Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 42
MARKAÐURINN 30. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR14
V I Ð Á R A M Ó T
Á
rið 2009 var um margt ágætt ár,
að minnsta kosti sé tekið tillit
til þeirrar vöggugjafar sem það
fékk frá forverum sínum. Á líð-
andi ári skýrðist smám saman
við hvaða vanda við Íslendingar eigum að
etja í efnahagsmálum og hverjar rætur
hans eru. Jafnframt kom í ljós hvað gera
þarf til að leysa vandann.
Verkefnin fram undan eru vissulega flók-
in og það mun taka tíma að leysa þau. Sjald-
an hefur hugtakið þjóðarátak átt betur við.
Það er hins vegar engin ástæða til að láta
fallast hendur. Engin þeirra verkefna sem
við stöndum frammi fyrir eru óleysanleg,
því fer fjarri.
LÍFSKJÖR MUNU BATNA
Ekki er útlit fyrir annað en að lífskjör Ís-
lendinga á 21. öldinni verði með þeim allra
bestu í heiminum, líkt og þau hafa verið
áratugum saman. Þau verða fyrirsjáan-
lega innan fárra ára orðin betri en þau
hafa nokkurn tíma verið í þær rúmu ell-
efu aldir sem landið hefur verið í byggð. Því
má ekki gleyma að þótt tekjur landsmanna
hafi dregist nokkuð saman voru þær á und-
anförnum árum afar háar, jafnt í söguleg-
um sem alþjóðlegum samanburði – og eru
það enn.
FJÖGUR VERKEFNI
Helstu viðfangsefnin eru ferns konar.
Í fyrsta lagi þarf að vinna úr miklum
skuldavanda fyrirtækja og heimila. Fjöl-
mörg fyrirtæki þurfa nú að ganga í gegn-
um fjárhagslega endurskipulagningu. Þetta
er afar umfangsmikið verkefni sem verður
fyrst og fremst unnið innan fjármálastofn-
ana og viðkomandi fyrirtækja.
Í öðru lagi þarf að ná tökum á fjármál-
um hins opinbera. Snúa þarf gríðarlegum
fjárlagahalla við með niðurskurði og auk-
inni tekjuöflun og ná að lokum afgangi.
Þetta verkefni snýr fyrst og fremst að rík-
inu en snertir vitaskuld landsmenn alla.
Í þriðja lagi þarf að bregðast við sam-
drætti í sumum greinum efnahagslífsins,
svo sem fjármálaþjónustu, byggingageir-
anum og þeim sem tengjast innflutningi. Í
þeirra stað þurfa aðrar greinar að vaxa og
fjölga starfsmönnum. Á meðan breyting-
arnar standa yfir má búast við að atvinnu-
leysi verði meira en alla jafna.
Meðal greina sem hafa svigrúm til vaxtar
má nefna útflutning og þær sem keppa við
innflutning. Í báðum tilfellum styður lækk-
un gengis krónunnar frá óraunhæfu gengi
bóluáranna við vöxtinn. Hér má þegar sjá
mörg mjög jákvæð teikn á lofti og þeim ætti
að fara ört fjölgandi á næsta ári.
Í fjórða lagi þarf að fara yfir allt reglu-
verk íslensks efnahagslífs, löggjöf og aðra
þætti. Draga þarf fram hverjar brotalam-
irnar voru. Að því marki sem lög voru brot-
in þarf að sanna hverjir gerðu það og draga
þá til ábyrgðar í samræmi við reglur réttar-
ríkisins. Þar sem eftirlit brást þarf að rann-
saka og bæta úr. Horfa þarf bæði fram á
veginn og til liðinna atburða. Annars vegar
þarf að leiða í ljós hvað fór úrskeiðis og
hvers vegna – hins vegar læra af reynsl-
unni og móta nýja umgjörð sem tryggir að
leikurinn verði ekki endurtekinn.
BÓLUHAGKERFIÐ SEM HVARF
Allt eru þetta verðug verkefni en við höfum
alla burði til að takast á við þau. Vinna við
þau öll er þegar hafin en komin mislangt
á veg. Takist okkur vel upp verður hruns
íslenska fjármálakerfisins fyrr en varir
ekki bara minnst vegna bóluhagkerfisins
sem hvarf heldur miklu frekar vegna þess
heilbrigða hagkerfis sem kom í þess stað.
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra:
Verk að vinna
Á
rið 2009 og seinni hluti 2008
eru eitt erfiðasta tímabil sem
íslenskt atvinnu- og efnahagslíf
hefur gengið í gegnum um langt
árabil. Á árinu hefur landsfram-
leiðsla dregist saman, kaupmáttur rýrnað
og atvinnuleysi aukist verulega.
Við Íslendingar höfum eytt miklum
kröftum í að takast á við afleiðing-
ar bankahrunsins og alþjóðlegrar efna-
hagsniðursveiflu. En þó að viðfangsefnin
séu snúin hefur engu að síður töluverður
árangur náðst.
Árið 2009 er vissulega kreppuár, en
það er einnig árið sem við brugðumst
við gjörbreyttum aðstæðum og hófum
að treysta hinar nýju stoðir efnahagslífs-
ins. Endurreisn bankakerfisins er nú langt
komin og vinna við endurskipulagningu
á efnahag atvinnulífs og heimila lands-
ins komin á skrið. Seðlabankinn hefur
lagt af stað í vaxtalækkunarferli sem
er grundvallarforsenda endurreisnar og
atvinnuuppbyggingar.
Ef horft er út fyrir landsteina skiptir
mestu að á árinu tókst að koma í veg fyrir
að efnahagsniðursveiflan yrði að enn al-
varlegri kreppu. Vaxtalækkanir allra
helstu seðlabanka heimsins og viðbrögð
stjórnvalda helstu hagkerfa hafa tryggt að
botn niðursveiflunni er nú þegar að baki.
Flest bendir til að fram undan sé hægur
en öruggur efnahagsbati á heimsvísu. At-
hyglisvert er að nýmarkaðir í Asíu og S-
Ameríku munu að líkindum taka hraðar
við sér en Vesturlönd og verða drifkraftur
heimsbúskaparins næstu árin.
MAREL STYRKTI STOÐIR SÍNAR
Ástand efnahagsmála á heimsmörkuðum
hafði mikil áhrif á rekstur Marels á árinu
sem er að líða. Hin snarpa niðursveifla
í heimsbúskapnum sem varð undir árs-
lok 2008 og sú mikla óvissa sem fylgdi í
kjölfarið leiddi af sér tímabundinn sam-
drátt í fjárfestingu atvinnuvega um allan
heim.
Stjórnendateymi Marels og starfs-
fólk brást við af mikilli snerpu og lag-
aði kostnaðargrunn félagsins að nýjum
aðstæðum. Með bættu sjóðsstreymi, sölu
eigna utan kjarnastarfsemi og hlutafjár-
aukningu hefur tekist að treysta efnahag
félagsins verulega. Árangur í rekstri er
nú þegar farinn að sýna sig og við horfum
björtum augum til framtíðar.
Við erum ánægð með það traust sem
fjármálastofnanir og hluthafar hafa
sýnt Marel. Í þeim efnum má sérstak-
lega nefna kaup sjóða á vegum banda-
ríska eignastýringarfyrirtækisins Col-
umbia Wanger á ríflega fimm prósenta
hlut í Marel í haust. Þar eru á ferð afar
öflugir og reynslumiklir fjárfestar sem
horfa til lengri tíma. Það er fróðlegt og
ánægjulegt að sjá að þeir deila skoðun-
um okkar á horfum í atvinnugreininni og
þróun markaða næstu árin.
Þegar alþjóðlegt efnahagslíf og fjár-
málamarkaðir taka við sér að nýju sjáum
við mikil tækifæri til þess að vaxa með
góðum og arðbærum innri vexti eftir
að hafa styrkt samkeppnisstöðuna með
vel heppnuðum yfirtökum síðustu ár.
Einnig hefur ekkert verið gefið eftir í
fjárfestingum tengdum vöruþróun félags-
ins á sama tíma og samkeppnisaðilar fé-
lagsins hafa dregið stórlega úr rannsókn-
ar- og þróunarkostnaði. Samkeppnisstaðan
er því sterk og fram undan uppskerutími
ef rétt er haldið á spilunum.
LÆRUM AF REYNSLUNNI
Árið 2010 verður að mörgu leyti erfitt ár
fyrir okkur Íslendinga. Árið mun að öllum
líkindum marka botninn í kreppunni, en
á sama tíma er það sá tímapunktur þegar
ástandið fer að batna að nýju ef rétt er
haldið á málum.
Óhjákvæmilegt er að hið opinbera
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest:
Ár uppbyggingar fram undan
E
ins og flesta morgna vaknaði ég
snemma með dóttur minni. Fyrir
mér lá meðal annars að skrifa
stuttan pistil í áramótablað Mark-
aðarins og skila honum fyrir há-
degi. Þegar ég hellti AB-mjólkinni með suð-
rænum ávöxtum í skálina handa henni fór
ég að velta því fyrir mér hvað ég ætti að
skrifa um við þessi tímamót. Fljótlega stað-
næmdust hugsanir mínar við hvað þessi
unga dama mundi spyrja mig um þegar
áhugi hennar vaknaði síðar meir á sögunni,
þjóðfélaginu og hagfræði.
SPURNING NÆSTU KYNSLÓÐAR
Niðurstaða mín var sú að tveir möguleikar
kæmu til greina og sá fyrri væri eitthvað
á þessa leið: „Hvað voruð þið að hugsa?
Sáuð þið virkilega ekki að þið gerðuð
hverja vitleysuna
á fætur annarri?
Voru skattahækk-
anir, háir vext-
ir og ríkisvæð-
ing atvinnulífs-
ins eina leiðin
sem þið komuð
auga á, þótt þekkt
hefði verið í átta-
tíu ár að slíkar
áherslur leiddu
efnahagslífið ein-
göngu í enn meiri
ógöngur?
Eða hún myndi
spyrja: „Hvernig
fó r u ð þ i ð a ð
þessu? Y kkur
tókst að vinna
ykkur út úr þess-
ari hræðilegu bankakreppu á undraverð-
um hraða þannig að aðdáun vakti um heim
allan. Ég er stolt af því hvernig þið lögðuð
grunn að öflugum markaðsbúskap á ný sem
er í fremstu röð í samfélagi þjóðanna. Það
er gott að vera Íslendingur.“
MINNI KREPPA EN SPÁÐ VAR
Nú rúmu ári eftir hrunið er erfitt að átta sig
á því hvor niðurstaðan er líklegri. Þegar litið
er á helstu hagstærðir virðist mega draga
þá ályktun að okkur hafi farnast ívið betur
en búist var við. Þannig hefur landsfram-
leiðsla á árinu 2009 dregist minna saman
en spáð var, atvinnuleysi er einnig minna
og viðskiptin við útlönd hafa verið hagstæð-
ari en reiknað var með. Á móti hefur hins
vegar endurskipulagning hagkerfisins geng-
ið hægt og efast má um margt sem þar hefur
verið gert – og ekki gert.
JÁKVÆÐ MERKI Á MARKAÐI
Við þetta má bæta af því að Kauphöll-
in stendur mér nærri að á þeim vettvangi
hafa birst ýmis jákvæð teikn. Til marks um
það er hröð endurreisn skuldabréfamark-
aðar á árinu 2009. Þar erum við á áætlun –
og virkur skuldabréfamarkaður er einn af
hornsteinum skilvirks markaðsbúskapar.
Við bjuggumst ekki við miklu af hlutabréfa-
markaði á líðandi ári, þótt þar hafi einn-
ig gerst jákvæðir hlutir, meðal annars sala
Marel á hlutum til Columbia Wanger og vel
heppnað hlutabréfaútboð fyrirtækisins. Við
væntum þess hins vegar – og munum gera
það sem í okkar valdi stendur – að hann nái
sér á strik á komandi ári.
SEX ATRIÐI
Enginn vafi er á því að við erum á kross-
götum um þessar mundir. Réttar ákvarð-
anir núna skipta miklu máli fyrir hagvöxt
og velferð í framtíðinni. Ég vil nefna hér á
eftir sex atriði sem að ég tel brýnt að hafa
sérstaklega í huga á þessum krossgötum.
1. Leysa þarf sem fyrst atvinnulífið úr viðj-
um ríkis- og bankavæðingar. Ríkisbúskap-
ur af því tagi sem við búum nú við getur
ekki borið uppi hagvöxt og velmegun til
framtíðar.
2. Nýta verður hlutabréfamarkaðinn til að
losa okkur úr þessum viðjum. Hann er öfl-
ugt tæki til þess að auka valddreifingu,
gegnsæi og reisa efnahagslífið við.
3. Gegnsæi þarf að vera á borði, ekki bara
í orði. Meðal annars þarf að endurbæta
vinnulag við sölu fyrirtækja og eignarhald
banka verður að vera gegnsætt.
4. Töluverðar hættur felast í framleng-
ingu gjaldeyrishafta: óbeinn kostnaður,
trúverðugleiki skaðast og spilling eykst.
5. Efnahagsstefnan má ekki vera úr takti
við hagsveifluna. Í núverandi stöðu hags-
veiflunnar er vafasamt að aðhaldsstig ríkis-
fjár- og peningamála sé rétt stillt. Hugsan-
lega er víðs fjarri að svo sé.
6. Draga þarf réttan lærdóm af fjármála-
kreppunni/bankahruninu. Sníða þarf agnúa
af markaðshagkerfinu en ekki snúa baki við
kerfi sem reynst hefur vel um langt skeið
og stuðlað að mikilli velmegun.
BÖRNIN LÍTA UM ÖXL
Þegar næsta kynslóð lítur um öxl og vegur
og metur hremmingarnar sem sóttu að þjóð-
inni undir lok fyrsta áratugar aldarinnar
vona ég og óska að hún geti dáðst að hyggju-
viti og yfirvegun ráðandi kynslóðar á þeim
tíma – og enn verði hér í boði AB mjólk – og
önnur lífsgæði – í hæsta gæðaflokki.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar:
Á krossgötum
Þegar næsta
kynslóð lítur um
öxl og vegur og
metur hremming-
arnar sem sóttu
að þjóðinni undir
lok fyrsta ára-
tugar aldarinnar
vona ég og óska
að hún geti dáðst
að hyggjuviti og
yfirvegun ráðandi
kynslóðar