Fréttablaðið - 22.01.2010, Qupperneq 12
22. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
VIÐSKIPTI Verðhugmyndir Íslands-
banka á 49 prósenta hlut í Skeljungi
þykja í hærri kantinum.
Flestir þeirra sem Fréttablað-
ið hefur rætt við segja verðmið-
hugmyndir bankans hljóða upp á
tífaldan EBITDU-hagnað (rekstr-
arhagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði). Þeir telja eðlilegra að
greiða fjórfaldan EBITDU, eða á
fjórða milljarð króna í mesta lagi.
Aðrir telja ekki réttlætanlegt að
greiða meira en fimm hundruð
milljónir króna fyrir hlutinn miðað
við slæma skuldastöðu Skeljungs
og verð á sambærilegum félög-
um við núverandi aðstæður. Allt
fari þetta eftir eiginfjárstöðu
Skeljungs, sem var neikvæð um
rúma 1,8 milljarða í lok árs 2008,
og hvað kaupendur eru tilbúnir til
að setja mikið af nýju fé í rekstur-
inn. Þá er ekki vitað hvernig bank-
inn kemur til móts við væntanleg-
an kaupanda.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að þrír hafi lagt fram tilboð
í Skeljung og eignir olíufélagsins.
Það eru núverandi meirihlutaeig-
endur, Guðmundur Þórðarson,
stjórnarformaður Skeljungs, Birgir
Þór Bieltvedt og Svanhildur Nanna
Vigfúsdóttir, auk félags Guðbjarg-
ar Matthíasdóttur og sænska fyrir-
tækisins Atlantic Tech Storage.
Um mánuður er þar til frestur
rennur út til að leggja fram bind-
andi tilboð í hlut bankans. - jab
Íslandsbanki
vill of mikið
fyrir olíufélag
Reiknað er með að kaupendur að minnihluta í
Skeljungi þurfi að leggja til nokkuð af nýju fé til að
koma rekstrinum á réttan kjöl. Olíurisinn Shell hef-
ur lagst á árar með stjórnendum til að laga stöðuna.
Skeljungur endurnýjaði
samning sinn við alþjóð-
lega olíufélagið Shell um
noktun skeljarinnar, vöru-
merkis Shell International,
um síðustu áramót og fær
verulegan afslátt af notkun
þess. Strangar reglur gilda
um notkun skeljarinnar og
er engum heimilt að nota
hana sem ekki hefur til
þess tilskilin leyfi.
Skeljungur greiddi eina milljón
dala fyrir leyfið árið 2008, jafnvirði
rúmra 90 milljóna króna á meðal-
gengi ársins. Einar Örn Ólafsson,
forstjóri Skeljungs, segir Shell hafa
viljað koma til móts við Skeljung í
skugga efnahags- og gengishrunsins
hér og lækkað verðið. Hann vildi
ekki tjá sig nánar um það. „Það
var verulegur afsláttur,“
sagði hann og bætti við
að fyrirtækið hafi unnið að
því að laga reksturinn að
breyttum aðstæðum.
Þar á meðal er fjölgun
mannlausra bensínstöðva
undir merkjum Orkunnar
og fækkun hefðbundinna
bensínstöðva. Bensín-
stöðvar undir merkjum
Orkunnar bættust við í
Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn og
Bolungarvík í desember í fyrra og er
stefnt að fjölgun mannlausra stöðva
á kostnað hinna á höfuðborgar-
svæðinu á þessu ári.
Einar segir þetta í samræmi við
breytt neyslumynstur eftir fall krón-
unnar frá miðju árið 2008 þegar
fleiri leituðu eftir ódýrara eldsneyti.
TILTEKT Í REKSTRINUM
EINAR ÖRN
ÓLAFSSON
LITHÁEN, AP Vygaudas Usackas, utanríkisráð-
herra Litháens, hefur sagt af sér vegna ásak-
ana um að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi
yfirheyrt grunaða hryðjuverkamenn í leyni-
fangelsi hennar í landinu.
Rannsókn á vegum þjóðþings landsins leiddi
í ljós að leyniþjónusta Litháens hafi aðstoðað
CIA við að setja upp með leynd fangelsi í land-
inu.
Usackas heldur því nú fram að grunaðir
hryðjuverkamenn hafi aldrei verið yfirheyrð-
ir þar, en segir af sér vegna þess að Dalia
Gryb auskaite, forseti Litháens, hefur dregið
sannleiksgildi þessa í efa. - gb
Usackas utanríkisráðherra Litháens:
Ráðherra hættir
vegna leynifangelsa
VYGAUDAS USACKAS
Utanríkisráðherra segir af
sér. NORDICPHOTOS/AFP
EIN AF VERSLUNUM SKELJUNGS Talsverð endurskipulagning hefur átt sér stað innan
veggja Skeljungs. Þar á meðal hefur mannlausum stöðvum verið fjölgað.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Stjórn VR skipar 4 fulltrúa í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og 4 til vara.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn skriflegt erindi til
Elísabetar Magnúsdóttur á skrifstofu VR fyrir kl. 12:00 á hádegi
fimmtudaginn 28. janúar 2010.
Þeir sem gefa kost á sér skulu:
Vera fullgildir félagar í VR og sjóðfélagar í Lífeyrissjóði verzlunarmanna.
Skila inn meðmælum minnst 10 félagsmanna frá 3 vinnustöðum.
Skila inn hreinu sakavottorði.
Uppfylla reglur um hæfi stjórnarmanna skv. reglum FME og 31. gr.
laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Magnúsdóttir hjá VR í síma 510 1700.
Átt þú erindi í stjórn
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna?
Gísla Martein í 2. sæti
Málefnin hafa verið aðalatriðið í kosningabaráttu minni
fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fer fram
á morgun. Ég hef kynnt framtíðarsýn mína fyrir Reykjavík
á fundum í Þjóðminjasafninu undir yfirskriftinni: Reykjavík
– hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? Fullt hefur
verið út úr dyrum á öllum fundunum. Ég þakka frábærar
viðtökur.
Ég sækist eftir 2. sæti á lista sjálfstæðismanna fyrir
borgarstjórnarkosningarnar og bið um stuðning ykkar.
Gísli Marteinn Baldursson