Fréttablaðið - 24.03.2010, Síða 22
24. mars 2010 MIÐ-2
„Þessi hugmynd spratt í raun upp
fyrir tíu árum þegar ég var á leið-
inni til Barcelona í fyrsta skipti.
Ég ætlaði að velja mér góðan veit-
ingastað til að fara á og las mér
því til um borgina í Lonely Planet
og Time Out-bókunum, sem hafa
verið með þeim vinsælustu í þess-
um bransa. Þegar ég kom svo á
veitingastaðinn hafði honum verið
lokað nokkrum mánuðum fyrr.
Þetta voru vonbrigði, en bækurn-
ar uppfæra sig ekki sjálfar,“ segir
Jónas Tryggvi Jóhannsson tölv-
unarfræðingur, sem þessa dag-
ana vinnur að uppsetningu félags-
og ferðavefsíðunnar Destination.is
ásamt Haraldi Þorleifssyni hönn-
uði og fleirum.
Að sögn Jónasar er ætlunin að
Destination.is verði tæmandi leið-
arvísir fyrir höfuðborgarsvæðið
varðandi hótel, veitingastaði, kaffi-
hús, bari, verslanir og áhugaverða
staði til að heimsækja á svæðinu.
Allir hafa aðgang að upplýsingun-
um sem er að finna á síðunni, en
auk þess geta þeir sem skrá sig inn
í gegnum Facebook gefið stöðum
einkunnir og látið í ljós álit sitt á
þeim.
Jónas segir mikilvægt að
almenningur hafi vettvang til að
segja sínar skoðanir á ferðatengdri
þjónustu umbúðalaust. Slíkt virki
einnig hvetjandi á þjónustuað-
ila, að gæta þess að boðið sé upp
á það sem þörf er á hverju sinni.
Það sé eitt af því sem geri Dest-
ination.is svo spennandi. „Síðan
er fyrst og fremst hugsuð fyrir
erlenda ferðamenn og við einbeit-
um okkur að höfuðborgarsvæðinu
fyrst í stað, hvað svo sem síðar
verður. Við viljum gefa þjónustu-
aðilum á svæðinu tækifæri til að
kynna sig betur á Netinu og bjóð-
um upp á auglýsingar til að standa
straum af kostnaði við síðuna, en
við skráum alla, hvort sem þeir
auglýsa eður ei. Með það að mark-
miði munum við á næstu vikum og
mánuðum setja okkur í samband
við alla sem standa í ferðatengd-
um rekstri á höfuðborgarsvæð-
inu. Það hefur lengi verið úrbóta
þörf í þessum málum og við ætlum
einfaldlega að gera þetta almenni-
lega,“ segir Jónas.
kjartan@frettabladid.is
Gerum þetta almennilega
Jónas Tryggvi Jóhannsson og Haraldur Þorleifsson vinna nú að opnun vefsíðunnar Destination.is. Síðunni
er ætlað að vera tæmandi leiðarvísir fyrir höfuðborgarsvæðið varðandi hótel, veitingastaði og fleira.
Aðstandendur Destination.is, þau Geir Landrö, Haraldur Þorleifsson, Guðrún Dóra Steindórsdóttir, Jónas Tryggvi Jóhannsson og
Elís Ingi Benediktsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GRÆNLANDSSETUR var stofnað
í Bolungarvík á dögunum. www.bb.is
Ferðavefsíðan www.destination.is
Allar sumarflatir Hólmsvallar í Leiru
voru opnaðar í byrjun þessarar viku.
Þetta eru gleðitíðindi fyrir golfara á
suðvesturhorni landsins sem vart
geta beðið eftir að fá að munda kylf-
urnar sem oftast og sem víðast. Völl-
urinn í Leirunni er opinn öllum með
þeim skilyrðum að kylfingar bóki rás-
tíma á vefinn golf.is. og greiði vallar-
gjald áður en leikur hefst.
Leiran liggur við sjávarsíðuna miðja
vegu milli Keflavíkur og Útskála.
Auðveldasta holan þar er sú fyrsta en
sú erfiðasta þriðja, eftir því sem næst
verður komist.
Æfingasvæði Golfklúbbs Suðurnesja
var líka opnað á mánudaginn og
stefnt er að því að halda mót næsta
laugardag. Byrjað er að skrá á það.
- gun
Vorhugur í golfurum
GOLFARAR GETA VART BEÐIÐ EFTIR AÐ
MUNDA KYLFUNA. NÚ GETA ÞEIR ÞAÐ Á
HÓLMSVELLI Í LEIRU.
Góð sveifla á Hólmsvelli.
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og fl est annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
íslensk
framleiðsla
í 20 ár
Rafhitarar fyrir heita potta
Hjólhýsi - Fellihýsi - Aftanívagnar
Allar almennar viðgerðir og viðhald.
Standsetning fyrir sumarið. Skilum vagninum
skoðuðum, ef óskað er. Verið klár fyrir sumarið.
Sími 555 6670 - www.velras.is
Rauðhellu 16 - Vagnhöfða 5
Vesturhrauni 1-210 Garðabæ Sími 535 5850-www.framtak.is
Stillanlegar undirstöður fyrir
vélar og vélbúnað.