Fréttablaðið - 24.03.2010, Qupperneq 10
24. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
Takk fyrir hjálpina!
Áttu fyrir aukapoka?
Þegar þú kaupir inn geturðu keypt þurrmat og aðrar
nauðsynjar og sett í aukapoka. Pokanum komum við svo
í hendurnar á þeim sem þurfa á hjálp að halda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
00
70
5
Hér er tekið við aukapokanum:
Krónan í Reykjavík, Mosfellsbæ og Hafnarfirði
Nettó Mjódd, Hverafold, Akureyri, Reykjanesbæ og Grindavík
Bónus á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Fitjum Reykjanesbæ
Vissir þú...
...að framvegis verða afsláttarkort og greiðsluskjöl
frá Sjúkratryggingum Íslands rafræn?
...að afsláttarkort og greiðsluskjöl eru send á þitt
svæði í Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands?
...að einnig er hægt að greiða fyrir heilbrigðis-
þjónustu án afsláttar og fá endurgreiðslu frá
Sjúkratryggingum Íslands sem millifærð er inn á
bankareikning?
+
+
+
+
+
+
+
Frekari upplýsingar:
www.sjukra.is
Þjónustumiðstöð, sími 515-0000
Sendu póst á sjukra@sjukra.is
Sýsluskrifstofa í þínu héraði
SJÚKRATRYGGINGAR ÍSLANDS
LAUGAVEGI 114-118
150 REYKJAVÍK
Nú eru afsláttarkort og
greiðsluskjöl rafræn
www.sjukra.is
DÓMSMÁL Helgi Magnús Gunnars-
son, saksóknari efnahagsbrota,
krefst fjögurra ára fangelsis-
dóms yfir Hauki Þór Haraldssyni,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
rekstrarsviðs Landsbankans, sem
ákærður er fyrir að draga sér 118
milljónir. Sækjandi og verjandi
fluttu mál sitt fyrir dómi í gær.
Haukur færði féð af reikningi
félagsins NBI Holdings 8. október
2008 inn á eigin reikning. Félag-
ið var í eigu sjálfseignarsjóðs á
Guernsey og hafði á árum áður
verið notað af Landsbankanum til
fjárfestinga. Haukur var prókúru-
hafi þess og eini Íslendingurinn í
stjórn í seinni tíð.
Hann hefur sjálfur sagst hafa
ætlað að bjarga fénu frá því að
brenna upp í hruninu.
Helgi Magnús sagði að í miðju
hruni hefðu verið „kjöraðstæður
til að gera svona færslu án þess að
nokkur tæki eftir henni“. Ringul-
reiðin hafi verið mikil og illmögu-
legt að fylgjast með öllum fjár-
magnshreyfingum. Í því ljósi hafi
áhættan af því að millifærslan
kæmist upp ekki verið svo mikil
að hún girti fyrir brotið, eins og
verjandi Hauks hefur áður hald-
ið fram.
„Er eitthvað grunsamlegra fyrir
bankastarfsmann en að færa pen-
inga viðskiptamanns inn á eigin
reikning? Það hlýtur að hafa hróp-
að á hann að upplýsa samstarfs-
menn sína um þetta,“ sagði Helgi
Magnús. Það hafi Haukur hins
vegar ekki gert. „Hann greindi
engum frá þessu heldur lá á þess-
um millifærslum – þessu fé – í
mánuð.“
„Afstaða ákæruvaldsins í þessu
máli hefur valdið mér nokkrum
heilabrotum,“ sagði Gestur Jóns-
son, verjandi Hauks, og benti á
það sem hann sagði grundvallar-
atriði í málinu: að Haukur hefði
sem prókúruhafi haft fulla heim-
ild til að millifæra féð að vild, og
að ekkert benti til þess að hinn
stjórnarmaður félagsins og eig-
andi þess, sjálfseignarsjóðurinn
The 1886 Trust, hefðu nokkuð við
millifærsluna að athuga. „Ef þeir
gera enga athugasemd við það þá
er mjög skrítið að Haukur skuli
sæta ákæru fyrir fjárdrátt,“ sagði
Gestur.
Þar fyrir utan hefði hann enga
tilraun gert til að hylja slóð sína
eða snerta á fénu þar sem það lá á
sérgreindum bankareikningi hans.
stigur@frettabladid.is
Vill Hauk í 4
ára fangelsi
Saksóknari krefst fjögurra ára fangelsisdóms í fyrsta
málinu tengdu bankahruninu sem tekið er til dóms.
Verjandinn segir málið valda sér heilabrotum.
ALGJÖRLEGA ÚTILOKAÐ „Haukur vissi að hann væri að kalla á athygli með milli-
færslunni. Var maður með þekkingu og greind Hauks Þórs svo heimskur að haga sér
þannig? Ég held að það sé algjörlega útilokað,“ sagði Gestur Jónsson fyrir rétti í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mál Hauks Þórs er fyrsta sakamálið tengt hruni bankanna sem ákært er fyrir
og tekið til dóms. Sérstakur saksóknari hefur sem kunnugt er ekki enn gefið
út neina ákæru.
Mál Hauks er þess eðlis að í raun hefði það átt heima á borði sérstaks
saksóknara. Þangað fór það hins vegar ekki, vegna þess að þegar það kom
upp í nóvember 2008 hafði embætti sérstaks saksóknara ekki verið stofnað.
Þegar embættinu var síðan komið á laggirnar í desember var rannsókn
málsins þegar komin á skrið hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra og
var ákveðið að torvelda ekki rannsóknina með því að flytja málið til.
Fyrsta málið tengt bankahruninu