Fréttablaðið - 12.02.2010, Page 2
2 12. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPNUM KL 8.00 ALLA VIRKA DAGA
Skötuselur
(Roðlaus/beinlaus/sjófrystur) Verð áður 3.990,-
Tilboð í dag og á morgun laugardag.
2.890 kr.kg.-
Skelfl ettur Humar
5.900 kr.kg Lausfrystur
Humar
2.000 kr.kg
Bryndís, takið þið öllum
áhugasömum opnum örmum?
„Já, í orðsins fyllstu merkingu.“
Mosfellingar ætla að setja heimsmet
í hópknúsi í tilefni Valentínusardags á
sunnudag. Bryndís Haraldsdóttir er í
undirbúningsnefnd kærleiksvikunnar í
Mosfellsbæ.
LÖGREGLUMÁL „Þetta var að frumkvæði skólans,“
sagði Baldur Gíslason, skólameistari Tækniskólans
í Reykjavík, spurður um ástæðu viðamikillar fíkni-
efnaleitar í skólanum í gærdag. Þar var á ferðinni
hópur lögreglumanna, svo og tollverðir með þrjá
fíkniefnaleitarhunda. Engin fíkniefni fundust að
sögn Baldurs. Á tólfta hundrað nemendur voru lok-
aðir inni í skólanum í 45 mínútur meðan á leitinni
stóð.
Spurður hvort beðið hefði verið um fíkniefnaleit-
ina vegna rökstudds gruns um fíkniefni í skólanum
sagði Baldur svo alls ekki hafa verið.
„Fyrst og fremst erum við að horfa á það að þetta
hafi ákveðið forvarnargildi,“ sagði hann. „Í okkar
forvarnarstefnu segjum við að ekki sé heimilt að
neyta fíkniefna. Þau séu bönnuð í skólanum, á lóð
skólans og svo framvegis. Þarna erum við svolítið
að fylgja fordæmi annarra skóla. Fjöldi skóla hefur
verið að gera þetta og við erum í raun og veru að
fara þá leið líka. Við höfum ekki gert þetta áður og
það var enginn sérstakur grunur til staðar.“
Spurður hvort ekki sé íþyngjandi fyrir nemendur
að fá slíka leit yfir sig að ástæðulausu, sagði Baldur
örugglega hægt að segja að það sé íþyngjandi að ein-
hverju leyti.
„Þetta eru inngrip að vissu leyti, en þetta er for-
vörn og niðurstaðan var mjög ánægjuleg.“ - jss
Lögreglumenn og tollverðir með þrjá fíkniefnaleitarhunda:
Skólayfirvöld báðu um fíkniefnaleit
TÆKNISKÓLINN Um tvö þúsund nemendur eru í Tækniskólan-
um. Myndin var tekin þar í gær þegar leit stóð yfir.
FRETTABLAÐIÐ/PJETUR
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í Hæstarétti í tveggja ára
fangelsi fyrir hrottaleg brot gegn
þremur börnum sínum. Hann var
jafnframt dæmdur til að greiða
þeim skaðabætur. Hæstiréttur
segir mál þetta fordæmalaust.
Maðurinn braut ítrekað gegn
börnunum sem voru í heimili með
honum frá sumri 2005 til febrú-
armánaðar 2008. Upp komst um
athæfi hans þegar tilkynnt var til
Neyðarlínunnar um ofbeldi hans
gagnvart þeim. Hann var sakfelld-
ur fyrir að hafa misþyrmt syni
sínum, fæddum 1993, með högg-
um og spörkum. Þá þvingaði hann
soninn til þess að stela áfengi úr
tjaldi og hótaði honum lífláti ef
hann ekki hlýddi. Í annað sinn
kastaði maðurinn hnífi að drengn-
um. Hnífurinn hafnaði í læri hans
svo sár hlaust af.
Aðra dóttur sína, fædda 1995,
handjárnaði hann og taldi dóm-
urinn sannað að hann hefði sleg-
ið hana í nokkur skipti í andlitið.
Börnin lýstu því raunar öll hvernig
faðir þeirra hefði slegið þau, klipið
og sparkað í þau.
Hinni dóttur sinni, fæddri 1999,
hrinti hann fullklæddri ofan í bað-
kar fullt af vatni og læsti hana úti
á náttfötunum. Sannað þótti að
maðurinn hefði áreitt börn sín
andlega með margvíslegum hætti
öðrum.
Lagt var fyrir Hæstarétt bréf til
réttargæslumanns barnanna frá
verkefnastjóra barnaverndar fjöl-
skyldunefndar 7. janúar 2010. Þar
kemur fram að uppeldisaðstæð-
ur barnanna, áður en til vistun-
ar á fósturheimili hafi komið, hafi
haft alvarlegar afleiðingar á and-
lega líðan þeirra. Til að vinna úr
þeim miklu áföllum sem þau hafi
orðið fyrir hafi þau þurft á mark-
vissri aðstoð sérfræðinga Barna-
og unglingageðdeildar Landspít-
alans að halda, auk þess sem þau
hafi notið þjónustu sérfræðinga
Barnahúss. Lýsandi fyrir alvar-
leika málsins sé að þau hafi „til
þessa alfarið hafnað að hitta föður
sinn, jafnvel undir eftirliti fóst-
urforeldra og/eða barnaverndar-
starfsmanna.“ Börnin hafi öll lýst
yfir ánægju með dvöl sína hjá fóst-
urforeldrum sínum, sem séu föð-
urfaðir þeirra og eiginkona hans.
Hæstiréttur þyngdi dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur yfir mann-
inum um tvo mánuði og staðfesti
að hann skyldi greiða syni sínum
1,2 milljónir króna og hvorri dótt-
ur 600 þúsund krónur í skaðabæt-
ur. jss@frettabladid.is
Barði dætur sínar og
særði son með hnífi
Karlmaður var í gær dæmdur í Hæstarétti í tveggja ára fangelsi fyrir hrotta-
legar andlegar og líkamlegar misþyrmingar á þremur börnum sínum. Hann
kastaði hnífi í son sinn og handjárnaði dóttur sína, auk annars athæfis.
HÆSTIRÉTTUR Segir málið sem um ræðir án fordæmis og að faðirinn sem mis-
þyrmdi börnum sínum þremur, eigi sér engar málsbætur.
1. Sló son sinn og sparkaði í hann í nokkur skipti. Tók piltinn kverkataki.
2. Neyddi son sinn til að stela áfengi úr nærliggjandi tjaldi með því að hóta
honum lífláti að öðrum kosti.
3. Kastaði hnífi að syni sínum, Hnífurinn stakkst ofarlega í innanvert læri
hans.
4. Handjárnaði dóttur sína og sló hana í nokkur skipti í andlit.
5. Sló aðra dóttur sína oft í andlit. Hrinti henni fullklæddri í baðkar, fullt af
köldu vatni.
6. Lokaði sömu dóttur úti á náttfötum einum fata í köldu veðri að vetri til.
7. Drap heimilisköttinn að tveimur barnanna ásjáandi og lét annnað þeirra
henda honum í ruslatunnuna, þar sem þriðja barnið fann hann.
8. Vakti börnin að nóttu til þegar hann var drukkinn og lét þau vinna ýmis
húsverk.
BROT FÖÐURINS
FJÖLMIÐLAR „Þetta verður von-
andi komið í lag í þessari viku eða
í síðasta lagi í næstu viku,“ segir
Karl Jóhann Jóhannsson, vefstjóri
hjá ruv.is, um erfiðleika sem hafa
verið fyrir notendur að tengjast
vefnum. Að sögn Karls Jóhanns
stafar vandinn af því að verið er
að skipta um vefumsjónarkerfi
fyrir ruv.is. Sú yfirfærsla hafi
staðið yfir frá því í síðustu viku.
Hann segir það helst vera not-
endur hjá Tali og Hive en einnig
hjá Vodafone sem orðið hafi fyrir
óþægindum og ekki getað tengst
aðalsíðu ruv.is. „En ég bendi á að
það er hægt að sjá allar upptökur
vandalaust á dagskra.ruv.is,“ segir
vefstjórinn. - gar
Hnökrar hjá fréttavef RÚV:
Kerfisbreyting
veldur truflun
RUV.IS Vefstjóri vonar að tæknivandi
verði fljótt úr sögunni.
DÓMSMÁL Lögreglumaður hefur
verið sýknaður í Héraðsdómi
Reykjavíkur af broti í opinberu
starfi og líkamsárás.
Honum var gefið að sök að
hafa, sem stjórnandi lögregluað-
gerðar, fyrirskipað öðrum lög-
reglumanni að aka með mann
frá Austurstræti út á Granda í
Reykjavík þar sem maðurinn
var skilinn eftir. Á leiðinni út á
Granda átti hinn ákærði að hafa
þrýst hné sínu á háls mannsins
þar sem hann lá handjárnaður
í tökum lögreglu á maganum á
gólfi lögreglubifreiðar. - jss
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Lögreglumaður
var sýknaður
VERÐLAUN Matvöruverslunin
Fjarðarkaup í Hafnarfirði er
fyrirtæki ársins 2010 og Magn-
ús Geir Þórðarson, leikhússtjóri
Borgarleikhússins, viðskipta-
fræðingur síðasta árs, samkvæmt
vali Félags viðskiptafræðinga og
hagfræðinga (FVH).
Sá sem valinn er viðskipta-
eða hagfræðingur ársins hlýtur
verðlaunin fyrir framúrskarandi
árangri í starfi sínu á liðnu ári.
Magnús tók við starfinu á vordög-
um 2008.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, afhenti verðlaunin
við hátíðlega athöfn FVH í gær.
- jab
Þekkingarverðlaun FVH:
Fjarðarkaup er
fyrirtæki ársins
Einkavörðum vísað úr landi
Nokkur hundruð fyrrverandi og
núverandi öryggisvörðum á vegum
verktakafyrirtækisins Blackwater hefur
verið vísað úr landi í Írak. Þarlend
stjórnvöld tóku þessa ákvörðun eftir
að sakamáli gegn fimm þeirra var
vísað frá dómi í Bandaríkjunum.
ÍRAK
VIÐSKIPTI Vestia, eignarhaldsfé-
lag Landsbankans, hefur formlega
tekið yfir eignarhald á IG, móður-
félagi Icelandic Group.
Eins og fram kom í samtali
Fréttablaðsins við Ásmund Stef-
ánsson, bankastjóra Nýja Lands-
bankans, (NBI) seint í janúar
stefndi í verulegan vanda félags-
ins eftir bankahrunið í hitti-
fyrra og veitti bankinn félaginu
fjárhagslegan stuðning. Síðan þá
hefur reksturinn snúist til betri
vegar og skilað hagnaði.
Steinþór Baldursson, fram-
kvæmdastjóri Vestia, segir ekki
verða gerðar breytingar á stjórn
eða rekstri Icelandic Group. - jab
Vestia tekur Icelandic Group:
Reksturinn skil-
ar loks hagnaði
NEYTENDUR Rúmlega tuttugu pró-
senta munur var á verði matvöru-
karfa þegar verðlagseftirlit ASÍ
kannaði verð í lágvöruverðsversl-
ununum á þriðjudag.
Karfan var ódýrust í Bónus. Þar
kostaði hún kr. 14.736 en dýrust
var hún í Kosti þar sem hún kost-
aði 17.920 krónur. Verðmunurinn
nemur 3.184 krónum, eða 22 pró-
sentum. Aðeins 111 króna munur
var á verði körfunnar í Krónunni
og Nettó. Karfan kostaði 15.959 í
Krónunni en 16.070 í Nettó.
Mestur var verðmunurinn á
nautahakki. Það var dýrast í Kosti,
kostaði 1.659 krónur, en ódýrast í
Krónunni þar sem kílóið kostaði
799 krónur. Munurinn nemur 108
prósentum.
Þá voru ferskar kjúklingabring-
ur dýrastar í Nettó en ódýrastar í
Bónus. Kíló af kjúklingabring-
um kostaði 2.941 krónu í Nettó en
1.598 krónur í Bónus. Munurinn
var 84 prósent.
Talsverður verðmunur var
sömuleiðis á spagettíi, grænmeti,
ávöxtum og fleiri vörum. Minnst-
ur var verðmunurinn hins vegar á
viðbiti, mjólkurvörum og sykruð-
um drykkjarvörum.
Tekið er fram á vefsíðu ASÍ að
um beinan verðsamanburð sé að
ræða, ekki sé lagt mat á gæði og
þjónustu.
Matarkarfan er ódýrust í Bónus en dýrust í Kosti, samkvæmt verðkönnun ASÍ:
Liðlega tvöfaldur verðmunur á hakki
Jón Gerald Sullenberger, stofnandi
Kosts, segir í tilkynningu, sem hann
sendi í gær, verðkönnunina senda
skýr skilaboð til Samkeppniseftirlits-
ins. Jón Gerald segir innlenda birgja
þjakaða af margra ára fákeppni á
matvörumarkaði. Það sjáist af því
að Kostur sé fyllilega samkeppnis-
fær með þær vörur sem verslunin
flytur sjálf inn, en ekki aðrar. Þá
gerir hann athugasemdir við for-
sendur könnunarinnar og segir að í
könnuninni séu borin saman verð á
lambalæri frá haustslátrun 2008 við
lambalæri af nýslátruðu 2009. Þá sé
kjúklingur sem aðrar verslanir selji
undir eigin merkjum ekki sambæri-
legur að gæðum og kjúklingar frá
Móum, sem Kostur selji.
SKILABOÐ TIL SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
TÍNT Í KÖRFUNA Talsverður verðmunur
er á milli lángvöruverðsverslana, eða
22 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SPURNING DAGSINS