Fréttablaðið - 02.02.2010, Page 7
Auglýsing
SPILLINGUNA BURT ÚR
BORGARSTJÓRN
Að ósk Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista,
verður rætt um fjárhaglega hagsmuni borgarfulltrúa.
Ólafur mun gera ítar lega grein fyrir eignastöðu sinni og
krefjast þess, að aðrir borgar fulltrúar geri slíkt hið sama.
Mikið fjáraustur sumra sigursælla frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisfl okksins
rennir stoðum undir vísbendingar um að fjárhagsleg tengsl og eignastaða þeirra
geri þá vanhæfa til að gegna trúnaðarstörfum sem kjörnir fulltrúar Reykvíkinga.
Ólafur mun jafnframt krefjast þess að borgarastjórnar-
framboð fjórfl okksins geri grein fyrir því hvernig milljóna-
tuga framlögum borgarinnar til þeirra er ráðstafað.
Borgarstjórnarframboð fjórfl okksins hafa tvöfaldað framlög borgarinnar til sjálfra
sín en jafnframt komið í veg fyrir að framlög rynnu til F-lista framboðsins, sem
hefur þegar gert grein fyrir ráðstöfun á framlagi borgarinnar vegna ársins 2008
og lagt fram reikninga í borgarráði.
F-listinn vill að framlög sem honum voru ætluð vegna
áranna 2009 og 2010 renni til líknar- og velferðarmála
og skorar á hin framboðin að gera slíkt hið sama.
Borgarmálafélag F-lista
Á borgarstjórnarfundi í dag sem útvarpað verður á fm 98,3
og á heimasíðu borgarinnar, reykjavík.is, verður rætt um
spillingu í borginni. Útsending frá fundinum hefst kl. 14.00