Fréttablaðið - 30.12.2009, Page 50

Fréttablaðið - 30.12.2009, Page 50
26 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is Höskuldi Þráinssyni, prófessor í ís- lensku nútímamáli, voru í gær veitt verðlaun úr verðlaunasjóði Ásu Guð- mundsdóttur Wright og var hann út- nefndur vísindamaður ársins. „Höskuldur hefur aukið hróður ís- lenskunnar bæði hér heima og erlend- is,“ segir Sigríður Ása Sturludóttir, formaður stjórnar Ásusjóðs. Höskuld- ur hefur gefið út þrjár bækur á síð- ustu árum. Árið 2004 gaf hann út bók um færeysku með þremur færeyskum málfræðingum en þar er að finna sam- anburð á íslensku og færeysku og grein- ingu á því hvernig málin hafa þróast. Ári síðar gaf hann út stóra handbók um íslenska setningagerð, sem er þriðja bindið í ritsafninu Íslensk tunga, og árið 2007 kom út bók um íslenska setninga- fræði hjá Cambridge University Press. „Undanfarin ár hef ég svo ásamt öðrum verið að vinna að verkefni um tilbrigði í íslenskri setningagerð eftir aldurshópum og landshlutum og hefur fjöldi manns aðstoðað við verkið. Gagnaöflun er að mestu lokið og stefni ég að því að gefa út bók á næsta ári.“ Inntur eftir niðurstöðum segir Hös- kuldur þær helstu vera að munurinn á setningagerð sé frekar á milli aldurs- hópa en landshluta. „Fyrir allmörgum árum stjórnuðum ég og félagi minn Kristján Árnason hins vegar verk- efni þar sem við bárum saman fram- burð eftir landshlutum og aldurshóp- um og þá var ennþá talsverður lands- hlutabundinn munur á framburði. Sama landshlutamun höfum við ekki fundið í setningagerðinni.“ Höskuldur er að vonum ánægður með verðlaunin en þau eru með virt- ustu verðlaunum sem íslenskur vísinda- maður getur hlotið. „Maður eflist allur við þetta,“ segir hann. Ása Guðmundsdóttir Wright, stofn- andi verðlaunasjóðsins, var dóttir Guðmundar Guðmundssonar læknis á Stykkishólmi. Hún lagði stund á hjúkr- unar- og ljóðsmóðurnám í Lundúnum en settist að lokum að í Trinidad í Vest- ur-Indíum. Þar rak hún plantekru í Arimadal. Ása var barnlaus og ráðstaf- aði jarðeign sinni til félags fuglaskoð- ara á efri árum og var henni breytt í náttúrufriðlandið Asa Wright Nature Centre. Söluandvirði bújarðarinnar notaði Ása meðal annars til að stofna verðlaunasjóð á hálfrar aldar afmæli Vísindafélags Íslendinga árið 1968 og hafa verðlaun úr honum verið veitt ár- lega síðan. Sjóðurinn hefur rýrnað með árunum og eru Alcoa - Fjarðarál og HB Grandi styrktaraðilar hans. Fyrir skemmstu kom bókin Kona þriggja eyja eftir Ingu Dóru Björns- dóttur út en hún fjallar um ævi og störf Ásu. Auk þess stendur yfir yfir sýning á munum hennar í Þjóðminjasafninu. vera@frettabladid.is HÖSKULDUR ÞRÁINSSON: VÍSINDAMAÐUR ÁRSINS Eykur hróður íslenskunnar VON Á NÝRRI BÓK Höskuldur hefur að undanförnu rannsakað tilbrigði í íslenskri setningagerð eftir aldurshópum og landshlutum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN TIGER WOODS ER 34 ÁRA Í DAG „Ég sé fyrir mér með því að leika mér. Hvers er hægt að óska sér meira en að fá borgað fyrir að gera það sem manni finnst skemmti- legast?“ Tiger Woods er bandarísk- ur atvinnumaður í golfi. Hann er talinn með bestu kylfing- um heims og hefur margoft unnið Masters-mótið, U.S Open, British Open og PGA- mótaröðina. Vegna erfiðleika í einkalífi hefur hann þó dreg- ið sig úr keppni í bili. MERKISATBURÐIR 1880 Svo hörð og langvarandi frost eru að gengið er á ís frá Reykjavík og upp á Kjalarnes. 1883 Fyrstu kirkjuhljómleikar á Íslandi eru haldnir í Dóm- kirkjunni í Reykjavík. 1922 Rússland, Hvíta-Rússland, Úkraína og Suður-Kákas- us mynda Sovétríkin. 1940 Arroyo Seco Parkway, fyrsta hraðbrautin í Kali- forníu, er opnuð. 1980 Patrick Gervasoni, frönsk- um manni sem sagð- ur var landflótta, er vísað af landi brott eftir mjög miklar deilur. 2006 Saddam Hussein, fyrr- verandi forseti Íraks, er tekinn af lífi. Þennan dag árið 1924 tilkynnti bandaríski stjörnufræðingurinn Edwin Hubble að hann hefði uppgötvað aðrar stjörnuþokur. Stjörnuþoka, sem er stundum kölluð vetr- arbraut, er þyrping fjölmargra stjarna og ann- arra stjarnfræðilegra fyrirbæra sem haldast í nágrenni hvert við annað vegna sameigin- legs þyngdarsviðs stjörnuþokunnar. Dæmi- gerðar stjörnuþokur geta verið frá þúsundum til hundraða þúsunda ljósára í þvermál. Í einni stjörnuþoku er talið að séu um 100-400 millj- arðar stjarna, stundum miklu fleiri. Í flestum til- vikum er vegalengdin á milli stjörnuþoka talin í milljörðum ljósára en þó eru til stjörnuþokur sem eru mun nær hvor annarri og jafnvel dæmi þess að tvær rekist saman. Í dag telja menn að í alheiminum séu um 100-400 milljarðar stjörnuþoka. Talið er að svarthol sé í miðju þeirra allra. ÞETTA GERÐIST: 30. DESEMBER 1924 Hubble uppgötvar stjörnuþokur EDWIN POWELL HUBBLE Tónlistarhópur- inn Elektra En- semble heldur tónleika á Kjar- valsstöðum klukkan átta í kvöld. Á efnis- skrá verða verk frönsku tón- skáldanna Gau- bert, Saint- Saëns, Milhaud, Debussy og Fauré. Elektra En- semble saman– stendur af fimm ungum tónlistar- konum sem allar hafa leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og var hópurinn valinn tónlistarhópur Reykjavíkurborg- ar árið 2009. Tónleikarnir í kvöld verða lokatónleikar hópsins sem tónlistarhóps Reykjavíkurborgar. Miða- verð á tónleikana er 1.500 krónur en 1.000 fyrir börn, nemendur, eldri borgara og öryrkja. Frönsk tónlist á efnisskránni ELEKTRA ENSEMBLE Heldur tónleika á Kjar- valsstöðum í kvöld. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sæmundur Sæmundsson lést af slysförum þann 18. desember sl. Hann verður jarðsunginn frá Digraneskirkju þann 30. desember kl. 15.00. Oddur Sæmundsson Eydís Ingimundardóttir Íris Sæmundsdóttir Heimir Hallgrímsson Jón Trausti Sæmundsson Grace Fu Sigrún Erla Sæmundsdóttir Guðbjörn Alexander Sæmundsson Pétur Ásbjörn Sæmundsson Kolbrún Birna Bjarnadóttir og barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Finnbogi Vikar Hjalla, Ölfusi, lést á Hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi, fimmtudaginn 24. desember. Guðmundur K. Vikar Guðný Snorradóttir Lilja Vikar Þorsteinn Hauksson Erna Vikar Unnur Vikar Friðrik Kjartansson Sigrún Vikar Benedikt Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, sonur og bróðir, Björn Björnsson sem lést af slysförum 18. desember sl. verður jarðsung- inn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvini Sjálfsbjargar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Björn Viðar Björnsson Margrét Björnsdóttir Halldór Guðfinnsson Hildigunnur Guðfinnsdóttir Björn Ólafur Ingvarsson Þorsteinn Björnsson Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi, Guðmundur Heiðar Guðjónsson frá Bakkagerði, Ystaseli 21, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 26. desember. Halldóra Sigurðardóttir Heiðrún Ásta Guðmundsdóttir Andrew James Scrimshaw Sigurjón Már Stefánsson Ásta Sólveig Stefánsdóttir Guðjón Guðmundsson og barnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.