Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 39

Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 39
H A U S MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 I N N L E N D U R A N N Á L L keypti útibú bankans og Byr tók yfir greiðslumiðlun hans. Árið verður Björgólfi Guð- mundssyni, fyrrverandi for- manni bankaráðs Landsbankans og stærsta hluthafa Landsbank- ans, minnisstætt. Björgólfur, sem styrkti útgáfur tveggja bóka um Hafskipsmálið og horfði til þess að fá gjaldþrot skipaflutningafé- lagsins tekið upp að nýju, lenti í erfiðleikum með greiðslu á láni sem hann og sonur hans, Björgólf- ur Thor, höfðu fengið hjá Búnaðar- bankanum á sínum tíma í tengsl- um við kaup á Landsbankanum árið 2002. Lánið stóð í fimm millj- örðum króna og reyndu þeir að fá hluta skuldarinnar felldan niður gegn innborgun. Það tókst ekki. Í ljós kom að félag feðganna hafði fengið meirihluta bankakaupanna að láni. MAÍ Maímánuður byrjaði ekki vel hjá Magnúsi Þorsteinssyni, þriðja hjólinu undir Samsonarvagnin- um, sem keypti Landsbankann. Magnús hafði farið mikinn hjá Eimskipafélaginu og í Icelandic Group, félögum sem sömuleiðis tengdust Björgólfi. Hann og Magn- ús áttu það sameiginlegt að standa ekki undir þeim skuldaklafa sem þeir höfðu hlaðið utan á sig og var Magnús úrskurðaður gjaldþrota. Hann flutti til Rússlands um svip- að leyti og hefur verið þar síðan. Þá flaug rúmur fjörutíu pró- senta eignahlutur bræðrafélaga Engeyinganna Benedikts og Ein- ars Sveinssona og Karls og Stein- gríms Wernerssona í Icelandair Group inn í Íslandsbanka. „Ég vissi að þetta myndi skella á, gekk frá reikningunum í möppur og lét klippa á kortið,“ sagði Gunnlaugur Sigmundsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Máttar og stjórnar- formaður Icelandair Group. JÚNÍ Sumarið er alla jafnan rólegasti tími ársins. Stýrivextir fóru niður í tólf prósent og sagði peninga- stefnunefnd Seðlabankans stærri skref ekki stigin í bili enda sendi- nefnd AGS mótfallin vaxtalækk- un sem gæti ógnað stöðugleika krónunnar. Þá kom í ljós að fleiri en Magnús Þorsteinsson höfðu sankað að sér lánum. Af 730 milljarða króna út- lánasafni hjá útibúi Landsbankans í Lundúnum í Bretlandi námu lán til íslenskra fyrirtækja þar 130 milljörðum króna á þáverandi gengi. Hvort um tilviljun var að ræða eður ei var efst á lista lánabók- arinnar Novator Pharma, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfs- sonar Guðmundssonar. Skuld þessa eina félags við bankann nam fjörutíu milljörðum króna. Bent var á síðar að þrátt fyrir tengslin var Björgólfur Thor ekki listaður sem tengdur aðili í árs- reikningum bankans. Skipti engu þótt hann ætti stærsta hlutinn í bankanum ásamt föður sínum. Þá var tekist hart á um Icesave- samkomulagið, arfleifð gamla Landsbankans, innan veggja Alþingis. JÚLÍ Starfsmenn Ólafs Haukssonar, sérstaks saksóknara, fóru í eina af viðamestu húsleitunum í mán- uðinum, nú hjá félögum tengd- um þeim Werners-bræðrum. Þar á meðal var húsleit gerð í húsa- kynnum Aska Capital og Sjóvár og á heimilum forstjóra beggja fyrirtækja. Ástæðan fyrir húsleitunum var grunur um fjölda brota. Grunur var um að félagið hefði fjárfest úr bótasjóði í skrifstofubyggingum í Belgíu og París og höfuðstöðum bæversks banka í Þýskalandi. Sjóvá var á leið í þrot og ákvað ríkissjóður því að leggja trygginga- félaginu til tólf milljarða króna. Forstjóraskipti urðu hjá Sjóvá og tók Hörður Arnarson, áður for- stjóri Marel, við stýrinu um nokk- urra mánaða skeið. Fyrsta erlenda fjárfestingin skilaði sér hingað í mánuðinum þegar kanadíska félagið Magma Energy keypti 10,8 prósenta hlut í HS Orku af Geysi Green Energy (GGE). Þrátt fyrir allt gekk erfiðlega að styrkja krónuna. Horft var til þess að lánveitingar frá AGS og norrænu nágrannalöndun- um yrðu traust bakland. Lánin strönduðu á Icesave-samkomu- laginu, sem dróst von úr viti. Gylfi Magnússon útilokaði ekki að leita eftir stuðningi hjá evrópska seðlabankanum. ÁGÚST „Ég horfi fram á nær alger- an tekjumissi,“ sagði Björgólfur Guðmundsson, eitt sinn auðmað- ur, eftir að ákveðinn endapunktur var settur aftan við hrakfarasögu hann í byrjun ágúst þegar hann var úrskurðaður gjaldþrota. Björ- gólfur, sem hafði vafið skuldum utan á sig í góðærinu, var í per- sónulegri ábyrgð fyrir 96 millj- örðum króna. Þar á meðal var um sex milljarða króna skuld við Kaupþing sem Samsonar-þríeykið fékk að láni vegna kaupa á Lands- bankanum á sínum tíma. Skuldin fór í innheimtu í mánuðinum. Þá láku upplýsingar úr lána- bók gamla Kaupþings á Netið við dræmar undirtektir bæði bank- ans og viðskiptavina. Í ljós kom að fimm stærstu lántakendur bank- ans voru ábyrgir fyrir tæpum þús- und milljörðum króna. Umsvifa- mesti skuldunauturinn var Exista, stærsti hluthafi gamla Kaupþings og tengd félög með 330 millarða króna skuld á bakinu. Aðrir stór- ir skuldunautar voru breski fast- eignajöfurinn Robert Tchenguiz, Skúli Þorvaldsson, Bakkabræður, félög tengd Ólafi Ólafssyni, einum af stærstu eigendum Kaupþings, og Gaumur, eignarhaldsfélag Haga og Baugs. SEPTEMBER „Til lengri tíma litið verður staða Mikið bar á Ólafi Þór Haukssyni, sér- stökum saksóknara á árinu. Ólafur tók til starfa hjá embættinu í febrúar og voru starfsmenn þá fjórir. Eftir því sem rannsóknin á bankahruninu og vensl- um og tengslum við fjármálalífið hefur undið fram hefur starfsemin tútnað út. Starfsmenn eru nú 23 og flutti embættið í rýmra húsnæði í september. Embættið hefur unnið náið með Evu Joly og Serious Fraud Office í Bretlandi. Húsleitir á árinu eru á bilinu 34-36 talsins og hafa rúmlega fjögur hundruð einstaklingar verið yfirheyrðir í tengsl- um við þær. Viðamestu húsleitirnar eru í húsakynnum Sjóvár og endurskoðenda- fyrirtækjanna KPMG og PriceWaterhouseCoopers. Málin sem nú eru í rannsókn eru í kringum sextíu talsins og er um fimmtán til sautján lokið. Gert er ráð fyrir að fyrstu nið- urstöður af rannsóknum embættisins verði birtar fyrir mitt næsta ár, samkvæmt upplýsingum frá embættinu. Sérstakur saksóknari Endurfjármögnun stóru viðskiptabankanna þriggja reyndist talsvert ódýrari en óttast var í fyrstu. Við upphaf árs var reikn- að með að ríkissjóður gæti þurft að leggja þeim til 385 millj- arða króna. Um miðjan september samþykktu kröfuhafar Glitn- is hins vegar að taka 95 prósenta hlut í Íslandsbanka og kröfu- hafar Kaupþings að taka 87 prósent í Arion banka mánuði síðar. Kröfuhafar Landsbankans vildu hins vegar aðeins nítján pró- sent. Munar þar um að helstu kröfuhafar Landsbankans voru bresk og hollensk sveitarfélög en fjármálafyrirtæki í hinum bönkunum tveimur. Af þessum sökum lagði ríkið fram tæpa tíu milljarða til Ís- landsbanka en rúma þrjá til Arion banka í formi hlutafjár, auk víkjandi lána. Framlag ríkisins til Landsbankans nam hins vegar rúmum 122 milljörðum. Heildarfjárbindingin nam því 183,6 milljörðum króna, eða 250 milljörðum lægra en gert var ráð fyrir. Ódýrari endurfjár- mögnun bankanna 4, 0% 3, 3% 8, 5% 9, 9% 10 ,8 % 10 ,9 % 6, 2% -3 3, 5% 300 250 200 150 100 50 0 V E L T A Í S M Á V Ö R U V E R S L U N Í miljörðum kr. 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 G E N G I S V Í S I T A L A Ja n. ´ 08 Fe b. ´ 08 M ar . ´ 08 Ap r. ´0 8 M aí ´ 08 Jú n. ´ 08 Jú l. ´0 8 Ág ú. ´ 08 Se pt . ´ 08 O kt . ´ 08 N óv . ´ 08 D es . ´ 08 Ja n. ´ 09 Fe b. ´ 09 M ar . ´ 09 Ap r. ´0 9 M aí ´ 09 Jú n. ´ 09 Jú l. ´0 9 Ág ú. ´ 09 Se pt . ´ 09 O kt . ´ 09 N óv . ´ 09 D es . ´ 09 250 200 150 100 Eignarhald á Högum, móðurfélagi Hagkaupa, Bónus og fjölda annarra verslana sem eru að mestu í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjöl- skyldu hans, var mjög í umræðunni þegar seig á seinni hluta ársins. Snemma í ágúst var frá því greint að Kaupþing hafði fjármagnað kaup eignarhaldsfélagsins 1998 ehf. á Högum úr Baugsveldinu um mitt ár 2008 með láni upp á þrjátíu milljarða króna með gjalddaga árið 2010. Veð fyrir láninu voru eignir Haga. Morgunblaðið greindi svo frá því seint í ágúst að stjórnarskipti hefðu orðið á félaginu og væri það í raun að mestu í höndum Nýja Kaupþings. Helst var deilt um hvort lánið hefði verið afskrifað að einhverju leyti eður ei. Heilmikið sjónarspil fór af stað í kjölfarið sem meðal annars athafnamaðurinn Guðmundur Franklín Jónsson fór fyrir. Hópur á hans vegum þrýsti á um að Hagar yrðu boðnir til sölu og al- menningi gert kleift að fjárfesta í félaginu. Félagið reyndist ekki falt enda stóðu viðræður eigenda Haga við forsvarsmenn bankans enn yfir og leituðu þeir leiða til að fjármagna félag- ið. Fyrrverandi viðskiptafélagar Jóns Ásgeirs Jóhannessonar frá Bretlandi þóttu um tíma koma til greina. Tekist á um eignarhald Haga JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON Sérstakur saksóknari vegna bankahruns. Íslands best innan Evrópusam- bandsins,“ sagði Robert Ford, að- stoðarsviðsstjóri landrannsókna á hagfræðideild Efnahags- og fram- farastofnunarinnar (OECD) þegar hann kynnti niðurstöður skýrslu um leiðir til að koma á stöðugleika hér. Niðurstöðurnar voru þær að eini góði kosturinn sem Ísland hefði um að velja væri að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Sísti kosturinn væri sá að taka upp fastgengisstefnu á nýjan leik. Þá var kröfuhöfum gamla Kaup- þings boðið að taka 87 prósenta hlut í bankanum á móti ríkinu. OKTÓBER Fjármálaráðuneytið var á jákvæð- ari nótum í október þrátt fyrir hrikalega skuldabyrði og enda- lausar tafir á lánum frá AGS og nágrannaþjóðunum. Ráðuneyt- ið taldi nú að samdráttur í lands- framleiðslu gæti orðið 8,4 pró- sent í ár en á bilinu 1,9 prósent á næsta ári, 2,9 prósent tefjist fram- kvæmdir vegna álvers í Helguvík. Árið 2011 er svo reiknað með tæp- lega þriggja prósenta hagvexti. Þrátt fyrir væntingar frestuð- ust lánafyrirgreiðslur frá AGS von úr viti. Þótt fulltrúar sjóðs- ins segðu það ekki beinum orðum strandaði það á Icesave-málinu. Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þór Saari og Lilja Mósesdóttir vildu öll slíta samstarfi við AGS. Það var sosum engin nýlunda enda höfðu þau verið andsnúin sjóðnum frá fyrsta degi. NÓVEMBER „Þeir sem stjórna svona fyrir- tæki bera ábyrgð á því hvaða leið er farin. Ég sá enga aðra leið,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri Decode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, eftir að fyrirtækið óskaði eftir greiðslustöðvun. Fyrirtækið hafði glímt við þrönga fjárhags- stöðu og sótt sér rekstrarfé á yfirdráttarvöxtum um nokkurra mánaða skeið. Það hafði aldrei skilað hagnaði. Kári taldi stutt í slíkt enda viðskiptamódelið annað eftir breytinguna. Þetta var ekki eina áfallið því alþjóðlega matsfyrirtækið Mood- y‘s lækkaði lánshæfismat íslenska ríkisins um tvo flokka og var það einum flokki ofan við ruslbréfa- flokk. Undir lok mánaðar gerðu starfs- menn sérstaks saksóknara hús- leit hjá MP Banka og Byr í tengsl- um við rannsókn á sölu stofnfjár- bréfa í sparisjóðnum í kringum hrunið í fyrra. Í kjölfarið ákvað sparisjóðsstjórinn Ragnar Z. Guð- jónsson, að láta tímabundið af störfum. DESEMBER Peningastefnunefnd Seðlabank- ans gaf landsmönnum jólapakka sem þeir höfðu lengi beðið eftir. Stýrivextir voru lækkaðir um eitt prósentustig niður í tíu pró- sent og innlánsvextir bankans um hálft prósentustig í 8,5 prósent á aukavaxtaákvörðunarfundi bank- ans. Rökin voru meðal annars þau að gengi krónunnar hafði haldist stöðugt þótt hátt væri. Forsvars- menn bankans sögðu gengið geta haldist veikt lengi, jafnvel gæti tekið ár eða áratugi fyrir krónuna að ná jafnvægisgengi. Skuggabankastjórn Markaðar- ins sagði niðurstöðuna ekki koma á óvart en taldi vaxtalækkunar- ferli í farvatninu. Gangi þær væntingar eftir má gera ráð fyrir að þeir Úlfar Eysteinsson og Tómas Tómasson, löngum kennd- ur við Tommahamborgara, legg- ist undir hnífinn og láti skerða skegg sitt. Þessu til viðbótar bárust aðrar gleðifregnir um miðjan jólamán- uðinn: þjóðin myndi eignast 87 prósenta hlut í Landsbankanum. Þar með var endurreisn gömlu stóru viðskiptabankanna lokið. Aðeins sparisjóðirnir, sem biðu á gjörgæslunni, voru eftir. Stig

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.