Fréttablaðið - 07.01.2010, Síða 12
12 7. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
EFNT ER TIL FORVALS Á VERSLUNAR- OG VEITINGAÞJÓNUSTU Í
HÖRPU, TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚSINU Í REYKJAVÍK
Ago, dótturfélag Portusar, leitar að áhugasömum rekstraraðilum í húsið sem verður opnað vorið
2011. Við val á þeim verður styrkleiki vöru og þjónustu, þekking, reynsla, geta og nýbreytni lögð
til grundvallar.
Forvalsgögn munu liggja frammi á skrifstofu Portusar, Austurstræti 17, 5. hæð, 101 Reykjavík frá
og með föstudeginum 8. janúar.
Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á sama stað, eigi síðar en kl. 16:00, föstudaginn
29. janúar, merktum: Ago – viðskiptatækifæri: FORVAL.
Sérstök athygli er vakin á kynningarfundi sem verður haldinn á Grand Hóteli í dag,
fimmtudaginn 7. janúar kl. 15. Þar verða veittar nánari upplýsingar um forvalið og
forvalsgögnum dreift.
Almennar upplýsingar á: www.portusgroup.is
Á ÞÍN
REKSTRAR-
HUGMYND
HEIMA Í
HÖRPU?
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/P
O
R
4
86
22
0
1/
10
Ætlar þú að gera þér dagamun
á þrettándanum?
JÁ 34,2%
NEI 65,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Tók forseti Íslands rétta ákvörð-
un í Icesave-málinu?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþingis sendir dóms-
mála- og mannréttindaráðuneytinu tóninn í nýju
áliti sínu um Þjóðskrá. Ráðuneytið hefur í þrettán
ár trassað að setja reglur um hámarkslengd nafna í
Þjóðskrá. Segir umboðsmaður að það athafnaleysi
sé ekki í samræmi við lög.
Tildrög málsins voru þau að umboðsmanni barst
kvörtun frá foreldri sem ekki gat skráð fullt nafn
dóttur sinnar í tölvuskrá Þjóðskrár þar sem það var
meira en 31 stafabil að lengd. Það réði tölvukerfið
ekki við, og gerir ekki enn.
Í slíkum tilvikum hefur venjan verið sú að starfs-
menn Hagstofunnar gera munnlegt samkomulag við
viðkomandi um að skrá nafnið með tilteknum hætti,
oft skammstöfunum, í Þjóðskrána. Við það öðlast
hið skráða nafn hins vegar lagalegt gildi, og ber eft-
irleiðis að nota það í öllum samskiptum og viðskipt-
um við opinbera aðila.
Umboðsmaður Alþingis kemst sem áður segir
að þeirri niðurstöðu að setja þurfi reglur um það
hvernig skuli meðhöndla þessi tilvik og samkomu-
lag sem þessi þurfi að verða formleg og skrifleg. - sh
Umboðsmaður Alþingis sendir dómsmálaráðuneytinu tóninn í nýju áliti:
Gagnrýnir skráningu í Þjóðskrá
ÞJÓÐSKRÁ Ekki er hægt að heita lengra nafni en sem nemur
31 stafabili. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl-
maður hefur verið dæmdur í tólf
mánaða fangelsi, þar af níu skil-
orðsbundna í þrjú ár, fyrir tvær
hrottalegar líkamsárásir árið
2008. Fyrst réðst maðurinn á
annan mann fyrir utan Lands-
bankann á Laugavegi 77. Árásar-
maðurinn sló hinn hnefahöggi í
andlitið og síðan með glerflösku í
höfuðið þannig að hann féll í jörð-
ina. Síðan sparkaði hann í bringu
fórnarlambsins, sem hlaut mar í
kringum augnumgjörð og brotið
bringubein.
Síðar réðst ofstopamaðurinn á
mann á Laugavegi. Hann kýldi
manninn í andlitið og sparkaði
í höfuð hans og líkama. Fórnar-
lambið hlaut beinbrot bæði á lík-
ama og í andliti.
Árásarmaðurinn játaði sök
fyrir dómi og samþykkti bótakröf-
urnar. En hann krafðist lægstu
refsingar sem lög leyfa og þess að
bótakröfur yrðu lækkaðar. Hann
var dæmdur til að greiða fyrra
fórnarlambinu rúmlega 380 þús-
und krónur í miskabætur. Þá var
hann dæmdur til að greiða mann-
inum sem hann réðst á í seinna
skiptið ríflega 500 þúsund krón-
ur í miskabætur. - jss
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Maðurinn
játaði sök fyrir dómi.
Réðst með hrottalegum hætti á menn á Laugavegi:
Dæmdur í árs fangelsi
STJÓRNMÁL Þorleifur Gunnlaugs-
son, oddviti Vinstri grænna í borg-
astjórn, sæktist eftir fyrsta sæt-
inu í forvali Vinstri grænna fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Áður hafði Sóley Tómasdóttir,
borgarfulltrúi flokksins, lýst því
yfir að hún myndi sækjast eftir
fyrsta sætinu. Að óbreyttu munu
flokksmenn því geta kosið á milli í
það minnsta tveggja frambjóðenda
í fyrsta sætið. Forvalið fer fram 6.
febrúar næstkomandi. - bj
Forval VG í Reykjavík:
Tvö vilja fá
fyrsta sætið
ÞORLEIFUR
GUNNLAUGSSON
SÓLEY
TÓMASDÓTTIR
STJÓRNSÝSLA Enn hefur ekki verið
ráðinn þjóðgarðsvörður á Þing-
völlum í stað Sigurðar Oddsson-
ar sem féll frá í ágúst. Þingvalla-
nefnd ákvað á fundi 26. október
að auglýsa eftir nýjum þjóðgarðs-
verði og sagði þá stefnt að því að
gengið yrði frá ráðningunni fyrir
1. janúar. 78 umsóknir bárust.
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigð-
isráðherra og formaður Þing-
vallanefndar, segir til hafa stað-
ið á þriðjudag að eiga viðtöl við
umsækjendur en það hafi frestast
vegna Icesave-málsins. „En við
stefnum að því að ljúka umfjöll-
un um umsóknir fyrir vikulokin,“
segir formaðurinn. - gar
Starf Þingvallanefndar tefst.
Hafa ekki ráðið
þjóðgarðsvörð
FANGELSISMÁL „Við þurfum að fá
að vita hvenær og hverjar úrbæt-
ur verða gerðar á einangrunar-
málum fanga hér á landi. Annars
endar þetta bara með stórslysi.“
Þetta segir Erlendur S. Baldurs-
son, aðstoðarmaður forstjóra
Fangelsismálastofnunar.
Síðdegis í gær sátu þrjátíu
manns í gæsluvarðhaldi, þar af
helmingur í einangrun. Fangels-
ismálastofnun hefur yfir að ráða
samtals tíu einangrunarplássum.
Í gær og fyrradag voru tíu manns
úrskurðaðir í gæsluvarðhald og
allir í einangrun. Flestir þeirra
eru af erlendum uppruna. Í ein-
angrun sitja ásamt fleirum fyrir
þrír strokufangar, tveir íslenskir
sem reyndu að strjúka af Litla-
Hrauni fyrir nokkrum dögum
og einn erlendur. Umræddir þrír
strokufangar sæta þeim viður-
lögum að vera í einangrunarvist
í allt að hálfum mánuði.
Erlendur segir að af þessum tíu
mönnum sem úrskurðaðir voru í
einangrun á tveim síðustu sól-
arhringum sé pláss fyrir tvo til
þrjá á Litla-Hrauni. Hina verði
að vista á lögreglustöðvum þar
til pláss skapist í fangelsum.
„Við erum með alltof fá ein-
angrunarpláss, þegar svona
kemur upp á eins og margoft
hefur verið bent á,“ segir Erlend-
ur. „Kerfið þolir því óskaplega
lítið. Það er alltaf við suðumark
og er alltaf pínt upp í efstu mörk.
Ef upp kemur eitthvert brot þar
sem margir eru úrskurðaðir í
einangrun, þá höfum við einfald-
lega ekki pláss, sem aftur þýðir
að lögreglan þarf að snúast með
þessa fanga um allar trissur.“
Erlendur minnir á tillög-
ur Fangelsismálastofnunar til
úrbóta í þessum málum, sem nú
liggja fyrir.
„Okkur vantar auðvitað nýtt
fangelsi. Það er ekkert öðru-
vísi. Við getum ekki endalaust
notað fangelsi sem halda hvorki
vatni né vindi, eins og Hegning-
arhúsið,“ undirstrikar Erlendur.
„Í Bitru fáum við eitthvað um
tuttugu afplánunarpláss en það
hjálpar ekkert upp á einangrun-
armálin, þar sem hafa þarf menn
í haldi af því að þeir eru hættu-
legir eða vegna rannsóknarhags-
muna. Dómsmálaráðherra hefur
stutt við þennan málaflokk eftir
föngum og það ber að þakka. En
fjárveitingarvaldið verður að
fara að gera sér grein fyrir alvar-
legri stöðu mála hér.“
jss@frettabladid.is
ERLENDUR S. BALDURSSON Segir fjárveit-
ingarvaldið verða að gera sér grein fyrir
alvarlegri stöðu í einangrunarmálum.
EINANGRUNARGANGUR Á LITLA-HRAUNI Tíu einangrunarpláss eru í fangelsum
landsins. Þau eru fullsetin og vista þarf einangrunarfanga á lögreglustöðvum.
Skortur á ein-
angrun endar
með stórslysi
Vista þurfti fimm einangrunarfanga á lögreglu-
stöðvunum í gær, þar sem öll einangrunarrými
voru full. Fangelsismálastofnun segir þetta enda
með stórslysi, verði ekkert að gert.