Fréttablaðið - 24.03.2010, Page 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Þegar ég er beðin um að rifja
upp sögur af ferðalögum mínum
kemur alltaf upp í hugann atvik
sem átti sér stað þegar ég fór í Int-
errail-ferð ásamt vinum mínum úr
menntaskóla sumarið 1997,“ segir
Birgitta Birgisdóttir leikkona, sem
þessa dagana fer með hlutverk
Höllu í uppfærslu Borgarleikhúss-
ins á Gauragangi eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Birgitta og vinir hennar sam-
mæltust um að hefja ferðina með
því að fljúga til Parísar og sjá svo
til hvert haldið skyldi eftir það.
Hópurinn fikraði sig niður Frakk-
land og yfir til Ítalíu, þar sem
uppákoman sem Birgittu er minn-
isstæð átti sér stað.
„Við þurftum að fara út í litlu
fjallaþorpi til að skipta um lest,“
segir Birgitta. „Þegar lestin sem
við vorum í stoppaði ætluðum við
að drífa okkur út úr lestinni, því
þær stoppa fáránlega stutt þess-
ar ítölsku litlu lestir. Þá var fimm
manna fjölskylda á undan okkur,
með margar ferðatöskur, og í ein-
hverju óðagoti opnuðu þau hurð
sem lá út á brautarteinana. Við
hlupum öll út á eftir þeim, ég var
síðust og lestin var að fara af stað
þegar ég rétt náði að stökkva út.“
Þegar hópurinn hafði stað-
ið á miðjum brautarteinum í lít-
illi brautarstöð í smáu fjallaþorpi
skamma stund komu aðvífandi
tveir brautarverðir með skamm-
byssur á lofti og öskruðu hástöf-
um á ítölsku. Allir ferðalangarnir
voru teknir, settir inn í herbergi
og var ekki gefið leyfi til að fara
á klósettið í dágóða stund, hvað þá
meira. „Þeir tóku passana okkar
og voru heillengi að skrifa ein-
hverja skýrslu um „alvarlega“
glæpinn sem við frömdum. Svo
tóku þeir ljósrit af vegabréfunum
og slepptu okkur loks eftir nokk-
urra klukkustunda veru þarna
á pínulitlu brautarstöðinni. Þeir
töluðu enga ensku og við enga
ítölsku þannig að þetta var allt
frekar vandræðalegt. Á einhvern
hátt tókst okkur samt að skilja að
verið væri að taka okkur fyrir að
fara öfugum megin út úr lestinni.
Okkur stóð ekki alveg á sama rétt
meðan á þessu stóð, en um leið og
öllu lauk þá hlógum við að þessu.
Sérstaklega í ljósi þess hve bærinn
var lítill og næsta lest líklega ekki
væntanleg fyrr en mörgum tímum
síðar,“ segir Birgitta og hlær.
Leikkonan minnist þess einnig
að Díana prinsessa lést þetta sama
sumar. Þá var hópurinn staddur í
Róm á Ítalíu.
kjartan@frettabladid.is
Lestarverðir með alvæpni
Birgitta Birgisdóttir leikkona skellti sér í Interrail-ferð sumarið 1997 ásamt vinum sínum úr menntaskóla.
Hópurinn lenti í heldur óþægilegu, svo ekki sé minnst á eftirminnilegu, atviki á brautarstöð á Ítalíu.
Birgitta ferðast mikið, sérstaklega á sumrin. „Innanlands finnst mér best að fara á Vestfirðina og næla mér í orku úr fjöllunum.
Það er einhver algjör galdur sem fylgir fjöllunum fyrir vestan.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMHVERFISVOTTAÐIR VESTFIRÐIR er
yfirskrift ráðstefnu sem Ferðamálasamtök Vest-
fjarða standa fyrir laugardaginn 17. apríl á Hótel
Núpi. www.vestfirskferdamal.is
Borgartún 24 – Hæðarsmára 6 – Hafnarborg s. 58 58 700 www.madurlifandi.is
Lifandi – Nærandi – Gefandi
Hvers vegna er ég
sjúk(ur) í sykur og
hvað er til ráða?
Hefur einstaka löngun í sykur breyst í
þörf fyrir sykur eftir hverja máltíð?
Setur sykur og kolvetnisþörf sífellt strik
í reikninginn þegar þú ert að reyna að
bæta mataræðið og heilsuna?
Er ekki kominn tími til að komast að
undirliggjandi ástæðum og finna leiðir
til að ná tökum á sykurþörfinni í eitt
skipti fyrir öll?
Linda Pétursdóttir, Certified Holistic
Health Counselor kemur til Íslands
og heldur fyrirlestur í Maður Lifandi
Borgartúni fimmtudaginn 25. mars
kl. 17:30–19:30.
•
•
•