Fréttablaðið - 24.03.2010, Qupperneq 45
MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2010 29
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 24. mars 2010
➜ Tónleikar
12.30 Pamela De Sensi flautuleikari
og slagverksleikararnir Eggert Pálsson
og Frank Aarnink flytja ný verk eftir
Elínu Gunnlaugsdóttur og Anton-
io Cocomazzi á hádegistónleikum í
Norræna húsinu við Sturlugötu. Einnig
kemur fram á tónleikunum Guðrún
Ásmundsdóttir leikkona.
20.00 Ítölsku tónlistarmennirnir Natal-
ia Benedetti á klarinett og Sebastiano
Brusco á píanó, flytja kammertónlist á
tónleikum í Norræna húsið við Sturlu-
götu.
20.30 Í Salnum við Hamraborg í
Kópavogi verður haldið tangókvöld
helgað finnskum og íslenskum tang-
óum. Fram koma: Ágúst Ólafsson, söng-
ur, Ástríður A. Sigurðardóttir, píanó, Íris
Dögg Gísladóttir, fiðla, Kristín Lárusdótt-
ir, selló, og Matti Kallio, harmónika.
20.30 Stórsveit Reykjavíkur heldur
tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem
á efnisskránni verða verk eftir Agnar Má
Magnússon. Enginn aðgangseyrir.
20.30 Stórsveit Suðurlands heldur
tónleika á Hótel Selfoss við Eyrarveg á
Selfossi. Á efnisskránni verða hefðbund-
in swinglög, samba og funk. Sérstakur
gestur tónleikanna er Raggi Bjarna.
21.00 Villi
Naglbítur og
Andrea Gylfa-
dóttir koma
fram ásamt
hljómsveit á
tónleikum á
Café Rosenberg
við Klapparstíg.
23.00 Hljómsveitirnar OJBA RASTA og
Crackers halda tónleika á Bakkus við
Tryggvagötu.
➜ Skáld mánaðarins
17.00 Jóhann Jónsson (1896-1932) er
skáld mánaðarins á Bókasafni Seltjarn-
arness við Eiðistorg og verður í tilefni af
því opnuð sýning og flutt dagskrá.
➜ Söngskemmtun
20.00 Söngfjelagið Góðir grannar
heldur sína árlegu söngskemmtun í Sig-
urjónssafni, Laugarnestanga 70. Stjórn-
andi er Þuríður Vilhjálmsdóttir.
➜ Afþreying
Rauðakrosshúsið að Borgartúni 25
býður upp á fjölbreytta dagskrá með
fræðslu, ráðgjöf og frístundanámskeið-
um. Nánari upplýsingar og dagskrá
www.raudakrosshusid.is.
➜ Leiðsögn
12.10 Jakob Jakobsson gengur með
gestum um ljósmyndasýningu sína sem
nú stendur yfir í Ljósmyndasafni Reykja-
víkur við Tryggvagötu 15 (6. hæð). Sýn-
ingin er opin alla virka daga kl. 12-19 og
um helgar kl. 13-17.
➜ Sýningar
Í i8 Gallery við Tryggvagötu 16 hefur
sýningu Hreins Firðfinnssonar verið
framlengt til 27. mars. Opið þri.-fös. kl.
11-17, lau. kl. 13-17.
Í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu
hefur verið opnuð ljósmyndasýning Sig-
urgeirs Sigurjónssonar „Íslendingar”. Þar
stendur einnig yfir sýning á ljósmynda-
verkum eftir Melkorku Huldudóttur.
Opið alla daga kl. 11-17 og enginn
aðgangseyrir á miðvikudög-
um.
Í Gallerí Ágúst við Baldurs-
götu stendur yfir sýning á
verkum Einars Garibalda
Eiríkssonar. Opið mið.-
lau. kl. 12-17. Síðasti sýn-
ingardagur er laugardagur
27. mars.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@fretta-
bladid.is.
Þórdís Kjartansdóttir, sem er eini kvenkyns
lýtalæknirinn á Íslandi, heldur sína fyrstu
tónleika hér á landi á Café Rosenberg á föstu-
dagskvöld. Þar ætlar hún að syngja létta og
ástríðufulla djasstónlist með frönsku ívafi.
„Það er mikið framboð af góðu tónlistar-
fólki á Íslandi en þegar maður er með tónlist-
ina í blóðinu verður maður að fá útrás fyrir
sönginn,“ segir Þórdís. „Þetta er ekkert annað
en ástríða.“
Þórdís lærði á píanó þegar hún var ung að
árum og fékk þá að eigin sögn strangt klass-
ískt tónlistaruppeldi. Þegar hún flutti til
Frakklands til að læra að verða lýtalæknir
fór hún að syngja fyrir hálfgerða tilviljun og
á endanum var hún farin að syngja reglulega
á fimmtudagskvöldum á djassklúbbi í Stras-
bourg. „Þetta voru langir dagar. Ég kláraði að
vinna klukkan 20, fór síðan í sturtu og svissaði
alveg um gír. Það var dálítið „kikk“ að þora að
gera eitthvað annað og kúpla sig frá öllu til að
syngja,“ segir Þórdís. Hún flutti til Íslands í
lok ársins 2006 eftir að hafa búið í Frakklandi
í tíu ár og starfar bæði á Landspítalanum og
í Glæsibæ. Hún segir það fara vel saman að
stunda lýtalækningar og syngja djass. „Ef
maður getur sinnt ástríðunni þá líður manni
betur í lífinu. Ef það verður framhald á þessu
held ég að þetta geri mig að betri lækni því ég
verð ánægðari með lífið og tilveruna.“
Með Þórdísi á tónleikunum, sem hefjast
klukkan 21.30, spila Tómas R. Einarsson,
Gunnar Gunnarsson, Vilhjálmur Guðjónsson
og Scott McLemore. - fb
Lýtalæknir heldur tónleika
ÞÓRDÍS KJARTANSDÓTTIR Þórdís segir að tónlistin og
lýtalækningarnar eigi mjög vel saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Styrktartónleikar fyrir SÁÁ
verða haldnir á fimmtudags-
kvöld í Vonarsalnum í Efstaleiti.
Fram koma Kristján Jóhannsson,
Raggi Bjarna, Egill Ólafsson,
Þorgeir Ástvaldsson, Íris Guð-
mundsdóttir og Geir Ólafsson.
„Það væri æðislegt ef allir þeir
sem vettlingi geta valdið myndu
koma,“ segir Geir og bætir við
að það sé mikill heiður að fá að
vinna með þeim tónlistarmönn-
um sem koma þarna fram. Miða-
sala á tónleikana, sem hefjast
klukkan 20, fer fram í Von.
Tónleikar til
styrktar SÁÁ