsson frá Ytri-
Ásum skrifar um bækur
Um jólin las ég fróðlega bók um sæmdarhjónin Runólf
Sveinsson og Valgerði Halldórs-
dóttur. Bókin sem heitir „Ræktun
fólks og foldar“ er jafnframt góð
heimild um þróun landgræðslu og
landbúnaðar á Íslandi á öldinni
sem leið. Höfundur bókarinnar
er Friðrik G. Olgeirsson sagn-
fræðingur og útgefandi Skrudda
ehf. Í upphafi bókar kemur fram
að synir þeirra hjóna beittu sér
fyrir útgáfunni foreldrum sínum
til heiðurs og tekst það með
ágætum.
Í bókinni er einnig sagt frá
drengskaparbragði afa þeirra
Sveins Sveinssonar í Ásum þegar
hann sótti Guðrúnu Sigurðardótt-
ur, ekkju frænda síns, að Svína-
felli í Öræfum ásamt fjórum
börnum hennar. Tvö yngstu börn-
in fengu að fylgja móður sinni að
Ásum en þau voru Þorgerður Þor-
gilsdóttir og ónefndur drengur
eins og sagt er í bókinni. Dreng-
ur þessi var þó ekki ónefndur
á þeim tíma. Hann hét Gunnar
Kristinn Þorgilsson og varð síðar
bóndi í Ytri-Ásum til dauðadags
árið 1957. Afkomendur Guðrún-
ar Sigurðardóttur eru ævinlega
þakklátir þeim hjónum Sveini
Sveinssyni og Jóhönnu Margréti
Sigurðardóttur í Ásum fyrir það
hve vel þau reyndust ekkjunni og
börnum hennar.
Kærar þakkir fyrir vandaða og
fróðlega bók.
Ræktun
fólks
og foldar