Samtíðin - 01.06.1951, Page 35
SAMTIÐIN
31
ÞE.R VITRU
■' SÖGÐU:
^LEXANDER JÓHANNESSON: „1
sveitum Islands býr kjarni þjóðar-
innar, er um allar aldir hefur háð
harða baráttu við óblíð náttúruöfl
og erfið skilyiði. Vöðvanna mátt
efldi kyn eftir kyn, og hreysti og
haiðfengi þjóðar vorrar hefur meitl-
azt og vaxið í byggðum landsins við
holl störf og hófsamt líf. Hér eins og
í öðrum löndum endurnýjast ætt-
stofninn, er úrkynjast í borgarlífinu
af blóði því, er streymir úr sveitum
landsins. Framtíð Islands er undir
því komin, að sveitir landsins legg-
ist ekki í auðn, heldur sé markvisst
að því unnið að efla hag þein-a og
auka, rækta landið, lýsa og bæta og
byggja á þann veg varasjóð íslenzks
þjóðernis, uppsprettu alls þess, sem
íslenzkt er.“
KlNVERSKUR SPEKINGUR: —
„Hugsaðu um eigin ágalla, er þú
liggur andvaka fyrri hluta nætur, og
galla annarra, meðan þú sefur síðairi
hluta nætur.“
LEO TOLSTOY: „Það er auðveld-
ara að skrifa 10 binda heimspekirit
en að lifa samkvæmt einni Mfsreglu.“
MACHIAVELLI: „Það eru til þrjú
gáfnastig. Þeir, sem eru á því fyrsta,
skilja allt af sjálfsdáðum. Aðrir skilja
það, sem útskýrt er fyrir þeim. Þeir
þriðju skilja hvorki af sjálfsdáðum
né þótt aðrir útskýri fyrir þeim.
Fyi-sta gáfnastigið er bezt, annað er
prýðilegt, það þriðja er gagnslaust.“
THOMAS CARLYLE: „Helgaðu
þig óskiptan einu starfi í einu.“
NYJAR BÆKUR
Þorsteinn Erlingsson: Litli dýravinurinn.
Ivvæði og sögur með myndum. Formáli
eftir Steingrím Arason. 04 bls., íb. kr.
25.00.
Taflfélag Reykjavíkur 50 ára. 1900 — 0.
október — 1950. Með myndum. 184 bls.,
ib. kr. 90.00.
Gestur Pálsson: Tilhugalíf. Skáldsaga. 63
bls. ób. kr. 0.50.
Kristján Eldjárn: Um Hólakirkju. Leið-
sögn um kirkju og kirkjugripi. Með
myndum. 52 bls. ób. kr. 12.00.
Einar B. Guðmundsson: Þungir straumar.
(Hvers vegna má vitið ekki ráða?) 78
bls., íb. kr. 25.00.
Alexandre Dumas: Kamilíufrúin. Skáld-
saga. Sigurður Fjeldsted og Þorkell Jó-
hannesson isl, 88 bls., ób>. kr. 15.00.
Krossgátuorðabók. 134 bls., ób. kr. 19.00,
íb. 24.00.
Björn J. Blöndal: Hamingjudagar. Úr dag-
bókum veiðimanns. 167 bls., ób. kr.
40.00, íb. 50.00.
Þorsteinn Jónsson: Formannsævi í Eyjum.
Sjálfsævisaga. Með myndum. Formáli
eftir Jóh. Gunnar Ólafsson. 272 bls., ób.
kr. 50.00, íb. 70.00 og 85.00.
Faðir minn. Með myndum. Pétur Ólafsson
hefur séð um útgáfuna. 361 bls., ib. kr.
70.00 og 80.00.
Sigfús Sigfússon: íslenzkar þjóðsögur og
sagnir IX. bindi. Örnefnasagnir um forn-
menn. Örnefnasagnir um seinni menn.
116 bls., ób. kr. 35.00.
Þórarinn Helgason: Noregsför bænda.
Með myndum. 110 bls., ób. kr. 25.00.
Landsmálafélagið Vörður 25 ára. Afmælis-
rit með myndum. 160 bls., ób. kr. 20.00.
Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaup-
ið bækurnar þar, sem úrvalið er mest.
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
BÖKAVERZLUN
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJU H.F.
Austurstræti 8. Reykjavík. Sími 4527.
Útibú: Laugavegi 12 og 82 og Leifsg. 4.