Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.02.2010, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 12.02.2010, Qupperneq 24
2 föstudagur 12. febrúar núna ✽ nýtt og spennandi augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Þokkadísin Emmanuelle Seign- er er þekkt leikkona og skvísa í tískukreðsum Parísarborgar. Henni skaut fyrst upp á stjörnuhimin- inn þegar hún lék á móti Harri- son Ford í kvikmyndinni Frantic sem eiginmaður hennar, Roman Polanski, leikstýrði. Hún átti líka minnisstæðan leik í „Bitter Moon“ þar sem hún lék á móti Hugh Grant og hefur meðal annars leik- ið hlutverk í myndinni Détéctive eftir Jean-Luc Godard. Emmanu- elle, sem hóf feril sinn sem fyrir- sæta, er nú að gefa út sína fyrstu plötu, Dingue. Það er söngkonan Keren Ann sem semur meirihluta laganna en hún er Íslendingum að góðu kunn vegna samstarfs síns við Barða Jóhannsson undir nafninu Lady and Bird. Platan, sem kom út í fyrradag, er hugljúf og heillandi á afskaplega franskan máta og Emmanuelle syngur með látlausri og sjarmerandi röddu að hætti Jane Birkin. Þess má geta að í einu laganna, „La dérníere pluie“, syngur hún dúó með rokkgoðinu Iggy Pop. Fólk verður svo að meta það sjálft hvort Iggy á frönsku er hræðilegur eða yndislegur. - amb Eiginkona Polanskis gefur út plötu Skutla og söngfugl Emmanuelle Seign- er gefur út plötuna „Dingue“ sem þýðir galin. FRÉTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES YNDISFRÍÐ Fyrirsætan Natalia Vodianova var gestur á sýningu Gi- venchy á tískuvikunni í París nýver- ið. Hún er gift og nýorðin mamma og sést því minna á sýningarpöllun- um fyrir vikið. H ópur hönnuða, listamanna, leikara og annarra smekk- legra kvenna tekur sig saman og verður með flóamarkað á laugar- daginn. „Við erum tíu saman og ætlum að selja gömlu fötin okkar, gull úr geymslunum frá ömmum okkar og ýmsar aðrar gersemar,“ segir Adda Rúna Valdimarsdótt- ir, ein skipuleggjenda markaðar- ins. Sami hópur efndi til flóa- markaðar á sama stað síðastlið- ið haust og þar gerðu margir góð kaup. Í þetta sinn verður eftir enn þá meiru að falast, því nú verður meðal annars búslóð til sölu eins og hún leggur sig, heilu ömmugeymslurnar hafa verið hreinsaðar og kjólar sem hafa hangið of lengi óhreyfðir inni í skáp miskunnarlaust látn- ir fjúka með. Bútasaumsveggteppi, austur- lenskt glingur, bækur, gömul föt og ný, barnaföt og -dót, töskur og fleira er meðal þess sem hægt verður að næla sér í. Þá ætla nokkrir hönnuðanna að selja sína eigin hönnun. Þeirra á meðal eru Ríkey Kristjánsdótt- ir búningahönn- uður sem verður með hálsskart til sölu, bæði strokka og hálsmen, sem hún hannar sjálf. Sólbjörg Hlöðvers- dóttir þrykkjari verður með þrykk og skartgripi eftir sig og Adda Rúna Valdimarsdóttir verður meðal annars með sínar fallegu krummamyndir. Meðal annarra sem leggja til gersemar og skran eru leikkon- urnar Ester Talía Casey og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Þeir sem hafa gaman af því að fylgjast með öðrum gera góð kaup eða vilja slappa af á milli þess sem þeir dýfa sér í dótið geta svo keypt sér kaffi og með því, en kaffiaðstöðu verður komið fyrir í miðju húsnæðisins. Flóamarkað- urinn opnar klukkan 11 á laug- ardaginn og lokar klukkan 17. Hann er að finna í Bygggörðum 5, gömlu iðnaðarhúsnæði nærri Gróttuvita. - hhs Hönnuðir, myndlistarmenn og aðrar smekkkonur halda markað um helgina: FLÓAMARKAÐUR FYRIR FAGURKERA Markaðskonur Þær Sólbjörg, Ríkey og Adda Rúna eru á meðal tíu kvenna sem bjóða falt allt milli himins og jarðar á morgun. þetta HELST Öflugar og ódýrar brynjur frá SIXSIXONE Motocross hanskar í úrvali Motocrossbuxur frá FLY Herrajakkar Dömujakkar Hjálmar í úrvali McQueen minnst Íslenskir fatahönn- uðir og tískuhönn- uðir virðast jafn felmtri slegnir yfir sviplegu fráfalli Al- exanders McQueen og aðrir tískuspekúl- antar enda um mik- inn missi að ræða. McQueen var talinn einn helsti drif- kraftur og hugsuður tískuheimsins í dag og var frægur fyrir stórfeng- lega og djarfa sköpun á ári hverju. Meðal þeirra sem lýstu yfir sorg á Facebook yfir dauða hans eru Harpa Einarsdóttir, Arndís Ey, Ásta Kristjánsdóttir, Ragnheiður Axel, Ása Ottesen, Eygló Margrét Lárus- dóttir og Elísabet Alma Svendsen. Ást í GK Verslunin GK á Lauga- vegi er í rómantísku skapi vegna Valent- ínusardags um helg- ina. Eintök af róm- an tískustu bókum landsins, nánar tiltekið frá Rauðu seríunni, fylgja öllum kaupum þá dagana en ný heimasíða bókanna var einmitt að fara í loftið, www.raudaserian.is. Kærleikar í borginni Og meira um kærleik og ást. Há- tíðin KÆRLEIKAR er haldin í kvöld og hefst kl. 18 á Austurvelli. Há- tíðin er með Bergljótu Arnalds í forsvari og er haldin til að skapa samkennd og veita hvatningu og styrk. Í ár mun Páll Óskar taka lagið „Söngur um lífið“ og björgunarsveitar- menn sem voru á Haítí halda tölu. Harpa Einarsdóttir Bergljót Arnalds VIKTORÍA HERMANNSDÓTTIR NEMI Ég vakna með gleði í hjarta á föstudegi og skelli mér í vinnuna í Gyllta kettinum þar sem allt er fullt af nýjum fallegum vörum. Á laugardeginum er afmælispartí hjá bestu ömmu í heimi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.