Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 32
MARKAÐURINN 30. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR8
V I Ð Á R A M Ó T
VIÐSKIPTAMAÐUR UNDIR RATSJÁ
Friðrik í Melabúðinni er sagður
hafa báða fætur á jörðinni
og því eigi hann
að vera meðal
viðskipta-
manna
ársins.
A
lls voru 24 einstaklingar nefnd-
ir til sögunnar í vali á viðskipta-
manni ársins. Dómnefnd fékk
frjálsar hendur um valið en átti
að velja þrjá einstaklinga sem
töldust hafa skarað fram úr á árinu. Sá
sem nefndur var fyrstur fékk þrjú stig,
sá næsti tvö stig og sá þriðji eitt.
Ellefu sátu í dómnefndinni að þessu
sinni. Þeir eru flestir úr atvinnulífinu auk
kennara við viðskiptafræðideildir Háskóla
Íslands og Háskólans í Reykjavík.
Hér á eftir verða þeir nefndir sem lentu
í þriðja til fimmta sæti yfir viðskiptamenn
ársins að mati dómnefndar Markaðarins.
3. SÆTI
Skákmaðurinn Margeir Pétursson, stofn-
andi og stjórnarformaður MP Banka, lenti
í þriðja sæti í vali á viðskiptamanni árs-
ins að þessu sinni. Dómnefndin sagði um
Margeir að banki hans hafi staðið af sér
storminn og nýtt sér vel það tómarúm sem
varð til við fall bankanna í fyrrahaust.
MP Banki fékk viðskiptabankaleyfi á
síðasta ári og kom það sér vel. Í kjölfar
falls Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrenn-
is (Spron) í mars síðastliðnum gerði MP
Banki tilboð í vörumerki sparisjóðsins
auk Netbankans, nb.is og hafði á prjónun-
um að reka þrjú útibú hans undir merkjum
Spron. Ætlunin var að viðhalda vörumerk-
inu, sem hafði notið mikillar velvildar um
árabil.
Um þetta leyti höfðu innistæður verið
fluttar úr Spron til Nýja Kaupþings (nú
Arion banki). Bankinn neitaði að færa þær
til baka og varð því ekkert úr viðskipt-
unum. Í staðinn opnaði MP Banki eigin
netbanka og réð hluta af starfsfólki Spron
til sín. Fyrsta útibú MP Banka var síðan
opnað á tíu ára starfsafmæli fyrirtækis-
ins í Borgartúni hvar eitt útibúa Spron
hafði áður verið til húsa.
Starfsmenn MP Banka, sem hóf starf-
semi sem MP Verðbréf fyrir áratug, eru
nú 89. Þar af eru 76 hér en þrettán í Lit-
háen. Gert er ráð fyrir nokkurri fjölgun
starfsfólks í janúar þegar bankinn færir
höfuðstöðvar sínar eftir áramótin.
4. SÆTI
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris
Invest, er í þriðja sæti í vali á viðskipta-
manni ársins að mati dómnefndar Mark-
aðarins.
Óhikað má segja að Eyrir Invest hafi
tekið bikarinn heim þetta árið en fjárfest-
ingafélagið er stærsti hluthafi matvæla-
vinnsluframleiðandans Marels, sem komst
á blað yfir viðskipti ársins en Árni Oddur
er stjórnarformaður þess. Þá er Eyrir In-
vest annar stærsti hluthafi stoðtækjafyrir-
tækisins Össurar og er Þórður Magnússon,
faðir Árna Odds, varaformaður stjórnar
Össurar. Þá er Þórður jafnframt stjórnar-
formaður netfyrirtækisins Calidris, sem
lenti í 5. til 11. sæti.
Árni Oddur og félög tengd Eyri Invest
hafa jafnan skorað hátt hjá dómnefnd
Markaðarins upp á síðkastið. Óþarfi er að
tíunda frekar um Jón Sigurðsson og Össur.
Þá voru kaup Marels á hollenska iðnfyrir-
tækinu Stork Food Systems viðskipti ársins
í fyrra. Árni Oddur á sæti í stjórn Stork.
5.-11. SÆTI
Sex einstaklingar deila með sér næstu
sætum með jafnmörg stig. Þeir koma hver
úr sinni áttinni en eiga það sammerkt með
þeim Jóni Sigurðssyni, Hilmari, Margeiri
og Árna Oddi að teljast rekstrarfólk. Einn
þeirra fellur þó ekki í þann flokk. Sá er leik-
arinn og fjöllistamaðurinn Jón Gnarr. Rök-
stuðningurinn fyrir vali hans var sá að Jón
og Pétur Jóhann Sigfússon, sem sami dóm-
ari setti í annað val, hafi lyft þjóðinni upp í
þrengingum auk þess að landa samningum
við erlend fyrirtæki með vörur sínar. Í of-
análag hafi þeir selt mynddiska með þrenn-
unni Næturvaktin, Dagvaktin og Fanga-
vaktin í tugþúsundatali fyrir jólin 2009 á
innlendum markaði. Uppskeran á erlend-
um mörkuðum muni koma í ljós á næstu
tveimur árum.
Hinir eru eftirfarandi í stafrófsröð:
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta;
Friðrik Guðmundsson, kaupmaður í Mela-
búðinni í Reykjavík; Jón Norland, fram-
kvæmdastjóri Smith & Norland; Magn-
ús I. Óskarsson, framkvæmdastjóri og
einn stofnenda netfyrirtækisins Calidris;
og Svava Johansen, forstjóri tískuvöru-
keðjunnar NTC, en gjarnan kennd við
verslunina Sautján.
Um valið segir dómnefndin að viðskipta-
mennirnir séu með báða fæturna á jörðinni
og uppskeri í samræmi við það. Þá hafi þeir
rekið sín fyrirtæki af festu og yfirvegun
og hafa ekki orðið öðrum til skaða. Svövu
er lyft á stall fyrir að láta ekki bölmóðinn
á sig fá, synda á móti straumnum og opna
nýja verslun undir merkjum Gallerís Sautj-
án í Smáralind á haustdögum á sama tíma
og flestir héldu að sér höndum.
Krefjandi val í takt við erfitt ár
Margir voru kallaðir til í vali á viðskiptamanni ársins. Dómnefnd Markaðarins var næsta einróma um að valið væri erfitt í ár.
Niðurstaðan varð á endanum sú að rekstrarmenn standa upp úr. Ástæðan að nokkurra mati er sú að þeir eru með fæturna á
jörðinni og þykja hafa óflekkað mannorð eftir fjármálakreppuna. Þá skoruðu þeir hátt sem hafa farið sér hægt og flogið undir
ratsjá viðskiptalífsins. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skoðaði val dómnefndarinnar og rökin fyrir því.
BROSAÐ Í KAMPINN Árni Oddur Þórðarson
ásamt Erik Kaman, fjármálastjóra Marels.
Fréttablaðið/ÓKÁ
LEIKARINN Jóni Gnarr er talið til
tekna að hafa lyft þjóðinni upp í
þrengingum auk þess að eiga hlut
að því að landa samningum við
erlend fyrirtæki um sölu á vöru
sinni, Vakta-þrennunni.
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar
Eggert Pétursson listmálari
Halla Tómasdóttir og Kristín Pétursdóttir hjá Auði Capital
Helgi Vilhjálmsson, stofnandi og forstjóri Góu/KFC
Hörður Arnarson, forstjóri Marels, Sjóvár og Landsvirkjunar á árinu
Inga María Guðmundsdóttir, bókasafnsfræðingur á Ísafirði sem rekur
tengslasíðuna dressupgames.com
Jón Gerald Sullenberger, stofnandi lágvöruverðsverslunarinnar Kosts
Sigurbergur Sveinsson, Sveinn Sigurbergsson og Gísli Þór Sigurbergsson hjá
Fjarðarkaupum í Hafnarfirði
Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður
Vilhjálmur Bjarnason, lektor í HÍ
Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja
* Í stafrófsröð
Einnig tilnefndir*
STJÓRNARFORMAÐURINN
MP Banki á rætur að rekja til
fyrirtækisins MP Verðbréfa sem
Margeir Pétursson stofnaði í
félagi við annan mann fyrir
áratug. Bankinn er sagður
hafa komið sterkur inn í fjár-
málakreppunna og tekist að
nýta sér þau tækifæri sem þar
buðust.
M
ARKAÐ
U
RIN
N
/H
EIÐ
A
BROSAÐ Í KREPPU Svava Johansen opnaði tut-
tugustu verslun NTC í vetur. Hún sagði í samtali við
Fréttablaðið í tilefni af því að mikilvægt væri að láta
neikvæða umræðu ekki hafa áhrif á sig.
M
A
R
K
A
Ð
U
R
IN
N
/A
N
TO
N
M
A
R
K
A
Ð
U
R
IN
N
/A
R
N
ÞÓ
R