Fréttablaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 64
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000
Mest lesið
VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sjóliðarnir buðu Þórhalli
Eins og fjölmiðlar greindu frá í
gær voru þýskir sjóliðar á ferð um
Reykjavík á þriðjudag og buðu
íslenskum stúlkum í gleðskap í
herskipi. Ekki varð þeim kápan úr
því klæðinu þar sem ábyrg móðir
lét lögregluna vita af því að 14 ára
dóttur hennar hefði verið boðið
og gleðskapurinn var því blásinn
af. Sjóliðarnir buðu þó ekki aðeins
stúlkum, því grínistinn Þórhallur
Þórhallsson sat inni á Kofa
Tómasar frænda þegar sjó-
liði rétti honum boðsmiða
í teitið. Hann spurði hvort
þeir væru ekki aðeins að
leita að stúlkum og sá
þýski svaraði að þeir
væru búnir að bjóða
fullt af stelpum.
Það fylgir sögunni
að hann hafn-
aði boðinu.
Bryndís fær meikóver
Karl Berndsen snýr aftur á Skjáinn
í mars með þátt sinn Nýtt útlit og í
þetta skipti verður frægum
Íslendingum gefið nýtt
útlit. Erfitt hefur reynst að
fá upplýsingar um hvaða
fólk Kalli tekur í gegn, en
samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins
eru engar aðrar en
Bryndís Schram og
Margrét Frímanns-
dóttir, forstöðumað-
ur Litla-Hrauns, á
listanum.
Fréttablaðið er með 212% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í nóvember 2009 – janúar 2010.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
73,8%
23,7%
Ekkert heilagt
Fjármálaráðherra er hvergi óhultur. Í
gær brá hann sér í Grafarvogskirkju
og las þar úr Passíusálmunum. Þar
fór hann meðal annars með ljóðlín-
urnar: „Innra mig loksins angrið sker
/ æ, hvað er lítil rækt í mér“ og „Yfir
hörmungar er mín leið /
æ meðan varir lífsins
skeið“. Þegar lestrinum
lauk sat Ríkisútvarp-
ið fyrir honum og
spurði hann um
Icesave.
- afb, sh
1 Slagsmál á Útvarpi Sögu:
Þingmenn gengu á milli
2 Erpur tjáir sig ekki vegna
rannsóknarhagsmuna
3 Hætta að dreifa klámi
4 Krefur lögreglustjóra um
skýringar á dópleit
5 Tvær konur kæra nauðgun