Samtíðin - 01.07.1943, Page 35
SAMTÍÐIN
31
ÞEIR VITRIJ Nýjar bækur
.......-SÖGÐU:
Fögur rödd er eins og bros í eyrað!
Það eru ósmáar kröfur, sem gerðar
eru til ræðumanna nú á tímum. Það
þarf vissulega mikla hæfileika og
kunnáttu til þess að geta uppfyllt
þær. En öll verðum við að reyna að
komast eins langt og unnt er á þessu
sviði. Af góðum ræðumanni verður
að krefjast þess, að hann sé vel
menntaður og að hann misbjóði
aldrei þeirri tungu, sem hann mælir
á. Hann verður að hafa mikla og
fagra rödd, sem hlotið hefur full-
komna þjálfun og hann verður jafn-
an að hafa nægan orðaforða á hrað-
bergi. Ræðumaður verður að hafa
næman og öruggan smekk. Hann á
að vera fljótur að átta sig á aðal-
atriðunum í hverju máli, og hann
verður að vera minnugur. Enginn
maður á nokkum tíma að halda
ræðu í þeim tilgangi að auglýsa sjálf-
an sig eða til þess að afla sér hróss,
heldur einungis til þess að fræða
aðra og lyfta þeim á hærra menn-
ingar- og þekkingarstig. Sérhver
göfugur ræðumaður á að meta land
s-itt og þjóð mikils. Gamalt latneskt
orðtak segir: Nemo orator
n i s i v i r b o n us, þ. e. Enginn
nema góður maður getur orðið ræðu-
skörungur. — Elton lávarður.
Vertu fljótur að taka ákvarðanir
þínar, en segðu engum, hvaða for-
sendur liggja að baki þeim. Ákvarð-
anir þínar kunna að reynast réttar,
en röksemdir þínar eru vafalaust
rangar. — Mansfield lávarður.
Sverrir Kristjánsson: Siðskiptamenn
og trúarstyrjaldir. Erindaflokkur
sá, er höfundurinn i'lulti í útvarpið
veturinn 1941—42. 183 bls. Verð
ób. 28 kr., ib. 36 kr.
Ásgeir Hjartarson: Mannkynssaga I.
Þetta fyrsta bindi, sein er fvrst og
fremst menningarsaga, nær til árs-
ins 300 f. Kr 296 bls. Verð ób. 36
kr., ib. 50 kr.
Iðnsaga íslands. Ritstjóri Guðm.
Finnbogason. Bókin er gefin út til
minja um 75 ára afmæli Iðnaðar-
mannafélagsins í Reykjavík, bún
er í tveim bindum samtals um 830
bls., prýdd allmörgum myndum.
Verð ób. 100 kr„ íb. 140 kr.
Knattspyrnubókin. Löggill kennslu-
bók brezka Knattspyrnusambands-
ins. Með 52 myndum. Einar Björns-
son befur þýtt. 111 bls. Verð ób.
16 kr.
Dr. Guðm. Finnbogason: Huganir.
Greinasafn. 362 bls. Verð í skinn-
bandi 50 kr.
Leo Tolstoý: Kósakkar. Saga um ásl-
ir og hernað í Rússlandi. Jón
Helgason þýddi. 149 bls. Verð ób.
24 kr.
Ef yður vantar einbverja bók,
þurfið þér ekki annað en að bringja
eða skrifa til okkar — og bókin
verður send yður lieim — gegn póst-
kröfu út um land.
BÓKARÚÐ MÁLS OG MENNINGAR.
Laugavegi 19, Reykjavík.
Sími: 5055. Pósthólf 392.